Tveir ákærðir fyrir morðið í Moskvu og þrír til viðbótar í haldi

Búið er að ákæra tvo menn fyrir morðið á á stjórn­ar­and­stæð­ingnum Boris Nemtsov í Moskvu þann 27. febr­úar síð­ast­lið­inn. Menn­irnir komu fyrir rétt í Moskvu í dag. Fram hefur komið í fjöl­miðlum að annar mann­anna, Zaur Dadayev, hafi við­ur­kennt aðild að morð­inu. Hinn mað­ur­inn heitir Anzor Gubashev, en báðir eru þeir sagðir frá Tsjetsjeníu.

Menn­irnir tveir eru ákærðir fyrir að hafa bæði skipu­lagt morðið og myrt Nemtsov. Þeir voru hand­teknir í Ingushetia í Norður-Kákasus­hér­aði, nálægt Tsjetsjeníu.

Þrír til við­bótar hafa verið hand­teknir og eru í haldi lög­reglu vegna ætl­aðra tengsla við morðið. Meðal ann­ars er yngri bróðir Gubashev, Shagid Gubashev, í haldi lög­reglu. Hinir tveir heita Ramzan Bakhayev og Tamerlan Eskerk­hanov. Þeir eru allir sagðir hafa neitað aðild að mál­inu.

Sjötti mað­ur­inn sem var grun­aður um aðild að mál­inu sprengdi sig í loft upp þegar lög­regla reyndi að nálg­ast hann í Tsjetsjeníu. Bislan Shavanov sprengdi sig í loft upp með hand­sprengju sam­kvæmt rúss­neskum fjöl­miðlum þegar lög­regla hafði umkringt húsið sem hann var í.

Ein­hverjir fjöl­miðlar segja nú að í ákæru gegn mönn­unum tveimur komi fram að talið sé að morðið hafi verið framið af hópi manna, og að glæp­ur­inn hafi verið fram­inn í hagn­að­ar­skyni, með öðrum orðum að menn­irnir hafi verið leigu­morð­ingjar.

Orðrómar eru komnir á kreik um að þessir menn séu látnir taka á sig sök­ina fyrir morðið, eða hafi verið ráðnir af stjórn­völdum. Rann­sóknin hefur verið gagn­rýnd mikið af stjórn­ar­and­stæð­ingum, sem telja að Pútín Rúss­lands­for­seti beri ábyrgð á morð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár