Lögreglan í Lúxemborg yfirheyrði menn í mars vegna Lindsor-málsins

Lög­reglu­yf­ir­völd í Lúx­em­borg yfir­heyrðu menn í tengslum við rann­sókn sína á svoköll­uðu Lindsor-máli í mars síð­ast­liðnum, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Þau hafa haft málið til rann­sóknar árum saman. Á meðal þeirra sem yfir­heyrðir voru eru íslenskir rík­is­borg­arar, en ekki hafa feng­ist upp­lýs­ingar um hverjir það voru.

Lindsor málið hefur verið lengi til rann­sóknar hjá yfir­völdum á Íslandi og í Lúx­em­borg. Embætti sér­staks sak­sókn­ara fram­kvæmdi meðal ann­ars rétt­ar­beiðni vegna rann­sókn­ar­innar í Lúx­em­borg á árinu 2013. Rannsókn máls­ins er enn opin hjá yfir­völdum í báðum lönd­unum þótt hún hafi nú staðið yfir í á sjö­unda ár og að engar ákærður hafi verið gefnar út í því. Þeir sem eru grun­aðir um lög­brot í mál­inu, fyrr­ver­andi helstu stjórn­endur Kaup­þings og vild­ar­við­skipta­vinur þeirra, hafa ávallt harð­neitað að nokkuð sak­næmt hafi átt sér stað í mál­inu.

Veitt sama dag og neyðarlánið


Málið snýst meðal ann­ars um lán upp á 171 milljón evra, um 25 millj­arða króna miðað við gengi dags­ins í dag, frá Kaup­þingi til félags sem heitir heitir Lindsor Holding Corporation og er skráð til heim­ilis á Tortóla-eyju. Lindsor var í eigu Otris, félags sem stjórn­endur Kaup­þings stýrðu og virk­aði sem nokk­urs konar rusla­kista, afskrifta­sjóður utan efna­hags­reikn­ings Kaup­þings. Þangað var lélegum, og ónýtum, eignum hrúgað.

Lánið var veitt 6. októ­ber 2008, sama dag og neyð­ar­lög voru sett á Íslandi og Geir H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, bað guð að blessa Ísland. Þann dag lánað Seðla­banki Íslands líka Kaup­þingi 500 millj­ónir evra í neyð­ar­lán. Þremur dögum síðar var Kaupþing fall­inn.

Lánið til Lindsor var aldrei borið undir lána­nefnd Kaup­þings. Það var notað til að kaupa skulda­bréf af Kaup­þingi í Lúx­em­borg, ein­stökum starfs­mönnum þess banka og félagi í eigu Skúla Þor­valds­sonar, vild­ar­við­skipta­vinar Kaup­þings. Í grein­ar­gerð sér­staks sak­sókn­ara sem fylgdi gæslu­varð­halds­úr­skurði yfir Magnúsi Guð­munds­syni, fyrrum for­stjóra Kaup­þings í Lúx­em­borg, í maí 2010, segir að „til­gangur við­skipt­anna hafi verið sá að flytja áhætt­una af fallandi verð­gildi skulda­bréf­anna af eig­end­urm þeirra og yfir á Kaupþing á Íslandi“. Þar sagði einnig að gögn bendi til þess að Lindsor hafi keypt skulda­bréfin á mun hærra verði en mark­aðs­verði.

Þegar Kaupþing féll þremur dögum eftir kaupin á bréf­unum var ljóst að Lindsor gat ekki greitt lánið til baka, enda eina eign félags­ins verð­litlu skulda­bréfin sem félagið hafði keypt á yfir­verði þremur dögum áður. Engar trygg­ingar voru veittar fyrir lán­inu og tap kröfu­hafa Kaup­þings vegna þess því gríð­ar­legt. Þeir sem seldu bréfin los­uðu sig hins vegar undan ábyrgðum og, ef grun­semdir emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara eru réttar, tryggðu sér um leið mik­inn ágóða. Sá ágóði var auk þess í evrum þannig að hann marg­fald­að­ist í íslenskum krónum þegar íslenska krónan féll.

[caption id="attachment_21121" align="alignnone" width="624"] Lánið til Lindsor var veitt 6. októ­ber 2008, sama dag og neyð­ar­lög voru sett á Íslandi og Geir H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, bað guð að blessa Ísland. Þann dag lánað Seðla­banki Íslands líka Kaup­þingi 500 millj­ónir evra í neyð­ar­lán. Þremur dögum síðar var Kaupþing fall­inn.[/caption]

Skjöl talin fölsuð


Embætti sér­staks sak­sókn­ara telur, sam­kvæmt grein­ar­gerðum sem það hefur lagt fram vegna rann­sóknar á Lindsor-mál­inu, að þau skjöl sem lána­samn­ingur Kaup­þings við Lindsor byggði á hafi verið útbúin og und­ir­rituð í nóv­em­ber og des­em­ber 2008, tölu­vert eftir fall Kaup­þings. Skjölin eru því talin fölsuð bæði hvað varðar efni og dag­setn­ingar. Þau eru und­ir­rituð af Hreiðari Má Sig­urðs­syni og nokkrum starfs­mönnum Kaup­þings í Lúx­em­borg og rann­sak­endur telja að Guðný Arna hafi haft milli­göngu um frá­gang þeirra. Guðný Arna var á þeim tíma enn starfsandi hjá Nýja Kaup­þingi, sem var byggður á grunni hins fallna Kaup­þings, og hafði setið í skila­nefnd gamla bank­ans. Hún hætti ekki störfum í bank­anum fyrr en í lok des­em­ber 2008.

Lánið til Lindsor var veitt 6. október 2008, sama dag og neyðarlög voru sett á Íslandi og Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, bað guð að blessa Ísland. Þann dag lánað Seðlabanki Íslands líka Kaupþingi 500 milljónir evra í neyðarlán. Þremur dögum síðar var Kaupþing fallinn.
Lánið til Lindsor var veitt 6. októ­ber 2008, sama dag og neyð­ar­lög voru sett á Íslandi og Geir H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, bað guð að blessa Ísland. Þann dag lánað Seðla­banki Íslands líka Kaup­þingi 500 millj­ónir evra í neyð­ar­lán. Þremur dögum síðar var Kaupþing fall­inn.

Þeir sem liggja undir grun í mál­inu gáfu á sínum tíma þær skýr­ingar að skjölin hafi verið und­ir­rituð eft­irá að kröfu skipta­stjóra Kaup­þings í Lúx­em­borg, sem var á þeim tíma í fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu. Hann var skömmu síðar keyptur af David Rowland og fjöl­skyldu hans og end­ur­nefndur Banque Havil­l­and. Undir því nafni starfar hann enn í dag. Þessar skýr­ingar eru ein ástæða þess að málið er rann­sakað af yfir­völdum í Lúx­em­borg.

Umfangsmiklar húsleitir og eignir frystar


Í mars 2011 réðst sér­stakur sak­sókn­ari, Serious Fraud Office í Bret­landi og lög­reglan í Lúx­em­borg í víð­tæk­ustu hús­leitir sem farið hafa fram í Lúx­em­borg. Yfir 70 manns tóku þátt í þeim og leitað var á fimm stöðum. Leitað var í fyr­ir­tæki Skúla Þor­valds­sonar, sem er enn með umfangs­mikla starf­semi í Lúx­em­borg, heima hjá Hreiðari Má, hjá Magnúsi Guð­munds­syni, fyrrum for­stjóra Kaup­þings í Lúx­em­borg, og hjá ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­inu Consolium, sem var m.a. í eigu Hreiðars Más. Hópurinn dvaldi alls í ell­efu daga í Lúx­em­borg og lagt var hald á annað hund­rað kíló af gögnum. Hann yfir­heyrði alls um 15 manns, allt erlenda rík­is­borg­ara sem annað hvort unnu í Kaup­þingi í Lúx­em­borg fyrir hrun eða sinntu ráð­gjafa­störfum fyrir bank­ann. Þetta var í annað sinn á tveimur árum sem emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara réðst í hús­leitir og yfir­heyrslur í Lúx­em­borg. Þær aðgerðir snér­ust um mun fleiri mál en bara Lindsor-málið. Meðal þeirra mála sem verið var að rann­saka er hið svo­kall­aða Marple-mál, þar sem Skúli, Hreiðar Már, Magnús og Guðný Arna Sveins­dóttir, fyrrum fjár­mála­stjóri Kaup­þings, eru ákærð fyrir fjár­drátt og umboðs­svik.

[caption id="attachment_10685" align="alignnone" width="580"] Í mars 2011 réðst sér­stakur sak­sókn­ari, Serious Fraud Office í Bret­landi og lög­reglan í Lúx­em­borg í víð­tæk­ustu hús­leitir sem farið hafa fram í Lúx­em­borg. Yfir 70 manns tóku þátt í þeim og leitað var á fimm stöðum.[/caption]

Í mars 2011 réðst sérstakur saksóknari, Serious Fraud Office í Bretlandi og lögreglan í Lúxemborg í víðtækustu húsleitir sem farið hafa fram í Lúxemborg. Yfir 70 manns tóku þátt í þeim og leitað var á fimm stöðum.
Í mars 2011 réðst sér­stakur sak­sókn­ari, Serious Fraud Office í Bret­landi og lög­reglan í Lúx­em­borg í víð­tæk­ustu hús­leitir sem farið hafa fram í Lúx­em­borg. Yfir 70 manns tóku þátt í þeim og leitað var á fimm stöðum.

Í kjöl­farið voru eignir Skúla, Hreiðars Más, Magnúsar og fleiri í Lúx­em­borg kyrr­settar. Það var gert að beiðni bæði emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara og yfir­valda í Lúx­em­borg. Mest áhersla var lögð á að fá eignir Skúla Þor­valds­sonar og félaga sem hann var skráður fyrir kyrr­settar þar sem sér­stakur sak­sókn­ari taldi að í félög­unum væri að finna millj­arða króna ágóða af gern­ingum sem mögu­lega vörð­uðu við lög. Samhliða var ráð­ist í rann­sókn á því hvort Skúli hafi verið raun­veru­legur eig­andi umræddra félaga eða hvort hann hafi verið að „leppa“ þau fyrir helstu stjórn­endur Kaup­þings.

Í ákærunni í Marple-mál­inu kom fram að fund­ist hafi umtals­verðir fjár­munir í ýmsum erlendum fjár­mála­stofn­unum sem skráðir voru í eigu Skúla Þor­valds­sonar eða félaga hans. Ýmist var um að ræða eigna­söfn eða inn­stæður. Eign­irnar voru frystar að beiðni emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara þann 3. júní 2011. Þegar eign­irnar voru síð­ast virtar var virði þeirra 46,7 millj­ónir evra, eða rúm­lega 7,2 millj­arðar króna.

Skúli reyndi að fá fryst­ing­unni lyft en hér­aðs­dómur hafn­aði þeirri beiðni í mars síð­ast­liðnum.

Ákært í öðrum málum


Rúm fjögur ár eru liðin síðan að aðgerð­irnar áttu sér stað og rann­sókn máls­ins stendur enn yfir. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans voru nokkrir yfir­heyrðir af lög­regl­unni í Lúx­em­borg vegna rann­sóknar hennar á Lindsor-mál­inu í mars síð­ast­liðnum.

Sér­stakur sak­sókn­ari hefur und­an­farin ár ákært helstu stjórn­endur Kaup­þings, og ýmsa aðra, í fjórum stórum málum og Hæsti­réttur dæmdi auk þess þá Hreiðar Má, Magnús, Sigurð Ein­ars­son, fyrrum starf­andi stjórn­ar­for­mann Kaup­þings, og Ólaf Ólafsson, sem var einn stærsti eig­andi bank­ans, í þunga fang­els­is­dóma í Al-Thani mál­inu svo­kall­aða. En ekk­ert bólar hins vegar á nið­ur­stöðu í Lindsor-mál­inu.

[caption id="attachment_10477" align="alignnone" width="1600"] Hreiðar Már hafn­aði því alfarið í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í októ­ber síð­ast­liðnum að féð sem Kaupþing fékk í neyð­ar­lán frá Seðla­banka Íslands hefði verið notað til að kaupa skulda­bréf af starfs­mönnum Kaup­þings í Lúx­em­borg, bank­anum sjálfum eða vild­ar­við­skipta­vinum, líkt og mála­til­bún­að­ur­inn í Lindsor-mál­inu gengur út á.[/caption]

Hafna ásökunum alfarið


Hreiðar Már hafn­aði því alfarið í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í októ­ber síð­ast­liðnum að féð sem Kaupþing fékk í neyð­ar­lán frá Seðla­banka Íslands hefði verið notað til að kaupa skulda­bréf af starfs­mönnum Kaup­þings í Lúx­em­borg, bank­anum sjálfum eða vild­ar­við­skipta­vinum, líkt og mála­til­bún­að­ur­inn í Lindsor-mál­inu gengur út á. Í grein­inni sagði Hreiðar Már: „Ekkert af fjár­magn­inu sem Kaupþing fékk frá Seðla­banka Íslands var notað til kaupa á eigin skulda­bréfum Kaup­þings eins og haldið hefur verið fram. Allt fjár­magnið var nýtt til að tryggja aðgang við­skipta­vina bank­ans í fjöl­mörgum löndum Evrópu að banka­inni­stæðum sínum, tryggja aðgang dótt­ur­banka Kaup­þings í Evrópu að lausafé og mæta veð­köllum bank­ans vegna fjár­mögn­unar hans og við­skipta­vina hans á verð­bréfum hjá alþjóð­legum bönkum í Evrópu. Með öðrum orðum þá var allt féð notað til að tryggja sem frekast var kostur rekstur og hag Kaup­þings og við­skipta­vina bank­ans.“

Hreiðar Már hafnaði því alfarið í aðsendri grein í Fréttablaðinu í október síðastliðnum að féð sem Kaupþing fékk í neyðarlán frá Seðlabanka Íslands hefði verið notað til að kaupa skuldabréf af starfsmönnum Kaupþings í Lúxemborg, bankanum sjálfum eða vildarviðskiptavinum, líkt og málatilbúnaðurinn í Lindsor-málinu gengur út á.
Hreiðar Már hafn­aði því alfarið í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í októ­ber síð­ast­liðnum að féð sem Kaupþing fékk í neyð­ar­lán frá Seðla­banka Íslands hefði verið notað til að kaupa skulda­bréf af starfs­mönnum Kaup­þings í Lúx­em­borg, bank­anum sjálfum eða vild­ar­við­skipta­vinum, líkt og mála­til­bún­að­ur­inn í Lindsor-mál­inu gengur út á.

Í sam­tali við Kjarnann sum­arið 2014 sagði Hreiðar að hann hefði þá ekk­ert heyrt af rann­sókn Lindsor-máls­ins í nokkur ár. Yfirvöld í Lúx­em­borg höfðu þá ekki yfir­heyrt hann vegna þess máls né nokk­urra ann­arra. Hann gerði á þeim tíma ráð fyrir að rann­sókn­inni væri hætt.

Frétta­skýr­ingin byggir að hluta til á skýr­ingu sem birt­ist í app-útgáfu Kjarnans í júní 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár