Viðreisn og Björt framtíð reyna að stilla Sjálfstæðisflokki upp við vegg

Bjarni Bene­dikts­son reynir nú að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Litlar líkur eru á því að aðrir flokkar bæt­ist við þá rík­is­stjórn, þrátt fyrir vilja Sjálf­stæð­is­flokks­ins þar um. Vinstri græn bíða róleg á hlið­ar­lín­unni eftir tæki­færi ti

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fékk í dag stjórnarmyndunarumboð.
Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fékk í dag stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð.

Óform­legar við­ræður standa yfir um myndun rík­is­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar. Tveir síð­ar­nefndu flokk­arnir hafa læst sig saman í þessum við­ræðum og koma því fram sem frjáls­lynt miðju afl með 18 pró­sent fylgi og ell­efu þing­menn.

Sjálf­stæð­is­menn hafa þrýst mjög á það und­an­farna daga að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn verði hluti af slíkri rík­is­stjórn í sam­tölum við for­ystu­menn hinna flokk­anna og lagt þar áherslu á að um gjör­breyttan flokk sé að ræða undir stjórn Sigurðar Inga Jóhanns­sonar. Slíkri mála­leitan hefur verið tekið afar fálega, enda telur áhrifa­fólk innan bæði Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar að það væri nokk­urs konar póli­tískur koss dauð­ans að verða þriðja og fjórða hjólið undir rík­is­stjórn sitj­andi stjórn­ar­flokka. Það telur sig líka vera í betri stöðu til að ná fram mik­il­vægum stefnu­málum ef við­semj­and­inn er bara Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Þau stefnu­mál snú­ast um tákn­rænar breyt­ingar á land­bún­að­ar­kerf­inu, mark­aðs­lausnir í sjáv­ar­út­vegi, stjórn­ar­skrár­breyt­ingar (sér­stak­lega varð­andi það að gera landið að einu kjör­dæmi) og, síð­ast en ekki síst, þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald­andi við­ræður um Evr­ópu­sam­bandið. Ljóst er að það verður erfitt fyrir ýmsa innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins að kyngja þessum kröfum.

Gangi við­ræður þessa þriggja flokka ekki eftir er næsti kostur minni­hluta­stjórn frá miðju til vinstri sem myndi mögu­lega inni­halda Fram­sókn­ar­flokk­inn og njóta þátt­töku eða stuðn­ings Sam­fylk­ingar og Pírata. Slík stjórn er mun ofar á óska­lista Vinstri grænna en nokkru sinni sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Bjarni fékk umboðið

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, afhenti Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð fyrr í dag. Það kom fæstum á óvart, enda nán­ast for­dæma­laus staða uppi í íslenskum stjórn­málum þar sem engir tveggja flokka rík­is­stjórn­ar­mögu­leikar eru í boði. Því var rök­rétt að fela for­manni stærsta þing­flokks­ins umboðið í ljósi þess að for­ystu­menn nokk­urra ann­arra flokka höfðu ekki úti­lokað að mynda stjórn með honum.

Þreif­ingar um rík­is­stjórn­ar­myndun voru þó löngu byrj­aðar og hafa staðið allt frá því á kosn­inga­nótt. Frjáls­lyndu miðju­flokk­arnir tveir, Björt fram­tíð og Viðreisn, hafa bundið sig saman í þeim við­ræðum sem nú standa yfir. Mikil sam­legð er á milli flokk­anna varð­andi stefnu­mál og báðir leggja mikla áherslu á kerf­is­breyt­ingar í sjáv­ar­út­vegs-, land­bún­aðar- og alþjóða­málum.

Kjarninn í þeirri rík­is­stjórn sem nú er verið að reyna að mynda er þetta frjáls­lynda miðju­banda­lag og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem leggur reyndar mikla áherslu á að fá fjórða flokk­inn að borð­inu til að styrkja meiri­hlut­ann. Bjarni sagði það síð­ast á Bessa­stöðum í dag, þegar hann var spurður um rík­is­stjórn­ar­sam­starf við Viðreisn og Bjarta fram­tíð, að gall­inn „við þann mögu­leika er hversu knappur meiri­hluti það er,“ en flokk­arnir þrír hafa 32 þing­menn sam­an­lag­t.

Við­mæl­endur Kjarnans segja að Sjálf­stæð­is­menn hafi þrýst mjög á það í sam­tölum sínum við for­svars­menn Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar að þeim mögu­leika yrði haldið opnum að taka Fram­sókn­ar­flokk­inn inn í nýja stjórn. Söluræðan sé sú að Framsókn sé allt annar flokkur með Sigurð Inga Jóhanns­son í brúnni og að vil­yrði liggi fyrir að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­maður flokks­ins, verði ein­angr­aður á kom­andi þingi. Framsókn sé að tala um sig sem sjö manna þing­flokk þegar hún er að bjóða sig fram sem mögu­leika í rík­is­stjórn.

Þessum umleit­unum Sjálf­stæð­is­manna hefur verið tekið fálega, og nokkuð ljóst er að lít­ill sem eng­inn vilji er hjá miðju­flokk­unum að vinna bæði með Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki. Það fram­lengi líf kerf­is­varn­ar­rík­is­stjórnar og geri Bjartri fram­tíð og Viðreisn, sem vilja ákveðnar kerf­is­breyt­ingar, erfitt fyrir að koma sínum áherslum fram. Flokk­arnir séu í mun betri stöðu til þess sam­ein­aðir gegn Sjálf­stæð­is­flokknum einum í mjög tæpum meiri­hluta.

Stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­urnar við hann muni snú­ast um hversu langt hann sé til­bú­inn að ganga í eft­ir­gjöf gagn­vart helstu mál­efna­á­herslum Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar. Flokk­arnir eru von­góðir um að þar sé tölu­vert svig­rúm til að semja. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi sýnt það t.d. í síð­ustu stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum að hann sé til­bú­inn að ganga gegn sínum eigin stefnum til að mynda stjórn, eins og sást með því að hann sam­þykkti Leið­rétt­ingu Fram­sókn­ar­flokks­ins, 80 millj­arða króna milli­færslu úr rík­is­sjóði til val­ins hóps Íslend­inga.

Minnihlutastjórn til vinstri hinn kosturinn

Gangi þessar við­ræður ekki þá á Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ekki marga mögu­leika í stöð­unni. Marga innan flokks­ins dreymir um sam­starf við Vinstri græna vegna þess að þeir telja að þá yrðu lyk­il­mál eins og Evr­ópu­sam­bands­að­ild og breyt­ingar á sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­kerf­inu auð­veld­ari við­fangs. Mun styttra sé á milli þess­ara tveggja flokka í þeim málum en ann­arra, utan Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Katrín Jakobsdóttir hefur ítrekað lýst því yfir að lítill vilji sé hjá hennar flokki að vinna með Sjálfstæðisflokki. Hún vill fá tækifæri til að mynda minnihlutastjórn frá miðju til vinstri.
Katrín Jak­obs­dóttir hefur ítrekað lýst því yfir að lít­ill vilji sé hjá hennar flokki að vinna með Sjálf­stæð­is­flokki. Hún vill fá tæki­færi til að mynda minni­hluta­stjórn frá miðju til vinstri.

Við­mæl­endur Kjarnans innan Vinstri grænna segja hins vegar að það yrði ein­ungis eftir margra mán­aða stjórn­ar­kreppu sem það yrði snef­ill af mögu­leika að flokk­ur­inn myndi skoða að mynda rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum. Og jafn­vel þá væri meiri áhugi á nýjum kosn­ingum en slíku sam­starfi. Þar er ein­fald­lega ekki áhugi að bæt­ast við rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar, að minnsta kosti ekki fyrr en að reynt hafi verið á hvort hægt sé að mynda stjórn frá miðju til vinstri án Sjálf­stæð­is­flokks. Það er líka kergja á vinstri vængnum gagn­vart Óttarri Proppé fyrir að hafa svona auð­veld­lega snúið sér í við­ræður við aðra flokka en stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna. Yfir­lýs­ing hans í sam­tali við Stundina fyrr í dag, þar sem hann seg­ist ekk­ert vera neitt sér­stak­lega spenntur fyrir þriggja flokka stjórn­ar­sam­starfi með Viðreisn og Sjálf­stæð­is­flokki,vegna þess að það væri svo langt á milli þeirra og Sjálf­stæð­is­flokks, sé fyrst og fremst taktísk þar sem óform­legar við­ræður séu þegar í gangi.

Fari þær við­ræður út um þúfur er hins vegar lítið annað í stöð­unni fyrir Bjarna Bene­dikts­son en að skila stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð­inu. Það færi þá annað hvort til Bene­dikts Jóhann­es­sonar, for­manns Við­reisnar, eða Katrínar Jak­obs­dóttur, for­manns Vinstri grænna, og til­raun yrði gerð til að mynda rík­is­stjórn minni­hluta­stjórn frá miðju til vinstri, með eða án aðkomu Fram­sókn­ar­flokks­ins, og með stuðn­ingi Pírata. Þá virð­ist það vera skoðun margra að hljóðið í Sam­fylk­ing­unni hafi breyst umtals­vert með for­manns­skipt­unum í byrjun viku. Logi Ein­ars­son, nýr for­maður flokks­ins, sé ekki jafn afdrátt­ar­laus gagn­vart því að Sam­fylk­ingin verði utan rík­is­stjórnar og Oddný Harð­ar­dóttir var. Þar séu því þrír þing­menn sem mætti bæta inn í slíka stjórn.

Gangi hvorug ofan­greindra leiða eftir er ljóst að stjórn­ar­kreppa verður í land­inu og lítið annað að gera en að kalla þing saman og fyrir starfs­stjórn Sigurðar Inga Jóhanns­sonar að leggja fram fjár­laga­frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar. Í ljósi þess að sú starfs­stjórn er ekki með meiri­hluta á þingi gæti það ferli orðið ansi áhuga­vert. Í kjöl­farið yrði reynt til þrautar að mynda ólík­legra rík­is­stjórn ólíkra flokka. Tækist það ekki væri fátt annað eftir en að boða til nýrra kosn­inga á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár