Mynd: Bára Huld Beck

Baráttan um lífeyrissjóðina að hefjast af alvöru

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eru stærstu fjár­festar og lán­veit­endur á Íslandi. Þeir eru í eigu sjóðs­fé­laga en ný og rót­tæk verka­lýðs­for­ysta er á þeirri skoðun að atvinnu­rek­endur hafi allt of mikil áhrif innan þeirra.

Eignir íslenskra líf­eyr­is­sjóða voru 4.797 millj­arðar króna í lok ágúst síð­ast­lið­ins. Til að átta sig á því hversu hratt eignir kerf­is­ins eru að vaxa nægir að nefna að þær fóru fyrst yfir eitt þús­und millj­arða króna í byrjun árs 2005 og yfir tvö þús­und millj­arða króna í byrjun árs 2011. Frá því í nóv­em­ber 2012 hafa eign­irnar tvö­fald­ast. Sjóð­irnir eiga nú rúm­lega þriðj­ung heild­ar­fjár­muna á Íslandi.

Þótt líf­eyr­is­sjóð­irnir hafi verið dug­legir að fjár­festa erlendis eftir að höftum var lyft þá eru eignir líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins að uppi­stöðu enn inn­an­lands, eða um 71 pró­sent. Alls eiga sjóð­irnir 3.418 millj­arða króna af eignum í íslensku hag­kerfi. Það eru tvö­falt fleiri krónur en líf­eyr­is­sjóð­irnir bók­færðu sem inn­lendrar eignir í maí 2009.

Stíf fjár­magns­höft gerðu sjóð­unum erfitt fyrir í fjár­fest­ingum og þeir höfðu ekki marga aðra kosti en að binda þá pen­inga sem streymdu frá sífellt fleiri greið­endum í þeim inn­lendu fjár­fest­ingum sem buð­ust. Sjóð­irnir keyptu skulda­bréf af miklum móð og eign­uð­ust þar með stóran bita í skuldum bæði opin­bera og einka­geirans. Alls eiga þeir nú tæp­lega tvö þús­und millj­arða króna í inn­lendum mark­aðs­skulda­bréfum og víxlum. Það þýðir að þeir eiga um 75 pró­sent allra slíkra hér­lendis.

Til við­bótar hafa líf­eyr­is­sjóð­irnir, sér­stak­lega á allra síð­ustu árum, verið leið­andi á íbúða­lána­mark­aði og þar af leið­andi tekið sér stöðu sem stórir beinir lán­tak­endur íslenskra heim­ila. Það hafa þeir gert með því að bjóða upp á miklu betri vaxta­kjör en bankar og fyrir vikið hefur hlut­fall skulda heim­ila við líf­eyr­is­sjóði farið úr tíu pró­sentum í 21 pró­sent frá árinu 2016.

Á manna­máli þýðir það að líf­eyr­is­sjóð­irnir eru stærstu inn­lendu lán­veit­endur íslenska þjóð­ar­bús­ins.

Undirstaðan í íslensku atvinnulífi

Stór hluti íslenskra fyr­ir­tækja var í vand­ræðum eftir banka­hrunið. Það hafði ein­kennst af miklum lán­tökum sem í ein­hverjum til­fellum höfðu nýst í fjár­fest­ingar en í flestum til­fellum voru not­aðar í að kaupa fyr­ir­tæki á yfir­verði og setja síðan hið keypta sem veð fyrir end­ur­greiðslu. Sumarið 2011 birti Sam­keppn­is­eft­ir­litið nið­ur­stöður rann­sóknar sem það gerði á stöðu 120 stórra fyr­ir­tækja á völdum sam­keppn­is­mörk­uðum. Um var að ræða stærstu fyr­ir­tækin á hverjum mark­aði fyrir sig. Þar sagði að 68 pró­sent þess­ara fyr­ir­tækja hefðu verið undir beinum eða óbeinum yfir­ráðum banka eftir hrunið. Talið er að yfir­færa hafi mátt þetta hlut­fall á atvinnu­lífið í heild.

Því voru stórir bitar á fyr­ir­tækja­mark­aði í hönd­unum á end­ur­reistum bönkum sem þurftu að end­ur­skipu­leggja þau og selja. Það var í mörgum til­vikum gert í gegnum hluta­bréfa­markað. Og kaup­end­urnir að hluta­bréfum í fyr­ir­tækj­unum sem búið var að þrífa voru að uppi­stöðu íslenskir líf­eyr­is­sjóðir.

Í dag, rúmum níu árum eftir að end­ur­vakn­ing þess mark­aðar hófst að nýju, er heild­ar­virði þeirra 24 félaga sem skráð eru á aðal­markað og First North tæp­leg 1.200 millj­arðar króna. Líf­eyr­is­sjóð­irnir eiga sam­an­lagt 550,7 millj­arða króna í inn­lendum hluta­bréfum og til við­bótar 104,9 millj­arða króna í hlut­deild­ars­kirteinum í sjóðum sem fjár­festa í slíkum. Sam­an­lagt eiga líf­eyr­is­sjóð­irnir því, beint og óbeint, rúm­lega helm­ing allra hluta­bréfa í land­inu.

Flest félögin á aðal­mark­aði eru rekstr­ar­fé­lög á fákeppn­is­mark­aði sem eru aðal­lega með inn­lenda starf­semi. Þar er að finna smá­sölu­fyr­ir­tæki, elds­neyt­is­sala, fjar­skipta- og fjöl­miðla­fyr­ir­tæki, trygg­ing­ar­fé­lög, flutn­inga­fyr­ir­tæki og nokkur stór fast­eigna­fé­lög, svo fátt eitt sé nefnt. Flest fyr­ir­tækin eiga ekki mikla vaxt­ar­mögu­leika í alþjóð­legu sam­hengi. Líklega er það fyrst og síð­ast Marel, sem er nú tví­skráð í Hollandi, sem gæti flokk­ast með þannig mögu­leika.

Fyrir vikið er um að fyr­ir­tæki sem hafa áhrif á dag­legt líf flestra lands­manna með einum eða öðrum hætti. Og þau eru, að uppi­stöðu, í eigu líf­eyr­is­sjóða sem sömu lands­menn eiga.

Brugðist við í orði

Í ljósi þessa hefur krafan á að líf­eyr­is­sjóðir beiti sér með virk­ari hætti í þeim félögum sem þeir fjár­festa í auk­ist til muna á und­an­förnum árum. Getur líf­eyr­is­sjóður í eigu almenn­ings enda ein­ungis gert þá kröfu að fjár­fest­ing hans skili arð­semi þegar að starf­semi fyr­ir­tækj­anna sem hann fjár­festir í hefur bein áhrif á lífs­gæði og kjör sjóðs­fé­laga? Getur hann látið ótalið þegar for­stjórar taka sér laun sem eru í engu sam­ræmi við það sem er að eiga sér stað ann­ars­staðar í hag­kerf­inu? Og svo fram­vegis.

Slikar kröfur leggj­ast ofan á alþjóð­lega kröfu á þá sem stýra fjár­fest­ingum og fjár­magni um að sýna aukna sam­fé­lags­lega ábyrgð í verki með því að skil­yrða þátt­töku sína í verk­efnum við upp­fyll­ingu sjálf­bærn­is­mark­miða, t.d. varð­andi aukið kynja­jafn­rétti eða umhverf­is­á­herslur.

Brugðist hefur verið við þess­ari kröfu í orði að ein­hverju leyti. Líf­eyr­is­sjóðir hafa sett sér stefnur um ábyrgar fjár­fest­ingar þar sem umhverf­is­mál, félags­leg mál­efni og stjórn­ar­hættir eru öll atriði sem þeir eiga að líta til í fjár­fest­ingum sínum. Auk þess hafa sumir þeirra sett sér hlut­hafa­stefnur um hvernig sjóð­irnir eiga að beita sér sem eig­andi til að upp­fylla þau mark­mið.

Það á við um alla þrjá stærstu sjóð­ina: Líf­eyr­is­sjóð starfs­manna rík­is­ins (LSR), Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna og Gildi. Þeir eru líka aðilar að reglum Sam­ein­uðu þjóð­anna um ábyrgðar fjár­fest­ingar auk þess sem flestir líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eru með­limir í Iceland SIF, sam­tökum sem hafa þann til­gang „að efla þekk­ingu fjár­festa á aðferða­fræði sjálf­bærra og ábyrgra fjár­fest­inga og auka umræður um ábyrgar og sjálf­bærar fjár­fest­ingar.“

Á borði hefur hins vegar verið lítið um að líf­eyr­is­sjóð­irnir hafi beitt sér mikið til að sveigja félög sem þeir fjár­festa í til sam­fé­lags­legra áherslna. Það sést til að mynda best á því að ekki ein kona er for­stjóri í skráðu félagi og ein­ungis 20 pró­sent fram­kvæmda­stjóra innan þeirra eru konur. Það er helst að það hafi gerst hjá Gildi, sem ákvað að selja hluti sína í Brimi vegna end­ur­tek­inna við­skipta félags­ins við önnur í eigu for­stjóra og stærsta eig­anda Brims.

Við eigum Ísland, við eigum bara eftir að taka það

Mikil und­ir­alda hefur mynd­ast vegna þess­arar stöðu. Ein birt­ing­ar­mynd hennar er að mun rót­tæk­ari og her­skrárri verka­lýðs­for­ysta hefur kom­ist til valda í stærstu verka­lýðs­fé­lögum lands­ins og innan Alþýðu­sam­bands Íslands. Og hún telur sig geta tekið til sín miklu meiri völd um hvernig sam­fé­lagið þró­ast.

Sverrir Mar Alberts­son, fram­kvæmda­stjóri AFLs starfs­greina­sam­bands, sem tap­aði for­manns­kosn­ingum í ASÍ í fyrra náði ágæt­lega utan um þessa afstöðu á fundi sem Efling stóð fyrir á meðan að for­manns­bar­áttan stóð yfir. Þar sagði hann: „Stundum þegar ég vil fá jarð­teng­ingu við hvað ég er að gera þá fer ég í bækur sem hafa verið skrif­aðar, t.d. saga verka­lýðs­fé­lag­anna. Fyrsta verka­lýðs­fé­lagið fyrir austan er stofnað 1896. Þegar maður les fund­ar­gerðir frá fyrstu fund­unum ... þetta er fólk sem bjó í nán­ast mold­ar­kofum, áhyggju­efnin voru hvort að börnin fengu mat dag­inn eftir. Menn voru settir út á kaldan klaka og fengu ekki atvinnu ef þeir voru í for­ystu fyrir verka­lýðs­fé­lagið. Í dag, félögin sem þetta fólk stofn­aði, við eigum Ísland. Það eina sem við eigum eftir að gera er að taka það.“

Mót­fram­bjóð­andi Sverris, Drífa Snædal sem síðar vann for­manns­kosn­ing­arnar, sagð­ist vera honum sam­mála.

Drífa Snædal og Sverrir Mar Albertsson á fundinum fyrir um ári síðan. Mynd: Úr safni
Drífa Snædal og Sverrir Mar Alberts­son á fund­inum fyrir um ári síðan. Mynd: Úr safni

Verka­lýðs­for­ystan getur mjög sýni­lega haft áhrif á fjár­fest­inga­stefnu líf­eyr­is­sjóða, enda skipar hún fjölda stjórn­ar­manna í sjóð­ina. Efling hefur til að mynda mikil áhrif í stjórn Gildis og hefur þegar látið kjósa Stefán Ólafsson, pró­fessor við Háskóla Íslands og sér­fræð­ing hjá félag­inu, í stjórn hans.

VR er komið enn lengra í ferli sínu til að hafa veru­leg áhrif innan Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna. Þar skipar VR helm­ing stjórn­ar­manna og er með stjórn­ar­for­manns­sætið sem stendur. Við­mæl­endur Kjarnans segja ljóst að Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, hafi lengi haft það að meg­in­stefnu að hafa meiri áhrif á það hvernig þessi næst stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins, með um 800 millj­arða króna eignir, beitir sér í íslensku sam­fé­lagi.

Eftir að Ragnar Þór var end­ur­kjör­inn for­maður fyrr í ár, og kjör ann­arra stjórn­ar­manna skömmu síðar styrkti stöðu hans veru­lega, hafa verkin verið látin tala.

Fyrstu skrefin stigin, stóru skrefin framundan

Á fundi sem hald­inn var í full­­­­­­­­trú­a­ráð­i VR í Líf­eyr­is­­­­­­­­sjóð­i verzl­un­­­­ar­­­­manna ­í júní síð­­­­ast­liðnum var sam­­­­­­­­þykkt að aft­­­­­­­­ur­­­­­­­­kalla umboð stjórn­­­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­manna VR í stjórn Líf­eyr­is­­­­­­­­sjóðs verzl­un­­­­ar­­­­manna og var að auki sam­­­­­­­­þykkt til­­­­­­­­laga um nýja stjórn­­­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­menn til­­­­­­ bráða­birgða. Áður­­­­­­ hafði stjórn­­­­­­ VR­­­ lýst yfir trún­­­­­­­­að­­­­­­­­ar­bresti gagn­vart stjórn­­­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­mönnum félags­­­­­­­­ins hjá sjóðnum vegna sam­­­­­­­­þykktar stjórnar hans um hækkun breyt­i­­­­­­­­legra vaxta verð­­­­­­­­tryggðra sjóð­­­­­­­­fé­laga­lána.

Ragnar Þór sagði, þegar þetta stóð yfir, að lík­­­­­­­lega væri það eina ­leiðin til raun­veru­­­­­legra breyt­inga að sjóð­­­­­fé­lagar líf­eyr­is­­­­­­sjóð­anna kjósi stjórnir þeirra beint. Þannig væri hægt að aftengja atvinn­u­lífið og verka­lýðs­hreyf­­­­ing­una sem hann sagði að væri í ákveð­inn­i ­mót­­­­sögn við sjálfa sig sem fjár­­­­­­­magns­eig­anda. Skömmu síðar sagði hann að þau ítök sem atvinnu­rek­endur hafi náð innan líf­eyr­is­sjóð­anna séu engan veg­inn ásætt­an­legt og að það hljóti að vera mark­mið verka­lýðs­hreyf­ing­unn­ar að losa sjóð­inn undan því oki.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur boðað mun róttækari stefnu gagnvart atvinnulifinu og fjármagnseigendum en áður tíðkaðist hjá félaginu.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, hefur boðað mun rót­tæk­ari stefnu gagn­vart atvinnu­lif­inu og fjár­magns­eig­endum en áður tíðk­að­ist hjá félag­inu.

Skömmu síðar sagði hann að þau ítök sem atvinnu­rek­endur hafi náð innan líf­eyr­is­sjóð­anna séu engan veg­inn ásætt­an­legt og að það hljóti að vera mark­mið verka­lýðs­hreyf­ing­unn­ar að losa sjóð­inn undan því oki.

Við­mæl­endur Kjarnans segja að í und­ir­bún­ingi séu miklar breyt­ingar hjá líf­eyr­is­sjóðnum, gangi áform VR eftir. Þar verði litið bæði fram á við, með breyttum áherslum í fjár­fest­ingum og beit­ingu hlut­hafa­valds, og aftur á bak með rann­sóknum á gjörn­ingum sem grunur sé um að hafi ekki verið fram­kvæmdir með hags­muni sjóðs­fé­laga að leið­ar­ljósi. Þar er efst á blaði salan á hlut Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna í Bakkavör sem Ragnar Þór hefur opin­ber­lega sagt að gæti verið eitt stærsta fjársvika­mál Íslands­sög­unnar og farið fram á opin­bera rann­sókn á hvort líf­eyr­is­sjóðir hafi verið blekktir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár