Vildu takmarkanir á arðgreiðslum fyrirtækja sem nýta viðspyrnu- og lokunarstyrki

Samþykkt var á þingi í gær að fram­lengja bæði við­spyrnu- og lok­un­ar­styrki en í sam­þykktu frum­varpi mátti einnig finna sér­stakan barna­bóta­auka. ASÍ vildi að svipuð skil­yrði hefðu verið sett fyrir styrkj­unum líkt og sett voru vegna nýt­ingar á hluta­bótum.

Alþýðu­sam­band Íslands lýsir yfir von­brigðum með að ekki hafi verið gerðar tak­mark­anir á arð­greiðslum fyr­ir­tækja sem hyggj­ast nýta sér við­spyrnu- og lok­un­ar­styrki stjórn­valda vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Þetta kemur fram í umsögn ASÍ við frum­varp um leng­ingu úrræða og við­bætur en frum­varpið var sam­þykkt á Alþingi í gær. Í umsögn­inni segir að tak­mörkun á arð­greiðslum hafi verið sett sem skil­yrði fyrir nýt­ingu hluta­bóta og taldi sam­bandið því rétt að sama ætti við um fyr­ir­tæki sem ætli sér að nýta styrk­ina sem um ræðir.

Í frum­varp­inu var heim­ild fyr­ir­tækja til að nýta sér lok­unar- og við­spyrnu­styrki fram­lengd, gild­is­tími lok­un­ar­styrkja er nú til loka sept­em­ber og við­spyrnu­styrkir eru í gildi út árið. Hámarks­fjár­hæðir styrkja var hækkuð og nú geta tengdir rekstr­ar­að­ilar mest fengið 260 millj­ónir króna í stað 120 millj­óna áður. Þá voru skil­yrði fyrir við­spyrnu­styrkjum útvíkkuð þannig að fyr­ir­tæki þurfa nú að sýna fram á 40 pró­sent sam­drátt hið minnsta til að geta fengið slíkan styrk en áður var gerð krafa um 60 pró­sent tekju­sam­drátt.

Breyt­ingar er snúa að hámarks­fjár­hæð styrkja og að nýju lág­marki tekju­sam­dráttar munu gilda aft­ur­virkt.

Einnig var sér­stakt bráða­birgða­á­kvæði um sér­stakan barna­bóta­auka í frum­varp­inu. Hann er að fjár­hæð 30.000 króna með hverju barni í þeim til­vikum þar sem ákvarð­aðar eru tekju­tengdar barna­bætur til fram­fær­enda.

Fór í gegnum aðra og þriðju umræðu í gær

Í áður­nefndri umsögn ASÍ er sagt að áhersla skuli lögð á ábyrga ráð­stöfun rík­is­fjár­muna. Sam­bandið telur rétt að gerð sé sú krafa að fyr­ir­tæki sem þiggi styrki hafi ekki starf­semi í skatta­skjólum og geti ekki úthlutað arði í þrjú ár eftir styrk­veit­ingu.

Fjórar aðrar umsagnir bár­ust við frum­varpið sem var afgreitt á til­tölu­lega skömmum tíma en því var útbýtt 3. maí síð­ast­lið­inn og fór í gegnum aðra og þriðju umræðu í þing­inu í gær.

Samtök ferða­þjón­ust­unnar fögn­uðu frum­varp­inu en gerðu athuga­semd við það að sett væri lág­mark á tekjur fyr­ir­tækja frá jan­úar til októ­ber 2020. Til þess að geta fengið við­spyrnu­styrk þurfa fyr­ir­tæki að hafa haft að minnsta kosti 500 þús­und krónur í tekjur á því tíma­bili. Nefndu sam­tökin dæmi af fyr­ir­tæki sem orðið hefði fyrir 95 pró­senta sam­drætti í tekjum á tíma­bil­inu og hefði haft um 400 þús­und krónur í tekjur, það gæti því ekki fengið við­spyrnu­styrk.

Félag atvinnu­rek­enda fagn­aði frum­varp­inu sömu­leiðis en lagði til að gerð væri aft­ur­virk breyt­ing á skil­yrðum fyrir lok­un­ar­styrkjum þannig að þeir rekstr­ar­að­ilar sem hefðu lokað vegna þess að þeir töldu sér það skylt gætu fengið lok­un­ar­styrk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár