Sigmundur: Rútur fullar af ókunnugu fólki streymdu á flokksþingið

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir að það hafi komið mjög á óvart að tapa for­manns­kosn­ing­unum í flokknum á sunnu­dag. „Þetta leit ágæt­lega út á laug­ar­deg­inum og ég var ekk­ert sér­stak­lega áhyggju­fullur[...]Svo allt í einu, þegar kom­inn var sunnu­dag­ur og klukk­an orðin ell­efu, þá komu rút­urn­ar og út úr þeim streymdi fjöldi fólks sem ég hef hrein­lega aldrei séð áður, í störf­um mín­um í flokkn­um. Og staðan breytt­ist mjög skyndi­lega.“ Þetta kom fram í fyrsta við­tal­inu sem Sig­mundur Davíð hefur veitt eftir tap hans í for­manns­kosn­ing­unum á sunnu­dag, við Ísland í Bítið á Bylgj­unni í morgun.

Þar sagði hann einnig að hann hafi ekk­ert rætt við Sigurð Inga Jóhanns­son, nýjan for­mann flokks­ins, eftir að for­manns­kosn­ingum lauk á sunnu­dag. Enn sé kalt á milli þeirra og að Sigurður Ingi hafi ekki viljað tala við sig í aðdrag­anda for­manns­kosn­ing­anna, þegar eftir því var leitað.

Aðspurður vildi Sig­mundur Davíð þó ekki full­yrða að svindlað hefði verið í for­manns­kosn­ing­unum, en sagði margt hafa verið öðru­vísi en það hefði átt að vera. „.Það eru mjög marg­ir bún­ir að hafa sam­band við mig og látið mig vita að þeir hafi ætlað að styðja mig í kosn­ing­un­um, og þeim leyft að inn­rita sig á flokks­þingið, en svo ekki leyft að kjósa.“

Sig­mundur Davíð lýsti því yfir í stöðu­upp­færslu á Facebook í gær að hann ætl­aði að halda áfram sem odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi þrátt fyrir tapið. Hann sagði við Bítið að hann hlakki nú til að geta unnið fyrir sitt kjör­dæmi og að eft­ir­láta öðrum „stóru mynd­ina, lands­mála­mynd­ina.“

For­sæt­is­ráð­herr­ann fyrr­ver­andi, sem sagði af sér því emb­ætti 5. apríl síð­ast­lið­inn vegna Wintris-máls­ins svo­kall­aða, boð­aði að hann yrði í ítar­legra við­tali á Bylgj­unni síðar í dag, við þátt­inn Reykja­vík síð­degis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár