Fjórði efnahagspakki ríkisstjórnarinnar metinn á 20 milljarða króna

Útgjöld rík­is­sjóðs fyrir yfir­stand­andi ár verða 14,6 millj­örðum krónum meira en gert var ráð fyrir í fjár­lögum. Áætlaður halli í ár nemur um 320 millj­örðum króna. Kostn­aður vegna sér­tækra aðgerða stjórn­valda hefur reynst minni en áætlað var.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Útgjöld rík­is­sjóðs vegna fjórða aðgerð­ar­pakka stjórn­valda til að takast á við efna­hags­leg áhrif kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins eru áætluð 22,7 millj­arðar króna.

[links]Mestur er kostn­að­ur­inn vegna fram­leng­ingu og útvíkk­unar á við­spyrnu­styrkjum, eða 7,4 millj­arðar króna. Þá kosta ráðn­inga­styrkir fyrir þá sem eru þegar á hluta­bótum 4,4 millj­arða króna og áætlað er að kostn­aður við sum­ar­störf fyrir náms­menn og ráðn­ing­ar­styrki fyrir atvinnu­leit­endur undir hatti átaks­ins „Hefjum störf“ verði sam­an­lagt 4,3 millj­arðar króna. Barna­bóta­auki mun kosta 1,6 millj­arða króna og áætlað er að ný ferða­gjöf kosti 1,4 millj­arða króna. Af þeirri upp­hæð sem áætlað er að fari í nýju ferða­gjöf­ina falla þó til 650 millj­ónir króna vegna ferða­gjafa sem voru ekki nýttar í fyrra.

Á móti er áætlað að rík­is­sjóður fái um 2,4 millj­arða króna í auknar tekjur vegna skatt­heimtu af úttekt sér­eign­ar­sparn­aðar, en heim­ild fólks til að taka út þann sparnað til ráð­stöf­unar nú gegn því að greiða af honum skatt var fram­lengd í aðgerð­ar­pakk­anum. Því stendur eftir að áhrif pakk­ans á afkomu rík­is­sjóðs eru áætluð 20,3 millj­arðar króna.

Þetta kemur fram í frum­varpi til fjár­auka­laga sem lagt var fram fyrir helgi. Þar segir enn fremur að afkomu­horfur árs­ins 2021, sem unnar voru í tengslum við vinnslu fjár­mála­á­ætl­unar árin 2022–2026, geri ráð fyrir halla sem nemur 320 millj­örðum króna, eða 10,2 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu.

Sértæku aðgerðirnar hafa kostað um 80 milljarða króna

Í skýrslu starfs­hóps um nýt­ingu heim­ila og fyr­ir­tækja á úrræðum vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, sem birt var í lok apríl, kom fram að heild­ar­um­fang stærstu sér­tæku stuðn­ings­að­gerða stjórn­valda til heim­ila og fyr­ir­tækja væru ríf­lega 80 millj­arðar króna. Af þeirri upp­hæð hafi um 72 pró­sent verið í formi til­færslna úr rík­is­sjóði um 15 pró­sent í formi rík­is­tryggðra lána og 13 pró­sent frestun skatt­greiðslna. Þá hafi 27 millj­arðar króna verið greiddir úr sér­eigna­sjóðum, en af þeirri upp­hæð hafa verið greiddir næstum níu millj­arðar króna í skatta. Þá hafa þeir sem nýttu sér það að fá end­ur­greiddan virð­is­auka­skatt af ýmis­konar vinnu fengið um sjö millj­arða króna í end­ur­greiðslur. ÞAr er að uppi­stöðu um að ræða end­ur­greiðslu iðn­að­ar­manna vegna nýbygg­ingar eða við­halds á íbúð­ar­hús­næði.

[adspot]Upp­haf­legt mat á heild­ar­kostn­aði þriggja fyrstu aðgerða­pakk­anna var 232,2 millj­arðar króna. Líkt og ofan­greindar tölur sýna þá reynd­ist hann mun minni.

Til við­bótar koma svo hinir svoköll­uðu sjálf­virku sveiflu­jafn­arnar sem metið er að kosti um 200 millj­arða króna á árunum 2020 og 2o21. Það hug­tak nær yfir lækkun á tekjum rík­is­sjóðs þegar áfall á borð við kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skellur á og þann aukna kostnað sem fylgir því þegar atvinnu­leysi hækkar jafn hratt og það gerði í kjöl­far far­ald­urs­ins.

Hægt að finna hluta peninga í þegar samþykktum heimildum

Hluta þeirra útgjalda sem falla til vegna fjórða aðgerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar er hægt að sækja í þegar sam­þykktar fjár­heim­ildir sem hafa ekki verið full­nýttar. Því gerir fjár­auka­laga­frum­varpið ekki ráð fyrir nema 14,5 millj­arða króna við­bót­ar­út­gjöldum við það sem fjár­lög höfðu áður ákveðið.

Inni í þeirri tölu er líka ýmis kostn­aður sem teng­ist ekki inn­lendum efna­hags­að­gerðum vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins beint. Má þar nefna eins millj­arðs króna fram­lags vegna tíma­bund­innar skil­yrtar hækk­unar á dag­gjöldum hjúkr­un­ar­heim­ila og 250 milljón króna fram­lags til COVAX (sem þróar og dreifir bólu­efni gegn COVID-19 til þró­un­ar­ríkja).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár