Eignir lífeyrissjóðanna nálgast fimm þúsund milljarða

Alls juk­ust eignir íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins um 655 millj­arða króna á fyrstu ell­efu mán­uðum síð­asta árs. Erlendu eignir þess hafa næstum tvö­fald­ast frá því að höftum var lyft og inn­lend hluta­bréf gáfu vel af sér í fyrra.

Lífeyrissjóðakerfið á að tryggja sem flestum Íslendingum áhyggjulaust ævikvöld. Eignir þess hafa aukist hratt undanfarið.
Líf­eyr­is­sjóða­kerfið á að tryggja sem flestum Íslend­ingum áhyggju­laust ævi­kvöld. Eignir þess hafa auk­ist hratt und­an­farið. Mynd: Aðsend

Eignir líf­eyr­is­sjóða lands­ins voru 4.900 millj­arðar króna í lok nóv­em­ber 2019 og hækk­uðu um 43 millj­arða króna frá fyrri mán­uði. Alls hækk­aði virði eigna þeirra um 655 millj­arða króna á fyrstu ell­efu mán­uðum síð­asta ár. Þetta kemur fram í nýjum hag­tölum Seðla­banka Íslands um líf­eyr­is­sjóða­kerfið sem birtar voru á föstu­dag.

[links]Það er mun meiri hækkun í krónum talið innan árs en nokkru sinni hefur átt sér stað á eigna­safni alls líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins áður. Á árinu 2017, sem var fyrra metárið, juk­ust eignir sjóð­anna um 403 millj­arða króna og 2018 juk­ust eignir þeirra um 302 millj­ónir króna. Sú hækkun sem varð á eigna­safni þeirra á fyrstu ell­efu mán­uðum síð­asta árs er því 93 pró­sent af sam­an­lagðri hækkun á árunum 2017 og 2018. Vert er að taka fram að ekki er ein­ungis um hækkun vegna ávöxt­unar að ræða heldur aukast inn­greiðslur einnig ár frá ári vegna fjölg­unar í hópi greið­enda og hærri iðgjalds­greiðslna.

Hlut­falls­lega er hækk­unin sem átti sér stað í fyrra þó einnig með því mesta sem sést hefur innan árs. Alls juk­ust eign­irnar um 15,4 pró­sent frá byrjun árs 2019 og til loka nóv­em­ber­mán­aðar. Það er mesta hlut­falls­lega aukn­ing sem orðið hefur á eigna­safn­inu innan eins árs eftir banka­hrun.

[adspot]Mesta hlut­falls­lega hækkun innan árs á síð­ari árum var á árinu 2006, í miðju fyr­ir­hruns góð­ær­inu, þegar eigna­safnið hækk­aði um 23,3 pró­sent innan árs.

Marel lykilbreyta

Stíf fjár­magns­höft sem sett voru síðla árs 2008 gerðu líf­eyr­is­sjóð­unum erfitt fyrir í fjár­fest­ingum og þeir höfðu ekki marga aðra kosti en að binda þá pen­inga sem streymdu frá sífellt fleiri greið­endum í þeim inn­lendu fjár­fest­ingum sem buð­ust. Sjóð­irnir keyptu skulda­bréf af miklum móð og eign­uð­ust þar með stóran bita í skuldum bæði opin­bera og einka­geirans. Alls eiga þeir nú tæp­lega tvö þús­und millj­arða króna í inn­lendum mark­aðs­skulda­bréfum og víxlum. Það þýðir að þeir eiga um 75 pró­sent allra slíkra hér­lendis.

[adspot]Til við­bótar hafa líf­eyr­is­sjóð­irnir, sér­stak­lega á allra síð­ustu árum, verið leið­andi á íbúða­lána­mark­aði og þar af leið­andi tekið sér stöðu sem stórir beinir lán­tak­endur íslenskra heim­ila. Það hafa þeir gert með því að bjóða upp á miklu betri vaxta­kjör en bankar og fyrir vikið hefur hlut­fall skulda heim­ila við líf­eyr­is­sjóði farið úr tíu pró­sentum í yfir 20 pró­sent frá árinu 2016.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir eiga auk þess, beint og óbeint, um helm­ing allra skráðra hluta­bréfa á Íslandi en virði þeirra í lok nóv­em­ber síð­ast­lið­ins var 684 millj­arðar króna. Íslensku hluta­bréfin gáfu vel af sér á síð­asta ári en virði þess eigna­safns líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins hækk­aði um 137 millj­arða króna á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins 2019. Þar skipti mestu máli mikil hækkun á hluta­bréfum í Marel, lang­verð­mætasta félags­ins í íslensku kaup­höll­inni. Hluta­bréf í Marel hækk­uðu um 66 pró­sent á síð­asta ári, en margir líf­eyr­is­sjóðir eru á meðal stærstu hlut­hafa félags­ins.

Erlendu eignirnar hafa nær tvöfaldast

Alls eru 71 pró­sent eigna líf­eyr­is­sjóð­anna inn­an­lands. Frá því að fjár­magns­höftum var lyft snemma árs 2017 hafa þeir þó í auknum mæli beint sjónum sínum að fjár­fest­ingum utan land­stein­anna, bæði til að auka áhættu­dreif­ingu sína og til að kom­ast í fjöl­breytt­ari fjár­fest­ingar en þeim býðst á Íslandi. Hlutfall inn­lendra eigna líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins var á þeim tíma 77 pró­sent og hefur því hlut­falls­lega dreg­ist veru­lega saman, þrátt fyrir góða ávöxtun inn­lendra hluta­bréfa í fyrra.

Í apríl 2017, í kjöl­far þess að höft­unum var lyft, voru erlendar eignir kerf­is­ins 786 millj­arðar króna. Í dag eru þær tæp­lega tvisvar sinnum meiri, eða 1.438 millj­arðar króna. Á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins 2019 hækk­uðu erlendu eign­irnar um 348 millj­arða króna og ljóst að þar er uppi­staðan í þeirri eign­ar­aukn­ingu sem varð til í líf­eyr­is­sjóðum lands­manna á síð­asta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár