Ísland fyrst Schengen-ríkja til að gefa út rafræn bólusetningarvottorð

Lönd sunn­ar­lega í Evrópu vilja svör við því hvort að sam­ræmd bólu­setn­ing­ar­vott­orð séu vænt­an­leg á næst­unni. Annað sumar án ferða­manna myndi hafa skelfi­legar afleið­ingar.

Einná ferð á alþjóðaflugvellinum í Aþenu í Grikklandi.
Einná ferð á alþjóða­flug­vell­inum í Aþenu í Grikk­landi. Mynd: EPA

Yfirvöld á Íslandi hófu í síð­ustu viku að gefa út raf­ræn COVID-19 bólu­setn­ing­ar­vott­orð, fyrst Schengen-ríkja. Þeir sem fengið hafa báðar spraut­urnar af bólu­efn­unum sem þegar eru komin á markað hér á landi geta fengið slík vott­orð. Yfir 4.500 manns á Íslandi eru nú full­bólu­settir gegn COVID-19 og geta þar með sótt um vott­orð í gegnum Heilsu­veru. Sjö dagar þurfa þó að líða frá síð­ari spraut­unni þar til vott­orð er gefið út. Ekki liggur fyrir hjá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu eða emb­ætti land­læknis hversu margir hafa sótt sér slík vott­orð. Þá hefur emb­ætti land­læknis ekki upp­lýs­ingar um í hvaða löndum þessi vott­orð eru tekin gild.

Vott­orðið er að efni og útliti í sam­ræmi við fyr­ir­liggj­andi evr­ópska staðla og alþjóð­lega bólu­setn­ing­ar­skír­teinið sem ferða­langar þekkja. „Mark­miðið er að greiða för fólks milli landa, þannig að ein­stak­lingar geti fram­vísað bólu­efna­vott­orði á landa­mærum og séu þá und­an­þegnir sótt­varna­ráð­stöf­unum vegna COVID-19 í sam­ræmi við reglur hlut­að­eig­andi lands,“ sagði í frétt á vef heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins í síð­ustu viku.

[adspot]

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði hins vegar á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í gær að málið væri allt í byrj­un­ar­ferli. Athygl­is­vert yrði að sjá hvað aðrar þjóðir ætla að gera og mæl­ast til hvað bólu­setn­ing­ar­vott­orð varðar. Í það væri ekki enn komin end­an­leg nið­ur­staða og þar með ekki hvort að slík vott­orð verði tekin gild á landa­mærum. „Þetta er í svo­lít­illi óvissu. Við eigum eftir að skýra lín­urnar í þessu betur,“ sagði sótt­varna­læknir.

Meðal ann­arra ríkja Evrópu sem eru langt komin í und­ir­bún­ingi slíkra vott­orða eru Spánn og Danmörk. Bæði ríkin hyggj­ast sam­hliða aflétta ferða­hömlum á rík­is­borg­urum ann­arra landa sem geta fram­vísað við­ur­kenndum vott­orðum.

Samræmt vottorð til umræðu

Rætt hefur verið um að fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins kynni sam­ræmd vott­orð sem öll sam­bands­ríkin taki svo upp. Grísk stjórn­völd hafa óskað eftir því sem fyrst svo auð­velda megi sem fyrst ferða­lög fólks innan ESB. Í sunn­an­verðri Evrópu, þar sem ferða­þjón­ustan er helsta stoð undir efna­hag ríkja, er nokkur þrýst­ingur á að hraða þessu ferli. Þannig er von­ast til þess að bólu­setn­ing­ar­vott­orðin geti hleypt lífi í ferða­sum­arið og ýti þar með hjólum atvinnu­lífs­ins af stað á ný. En mörg ljón eru enn í veg­inum.

Mörg Evr­ópu­lönd, þar með talin Norð­ur­löndin, hafa hert aðgerðir sínar á landa­mærum síð­ustu daga og vikur. Ferða­tak­mark­anir hafa víða ekki verið jafn miklar frá því að far­ald­ur­inn braust út.

Þola þau annað sumar án ferðamanna?

Ferðalög voru lítil milli landa síð­asta sumar og það hafði miklar afleið­ingar fyrir lönd á borð við Grikk­land, Spán, Ítalíu og Portúgal. Þar, líkt og víða ann­ars staðar, var von­ast eftir því að sum­arið 2021 yrði mun betra hvað þetta varðar. En vonin hefur dvínað eftir að far­ald­ur­inn tók sig hressi­lega upp aftur og einnig vegna þess að bólu­setn­ing virð­ist ætla að ganga hægar fyrir sig, að minnsta kosti næstu vik­urnar, en vænt­ingar voru um.

For­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, Kyriakos Mitsotakis, vill að málin fari að skýr­ast sem fyrst. Annað sumar án ferða­manna yrði Grikkjum gríð­ar­lega erfitt. Hann vill svör við því hvort að til standi að hefja útgáfu sam­ræmdra bólu­setn­ing­ar­skír­teina sem myndu þá greiða leið hand­hafa þeirra milli landa ESB. Málið er nú komið inn á borð fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins og var það eitt helsta umræðu­efni fundar leið­toga ESB-ríkja fyrir helgi.

Óvissu­þætt­irnir í augna­blik­inu eru enn mjög margir. Ástæða þess að mörg ríki hafa að und­an­förnu hert aðgerðir á landa­mærum er sú að smitum hefur fjölgað víða. Sömu­leiðis sjúkra­húsinn­lögnum og dauðs­föllum. Það á sér aftur skýr­ingu í hraðri útbreiðslu nýrra afbrigða veirunnar, afbrigða sem eru meira smit­andi en önnur og óvíst er hvort bólu­efni veiti nægj­an­lega vörn gegn. Því hafa ríki mörg hver ákveðið að toga fast í hand­brems­una.

[links]Svo harka­lega reyndar að útgöngu­bann hefur nú verið sett á í Hollandi og landa­mær­unum nær alveg lokað. Það sama íhuga nú Bretar að gera á sínum landa­mærum enda gríð­ar­legt álag á sjúkra­húsum þar í landi. Á meðan þessu stendur eru sam­ræmd bólu­setn­ing­ar­vott­orð ekki efst á for­gangs­list­anum. Fyrst þarf að slökkva elda.

Stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins von­ast til þess að aðild­ar­löndin verði búin að bólu­setja fram­línu­fólk og alla eldri en átta­tíu ára fyrir lok mars. Í sumar er svo von­ast til að um 70 pró­sent íbúa innan sam­bands­ins hafi fengið bólu­setn­ingu. „Í sumar“ (by sum­mer) er reyndar nokkuð teygj­an­legt hug­tak.

Geta þau orðið sammála?

Í frétt Aften­posten um málið er bent á að heil­brigð­is­mál eru ekki á ábyrgð stjórnar ESB. Sú ábyrgð hvílir á hverju aðild­ar­ríki fyrir sig. Þess vegna getur ESB ekki tekið þessa ákvörðun – stóla þarf á sam­stöðu ríkj­anna allra þegar kemur að sam­ræmdu bólu­setn­ing­ar­vott­orði. Og í ljósi þess að nokkuð vant­aði upp á sam­ræmdar aðgerðir við upp­haf far­ald­urs­ins fyrir ári síðan heyr­ast efa­semd­araddir um að sam­staða verði um útgáfu vott­orð­anna.

Nokkur lönd hafa þegar lýst yfir efa­semdum ákveðnum um bólu­setn­ing­ar­vott­orðin, m.a. Þýska­land og Frakk­land. Þá hafa mann­rétt­inda­sam­tök bent á að slík vott­orð mis­muni hópum, t.d. íbúum fátæk­ari ríkja/svæða sem eru sein­astir í röð­inni að fá bólu­setn­ingu. Einnig hafa áhyggjur af per­sónu­vernd verið viðr­aðar. Þá spyrja margir: Ef bólu­setn­ing verður gerð að skil­yrði fyrir ferða­lögum – verður það þannig um ókomna fram­tíð?

Flestir jákvæðir

Nið­ur­staða fundar ESB-leið­toga fyrir helgi var sú að mörg ríki eru jákvæð gagn­vart sam­ræmdu bólu­setn­ing­ar­vott­orði en fá vilja ganga eins langt og Grikk­land, þ.e. að slík vott­orð heim­ili fólki frjálsa för milli Schengen-land­anna.

Fram­kvæmda­stjórnin stað­festi í síð­ustu viku að verið væri að vinna að sam­ræmdum raf­rænum vott­orðum. Það yrði gert í sam­vinnu allra ESB-ríkja og per­sónu­vernd­ar­sjón­ar­miða gætt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár