Hlutur ferðaþjónustunnar stóð í stað síðustu fjögur ár

Samkvæmt Hag­stof­unni dróg­ust heild­ar­út­gjöld erlendra ferða­manna hér á landi saman milli áranna 2018 og 2019 en juk­ust hjá inn­lendum ferða­mönnum.

Hlutur ferða­þjón­ustu í lands­fram­leiðslu nam 8 pró­sent árið 2019 sam­kvæmt bráða­birgða­nið­ur­stöðum ferða­þjón­ustu­reikn­inga, að því er fram kemur í frétt Hag­stof­unnar í dag.

Til sam­an­burðar nam hlutur ferða­þjón­ust­unnar 8,1 pró­sent árin 2016, 2017 og 2018 sam­kvæmt end­ur­skoð­uðu mati. Hlut­deild ferða­þjón­ustu í lands­fram­leiðslu hefur því nán­ast staðið í stað frá 2016.

Ferða­þjón­ustu­reikn­ingar eru hlið­ar­reikn­ingar þjóð­hags­reikn­inga og er ætlað að leggja mat á hlut ferða­þjón­ust­unnar í hag­kerf­inu og þróun hennar sem atvinnu­greinar. Ferða­þjón­ustu­reikn­ingar taka til útgjalda inn­lendra sem og erlendra ferða­manna.

[adspot]

Neysla íslenskra ferðamanna eykst milli ára

Alls voru komur erlendra ferða­manna hingað til lands tælega 2,6 millj­ónir árið 2019 sem var 8,7 pró­sent fækkun frá fyrra ári. Flestir ferða­menn eru gistifar­þegar sem koma til lands­ins með milli­landa­flugi. Gistifar­þegum fækk­aði um 14,1 pró­sent árið 2019 en gistin­óttum fækk­aði ein­ungis um 1,7 pró­sent. Til sam­an­burðar þá fjölg­aði gistifar­þegum um 5,3 pró­sent árið 2018 en gistin­óttum um 2,3 pró­sent.

Heild­ar­út­gjöld inn­lendra og erlendra ferða­manna námu 552,6 millj­örðum króna árið 2019, sam­kvæmt Hag­stof­unni. Heild­ar­út­gjöld erlendra ferða­manna hér á landi námu 383,4 millj­örðum króna árið 2019 sam­an­borið við 394,2 millj­arða króna árið 2018.

Tæpur fjórð­ungur útgjald­anna var vegna kaupa á gisti­þjón­ustu eða 86,9 millj­arðar króna. Þá greiddu erlendir ferða­menn 75,7 millj­arða til ferða­skrif­stofa og ferða­skipu­leggj­enda og 63,2 millj­arða til inn­lendra flug­fé­laga vegna far­gjalda hingað til lands og ferða inn­an­lands. Neysla inn­lendra ferða­manna nam 138,1 millj­örðum árið 2019, sem er átta millj­örðum meira en árið áður. Önnur neysla nam 31,1 millj­arði króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár