Framsókn orðinn valkostur fyrir stjórn til vinstri

Tveir mögu­leikar virð­ast vera til staðar við myndun rík­is­stjórnar. Annars vegar rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar, sem verið er að ræða um. Gangi það ekki er vilji til að mynda rík­is­stjórn frá miðju til vinstri með aðkomu

Mynd: Birgir Þór
Mynd: Birgir Þór

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er eini flokk­ur­inn sem eng­inn annar stjórn­mála­flokkur virt­ist vilja mynda rík­is­stjórn með. Enginn flokkur hefur lýst því yfir opin­ber­lega að rík­is­stjórn með Framsókn inn­an­borðs væri eitt­hvað sem hann gæti hugsað sér. Sigurður Ingi Jóhanns­son, starf­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður flokks­ins, hefur þó sagt að hann sé reiðu­bú­inn til að starfa í rík­is­stjórn ef kallið kæmi og í sam­starfi við „hvern sem er“. Í sam­tali við mbl.is í gær, þegar hann var á leið á fund for­seta Íslands, sagði hann að sam­starf við aðra flokka hafi gengið vel á síð­ustu sex mán­uðum, eftir að hann tók við sem for­sæt­is­ráð­herra.

Þetta er mjög í takt við það sem þing­menn flestra flokka segja. Vinnu­friður hafi kom­ist á á Alþingi og ólíkir flokkar hafi getað sam­mælst um að laga vinnu­brögð og veita völdum málum braut­ar­gengi. Sigurður Ingi hafi komið með ró, virð­ingu, sam­starfsvilja og kurt­eisi inn í verk­stjórn­ina á lands­mál­unum eftir að hann tók við af Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni í apríl.

En af hverju hafa hinir flokk­arnir þá ekki viljað vinna með Framsókn, sem hefur átta þing­menn og er sögu­lega miðju­flokkur sem er opinn í báða enda? Við­mæl­endur Kjarnans í öllum flokkum segja þá ástæðu blasa við. Hún heitir Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Og það vanda­mál virð­ist vera að leys­ast.

Takist ekki að mynda meiri­hluta­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar – sem hefði minnsta mögu­lega meiri­hluta – í þess­ari viku er ljóst að ein­ungis einn skýr val­kostur er á borð­inu. Það er rík­is­stjórn Vinstri grænna, Við­reisnar, Bjartrar fram­tíðar og Fram­sókn­ar­flokks með aðkomu eða stuðn­ingi Pírata og stuðn­ingi Sam­fylk­ingar. Slík rík­is­stjórn yrði með 42 manna þing­meiri­hluta að með­töldum stuðn­ings­þing­mönnum og myndi ein­angra Sjálf­stæð­is­flokk­inn í stjórn­ar­and­stöðu. Það væri líka hægt að mynda þessa stjórn án aðkomu Við­reisnar. Sam­an­lagður þing­manna- og stuðn­ings­manna­fjöldi yrði þá 35 þing­menn. Fari þessar við­ræður út um þúfur einnig stöndum við frammi fyrir störu­keppni í íslenskum stjórn­málum, og mögu­legri stjórn­ar­kreppu.

Sigmundur Davíð er að einangra sig upp á eigin spýtur

Stríð hefur geis­aði í Fram­sókn­ar­flokknum und­an­farin miss­eri. Eftir að Sigurður Ingi vann sigur í for­manns­kosn­ingum í Fram­sókn­ar­flokknum í byrjun októ­ber hefur verið nokkuð skýrt að Sig­mundur Davíð ætl­aði ekki að taka þeim ósigri þegj­andi. Hann rauk út úr Háskóla­bíói undir sig­ur­ræðu Sigurðar Inga og næstu daga gaf hann það sterkt til kynna að and­stæð­ingar hans innan flokks hefðu haft rangt við til að tryggja Sigurði Inga sigur.

Á end­anum ákvað hann þó að helga sig mál­efnum Norð­aust­ur­kjör­dæmis síð­ustu dag­anna fyrir kosn­ingar og birti meðal ann­ars sér­staka Norð­austur-stefnu á bloggi sínu.

Flestir aðrir þing­menn og leið­togar Fram­sókn­ar­flokks­ins sam­ein­uð­ust í kosn­inga­bar­átt­unni, utan við Gunnar Braga Sveins­son sem stóð áfram með Sigmundi Davíð.

Kosn­ing­arnar fóru ekki vel fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn. Stefnu­mál hans sem kynnt voru í aðdrag­anda kosn­inga náðu engu flugi og þegar búið var að telja upp úr kjör­köss­unum var nið­ur­staðan versti árangur flokks­ins í kosn­ingum í 100 ára sögu hans, eða 11,5 pró­sent atkvæða. Þing­menn­irnir urðu átta tals­ins en höfðu verið 19.

Það vekur þó athygli að flestir her­ská­ustu og umdeild­ustu þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins eru horfnir á braut. Í raun má segja að ein­ungis Sig­mundur Davíð og Gunnar Bragi séu mjög umdeildir af þeim átta sem í þing­flokknum sitja. Ásýnd þing­flokks­ins hefur breyst mjög og er orðin álit­legri fyrir félags­hyggju­flokk­anna sem sam­starfs­mögu­leiki, sam­kvæmt við­mæl­endum Kjarnans.

Sig­mundur Davíð var með svör á reiðum höndum yfir því hvers vegna hefði farið svo sem fór í kosn­ing­unum. Átökin á flokks­þingi, þar sem hann var felldur sem for­maður, hafi verið helsta ástæða þess að flokk­ur­inn tap­aði svona miklu fylgi. „Ég var búinn að leggja drög að því hvernig með öfl­ugri kosn­inga­bar­áttu hefðum við getað hækkað fylgið um kannski fjög­ur ­pró­sentu­stig og svo kannski tvö í við­bót í kosn­ing­unum sjálf­um. Við hefðum þá getað gert ráð fyrir 18 til 19 pró­senta fylg­i,“ sagði Sig­mundur Davíð við Frétta­blaðið á mánu­dag. Í sama blaði í dag er því haldið fram að hann sé að ein­angra sig frá öðrum þing­mönnum flokks­ins og að honum hugn­ist ekki að vinna með Sigurði Inga og þing­flokknum í sátt.

Nið­ur­stöður kosn­ing­anna voru reyndar ekk­ert sér­stak­lega góðar fyrir Sigmund Davíð, og virð­ast ekki styðja þessa kenn­ingu hans. Flokk­ur­inn fékk 20 pró­sent atkvæða í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, sem er minnsta fylgi sem hann hefur nokkru sinni fengið í kjör­dæm­inu frá því að hann hóf að bjóða fram. Þess utan var Sig­mundur Davíð sá fram­bjóð­andi kjör­dæm­is­ins sem var oft­ast strik­aður út af kjós­endum.

Framsókn allt í einu stjórntækur flokkur

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn veit að eng­inn annar stjórn­mála­flokkur mun vinna með honum nema búið sé að taka á „Sig­mundar-vanda­mál­inu“. Bjarni Bene­dikts­son og Sig­mundur Davíð hafa varla talað saman síðan að Sig­mundur sagði af sér og innan raða Sjálf­stæð­is­flokks­ins er for­sæt­is­ráð­herr­ann fyrr­ver­andi almennt ekki hátt skrif­aður, utan hirð­ar­innar í kringum Davíð Oddsson, sem hefur mikið dálæti á honum. Staða hans er hins vegar enn verri hjá stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum. Þar bæt­ist mikil per­sónu­leg óvild í garð Sig­mundar Davíðs við það að lyk­il­fólk í flokk­unum fjórum telur gjör­sam­lega ómögu­legt að starfa með for­sæt­is­ráð­herr­anum fyrr­ver­andi.

Óttarr Proppé virðir fyrir sér Katrínu Jakobsdóttur og Þorstein Víglundsson í umræðuþætti skömmu fyrir kosningar. Hans flokkur er nú í lykilstöðu til að velja hvort ríkisstjórn verði til hægri eða vinstri ef Framsóknarflokkurinn er orðinn vinstrivalkostur að nýju. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Óttarr Proppé virðir fyrir sér Katrínu Jak­obs­dóttur og Þorstein Víglunds­son í umræðu­þætti skömmu fyrir kosn­ingar. Hans flokkur er nú í lyk­il­stöðu til að velja hvort rík­is­stjórn verði til hægri eða vinstri ef Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er orð­inn vinstri­val­kostur að nýju. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Sigurður Ingi hefur lagt mikla áherslu á að koma því að í nær öllum umræðu­þáttum og við­tölum sem hann hefur mætt í und­an­farna daga að vel hafi tek­ist að vinna saman innan þings eftir að hann tók við sem for­sæt­is­ráð­herra í apríl. Stjórn­un­ar­stíll hans er öðru­vísi en Sig­mundar Davíðs. Stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn segja til að mynda að Sigurður Ingi hafi verið kurt­eis og auð­mjúkur í sam­skiptum og sýnt mikla við­leitni til að eiga í sam­tali við stjórn­ar­and­stöð­una á sínum tíma, þótt ekki væri nema til að halda henni upp­lýstri. Allt hafi þetta verið þættir sem skort hafi alla þá tíð sem Sig­mundur Davíð stýrði þjóð­ar­skút­unni. Einn við­mæl­enda Kjarnans sagði að Sigurður Ingi hefði gert meira til að gera Fram­sókn­ar­flokk­inn stjórn­tæk­ari á síð­ustu tveimur dögum en hann hefði gert á þeim sex mán­uðum sem hann hefur setið sem for­sæt­is­ráð­herra.

Í gær birti svo Gunnar Bragi Sveins­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, stöðu­upp­færslu á Facebook, en hann hafði stutt Sigmund Davíð dyggi­lega í gegnum þann ólgu­sjó sem gengið hefur yfir Fram­sókn­ar­flokk­inn und­an­farin miss­eri. Þar segir Gunnar Bragi að þessir dagar séu flokknum erf­iðir „eftir slæm úrslit kosn­inga og mikla vinnu þarf til að græða sár og jafna deilur. Hvert og eitt þurfum við að líta í eigin barm og meta hvað við höfum getað gert öðru­vísi og betur. Nú er ekki tími upp­hrópana heldur þarf að setja niður ágrein­ing. Oft hefur verið sagt að eng­inn sé stærri en flokk­ur­inn. Það á við nú sem áður enda verður flokk­ur­inn okkar ekki 100 ára af sjálfu sér.“

Með þess­ari yfir­lýs­ingu er Gunnar Bragi, sem hefur verið með her­skárri ráð­herr­unum á þessu kjör­tíma­bili, aug­ljós­lega að rétta fram sátt­ar­hönd og ein­angra Sigmund Davíð þannig enn frekar innan þing­flokks­ins. Lilja Alfreðs­dóttir, vara­for­maður flokks­ins, hafði verið náinn sam­starfs­maður Sig­mundar Davíðs um langt skeið og stutt hann í for­manns­kosn­ing­unum. Hún ákvað hins vegar strax eftir þær að vinna með nýjum for­manni og þau tvö voru and­lit flokks­ins í nýlið­inni kosn­inga­bar­áttu.

Miðju-vinstri stjórn gæti verið í kortunum

Sig­mundur Davíð er því orð­inn nokkuð ein­angr­aður innan Fram­sókn­ar­flokks­ins og við­mæl­endur Kjarnans segja að þannig verði það áfram. Ætli flokk­ur­inn sér í rík­is­stjórn er ljóst að hann þarf að horfa til vinstri þar sem allir flokkar úti­loka, að minnsta kosti í orði, rík­is­stjórn sem inni­heldur bæði Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk. Það er hins vegar sögu­lega ekk­ert vanda­mál fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn að vinna til vinstri. Það hefur hann margoft gert og félags­hyggju­á­herslur hans eiga í raun mun meiri sam­leið með flokk­unum þar en með Sjálf­stæð­is­flokknum.

Wintris-mál Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar var ástæða þess að kosið var í október en ekki í vor. Hann er nú einangraður innan Framsóknarflokksins.
Wintris-mál Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar var ástæða þess að kosið var í októ­ber en ekki í vor. Hann er nú ein­angr­aður innan Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Ef Sigurði Inga tekst að selja það að Sig­mundur Davíð verði ekki vanda­mál og að restin af þing­flokknum sé sam­ein­aður að baki honum gæti það vel gerst að Framsókn yrði aftur val­kostur í rík­is­stjórn. Sér­stak­lega í miðju-vinstri stjórn sem mynduð yrði af Vinstri grænum, Bjartri fram­tíð, Viðreisn og Fram­sókn­ar­flokki með aðkomu eða stuðn­ingi Pírata og mögu­lega stuðn­ingi Sam­fylk­ingar. Slík stjórn hefði 39-42 þing­menn eða stuðn­ings­menn og rúman meiri­hluta á þingi. Það væri meira að segja hægt að mynda þá stjórn án aðkomu Við­reisnar og hún væri samt með 35 manna meiri­hluta gegn 28 manna and­stöðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár