„Var ólofaður og ógiftur þegar þetta átti sér stað“

Tómas A. Tómasson þing­maður Flokks fólks­ins hefur birt skjá­skot á Twitter-síðu sinni þar sem hann skrifar til félaga síns þegar hann var staddur í Bangkok árið 2014: „Ein dásam­leg 26 ára ca. 45 kg var að yfir­gefa her­bergið smokk­laust.“

Tómas A. Tómasson þingmaður Flokks fólksins.
Tómas A. Tómasson þing­maður Flokks fólks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

„Kæru twitter vinir þetta skjá­skot er að fara að birt­ast i fjöl­miðlum vil taka fram að ég var ólof­aður og ógiftur þegar þetta átti sér stað en svona er lifið engin veit sína æfi fyrr en öll er.“

Þetta skrifar Tómas A. Tómasson þing­maður Flokks fólks­ins á Twitter í dag.

Ástæðan er frétta­flutn­ingur Vísis af skjá­skoti frá manni sem ræðir við Tómas í skila­boðum árið 2014 sem hann birti á Facebook fyrr í mán­uð­inum en sam­kvæmt Vísi fylgdi þar spurn­ing um það hvort manni sem sendi skila­boð af þessum toga væri sæm­andi að vera þing­maður.

Í skila­boð­unum frá Tómasi, sem er nýlentur í Bangkok, segir: „Ein dásam­leg 26 ára ca. 45 kg var að yfir­gefa her­bergið smokk­laust. En byrj­aði á nudd­kon­unni fyrr í dag, kvöldið er ungt, 20.21.“

Sá sem svarar Tómasi segir: „Mikil öfund hérna. Var bara að enda við æfingu, það er það eina sem ég fæ.“

Tómas svarar: „Elsku karl­inn laet þig vita thegar eg tek eina fyrir thig.“ Hann fær svarið: „Ok en ekki i einu.“

Þing­mað­ur­inn segir í sam­tali við Vísi að hann hafi ekki greitt fyrir kyn­líf í Taílandi sem vísað er til í smá­skila­boðum sem hann sendi til kunn­ingja síns árið 2014. „Ég hitti konu sem er yngri en ég, er það þá frétta­efni?“ spyr Tómas í sam­tali við Vísi. Hann seg­ist enn­fremur skilja að þetta hljómi ekki vel „í ákveðnu sam­hengi“ en spyr hvort ógiftur og ólof­aður maður sem hittir ein­hverjar konur sé sekur.

Uppfært kl. 12:22. Hlekkur á tíst Tómasar var fjar­lægður úr frétt­inni, þar sem Tómas hefur eytt því af Twitter.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár