Einu börnin í Evrópu sem mega ekki fara út

Spænsk börn eru þau einu í Evrópu sem mega ekk­ert fara út úr húsi. Þau hafa verið inni­lokuð í rúman mánuð og ýmsum finnst nóg komið, for­eldrum jafnt sem sér­fræð­ingum. Ekki er útlit fyrir að spænsk börn fái að mæta í skól­ann fyrr en í haust.

Auður leikvöllur í Barselóna. Börn landsins hafa þurft að vera inni á heimilum sínum í rúman mánuð og ekkert útlit er fyrir að það breytist alveg á næstunni.
Auður leik­völlur í Bar­selóna. Börn lands­ins hafa þurft að vera inni á heim­ilum sínum í rúman mánuð og ekk­ert útlit er fyrir að það breyt­ist alveg á næst­unni. Mynd: EPA

„Þessi börn verða að kom­ast út,“ rit­aði Ada Colau, borg­ar­stjóri í Bar­selóna og móðir tveggja ungra barna, á Facebook á mið­viku­dag.

Öll börn á Spáni, um 8,2 millj­ónir tals­ins, hafa verið inni­lokuð frá því að útgöngu­bann tók gildi í land­inu fyrir rúmum mán­uði síðan. Þau eru einu börnin í álf­unni sem mega ekki fara út.

Mögulega munu enn líða nokkrar vikur þar til börnum á Spáni verður leyft að yfir­gefa heim­ili sín, þrátt fyrir að þær raddir verði æ hávær­ari sem telja að frek­ari inni­lokun gæti gert börn­unum mik­inn óleik og pressan á yfir­völd frá þreyttum for­eldrum sem hafa áhyggjur af börn­unum sínum auk­ist dag frá degi.

„Ekki bíða lengur: Frelsið börnin okkar!“ skrif­aði Colau, en í færsl­unni lýsti borg­ar­stjór­inn ástand­inu á heim­il­inu sem erf­iðu. Börnin hennar, þriggja og níu ára, eru reið, leið og skilja ekki af hverju þau þurfa að vera inni.

Á Spáni er nær algjört útgöngu­bann í gildi. Örfáar starfs­stéttir byrj­uðu að fara til vinnu í þess­ari viku, til dæmis starfs­menn í bygg­ing­ar­iðn­aði og fram­leiðslu­störfum, en að öðru leyti þurfa flestir að vera heima. Full­orðnir mega skjót­ast eftir nauð­synja­vörum út í búð og leyfa hundum að hreyfa sig og gera þarfir sínar. En börnin sitja inni.

„Ef full­orðnir mega fara út að labba með hund­inn, af hverju þurfa þá börnin okkar að bíða?” skrifar Colau. Sér­fræð­ingar hafa varað við því að áhrif þessa ástands á börnin séu þegar orðin slæm.

Alicia Arévalo, barna­læknir í Madríd, segir að komum barna til læknis vegna and­legra vanda­mála hafi fjölgað mikið síðan far­ald­ur­inn braust út og inni­lok­unin hófst. Börnin þurfa á hjálp að halda vegna martraða, svefnörð­ug­leika og átrask­ana, svo eitt­hvað sé nefnt.

„Þau eru afar við­kvæm, þau gráta út af engu, þau verða ein­ræn og tala ekki um það sem er að angra þau og fá síðan bræðiskast að því er virð­ist út af engu. Mörg þeirra eru skelf­ingu lostin því að þau halda að ömmur þeirra og afar séu að fara að láta lífið, eða for­eldrar þeirra að missa vinn­una,“ segir Arévalo, í sam­tali við El País.

Aðstæður barna mismunandi milli ríkja álfunnar

Spánn hefur orðið illa úti í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum og þar hafa fleiri smit greinst en í nokkru öðru ríki Evrópu, tæp­lega 185 þús­und tals­ins. Tæplega 20.000 manns eru látin á Spáni vegna veirunnar.

Önnur Evr­ópu­ríki þar sem smit hafa verið útbreidd og útgöngu­bönn í gildi hafa hins vegar leyft börnum að fara út að viðra sig.

Börnin á Ítalíu fengu á ný að fara út að hreyfa sig í upp­hafi þessa mán­aðar, en með skil­yrðum þó – ein­ungis í stuttan tíma í einu og í grennd við heim­ili sín í fylgd með for­eldri. Það hafa börn í Frakk­landi og Þýska­landi, þar sem fjöldi stað­festra smita er einnig mik­ill, einnig fengið að gera.

Það er afar mis­jafnt á milli landa hvernig útgöngu­bönn og aðrar tak­mark­anir hafa haft áhrif á börn.

Danir hófu þannig skóla­starf aftur í byrjun þess­arar viku og Norðmenn stefna að því að opna skól­ana eftir helgi. Sum ríki hafa byggt á nið­ur­stöðum rann­sókna sem sýna að ung börn séu ólík­leg til þess að veikj­ast og því ólík­legir smit­berar veirunnar, eins og til dæmis Íslend­ingar. [links]

En ekki Spán­verjar. Þar vilja menn fara með öllu að gát og yfir­völd styðj­ast við ráð sér­fræð­inga sem segja börn þekkta smit­bera allskyns sjúk­dóma.

Salvador Illa, heil­brigð­is­ráð­herra lands­ins, sagði á mánu­dag að áfram yrði nauð­syn­legt að halda börn­unum inni, þar til það yrði talið öruggt að hleypa þeim út. Hann sagði stjórn­völd vera með­vituð um fórn­ina sem í þessu fælist, en ráðu­neyti hans hefur skipað starfs­hóp barna­lækna til þess að meta mögu­leik­ann á því að aflétta inni­lokun barn­anna.

Fá sennilega ekki að mæta í skóla fyrr en í september

Fjar­kennsla var tekin upp í spænskum skólum eftir að útgöngu­bannið var sett á, en í umfjöllun El País kemur fram að það hafi verið mjög mis­mun­andi eftir skólum hversu vel sú fjar­kennsla gengur fyrir sig. Skól­arnir hafa verið mis­mun­andi vel tækjum búnir til þess að takast á við skyndi­lega fjar­kennslu allra nem­enda og margir nem­endur, sér­stak­lega af fátæk­ari heim­ilum, hafi ekki greiðan aðgang að góðum tækja­bún­aði.

Í þess­ari viku hafa sér­fræð­ingar sem stjórn­völd skip­uðu í starfs­hóp um fram­hald skóla­starfs lagt fram ráð­legg­ingar til stjórn­valda um að slaufa skóla­ár­inu án þess að nem­endur stígi aftur fæti inn í kennslu­stofur fyrir sum­ar­frí. Spænsk börn munu þannig að öllum lík­indum ekki mæta í skól­ana sína í heila fimm mán­uði.

„Útgöngu­bannið mun ekki taka enda fyrr en liðið verður á maí­mánuð, og þar sem þá verður skóla­árið næstum á enda, var sam­staða um að það væri ekki áhætt­unnar virði,“ sagði Quique Bassat, far­alds­fræð­ingur sem var í starfs­hópnum, í sam­tali við El País.

Í umfjöllun spænska mið­ils­ins kemur fram að þegar skól­arnir taki til starfa á ný muni nem­endur þurfa að vera með grímur og mæta í skól­ann í hollum. Áfram þurfi þannig að styðj­ast að hluta við fjar­kennslu. Enn virð­ist því nokkuð í að lífið kom­ist í eðli­legt far hjá börnum á Spáni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár