Snjallúr geta fundið merki um COVID-sýkingu

Vís­inda­menn við Stanford-háskóla hafa fundið upp aðvör­un­ar­kerfi í snjallúr sem láta not­and­ann vita ef merki um sýk­ingu finn­ast í lík­am­anum.

Snjallúr geta greint merki um sýkingar mjög snemma.
Snjallúr geta greint merki um sýk­ingar mjög snemma.

Vís­inda­menn við lækna­deild Stanford-háskóla hafa þróað app fyrir snjallúr sem láta not­endur úranna vita ef lík­ami þeirra sýnir ein­hver merki um að vera að berj­ast við sýk­ingu. Meðal merkja sem úrið nemur er breyt­ing á hjartslætti.

Appið notar reikni­for­skrift sem merkir breyt­ingar á hvíld­ar­púlsi not­and­ans sem og fjölda skrefa sem hann tekur. Í rann­sókn sem gerð var í tengslum við þróun apps­ins kom í ljós að það fann í 63 pró­sent til­fella ummerki um sýk­ingu af völdum nýju kór­ónu­veirunnar áður en aug­ljós lík­am­leg ein­kenni gerðu vart við sig. Í þeim til­fellum sem appið gaf ranga nið­ur­stöðu getur skýr­ingin t.d. falist í lyfja­notkun við­kom­andi, segir Michael Snyder, pró­fess­or­inn sem leiddi rann­sókn­ina og þróun apps­ins. Hana má einnig mögu­lega rekja til þess að við­kom­andi hafi verið á ferð og flugi eða hafi verið á ákveðnum stað í tíða­hringnum.

[adspot]

Appið er enn í þróun en stefnt er að því að reikni­for­skriftin verði aðgengi­leg um tíu millj­ónum manna innan skamms. Stefnt er að því að not­endur Fitbit-úra fái fyrstir að njóta þess en svo stendur til að gera það aðgengi­legt fyrir úr ann­arra fram­leið­enda sem og í aðrar gerðir tækja sem nema stöðugt lífs­mörk fólks.

Það sem appið gerir er að senda not­anda úrs­ins við­vörun þegar það finnur breyt­ingar á lík­ams­starf­semi, annað hvort gula eða rauða. Snyder segir mik­il­vægt fyrir not­endur að gera sér grein fyrir því að appið getir ekki greint COVID-19 sýk­ingu frá öðrum sýk­ingum. A‘ minnsta kosti ekki enn sem komið er.

Hann segir að mark­miðið sé ekki ein­fald­lega það að láta fólk vita að það sé orðið veikt heldur að finna merki um sýk­ingar snemma og áður en lík­am­leg ein­kenni fara að gera vart við sig. Á meðan far­aldri COVID-19 stendur gæti slíkt við­vör­un­ar­kerfi nýst fólki til að taka ákvörðun um að fara í ein­angrun fyrr en ella og að fara í sýna­töku. Segir Snyder að appið geti fundið merki um sýk­ingu tíu dögum áður en ein­kennin koma almennt fram.

Einkennalausir geta smitað aðra

Veiran sem veldur COVID-19 er þeim eig­in­leikum gædd að ein­kenni vegna sýk­ingar af hennar völdum geta dulist í marga daga og þar með er aukin hætta á að sá sem sýkst hefur smiti aðra á þessu tíma­bili.

Vin­sældir snjallúra eru miklar og margir not­endur þeirra hafa þau á sér allan sól­ar­hring­inn. Það þýðir að úrið er stöðugt að fylgj­ast með lík­ams­starf­semi á borð við hjart­slátt. Úrin „læra“ svo inn á hvern og einn not­anda og greina því merki um breyt­ingar á venju­legum hjartslætti af nokk­urri nákvæmni.

Rannsókn vís­inda­mann­anna við Stanford-háskóla hófst þegar í mars á síð­asta ári. Þá voru sjálf­boða­liðar fengnir til sam­starfs og báru þeir Fitbit-snjallúr. Af 5.000 þátt­tak­endum sýkt­ust 32 af COVID-19 og í 26 til­vikum mátti greina frá­vik í hvíld­ar­púls sem átti sér ekki eðli­legar skýr­ingar. Vís­inda­menn­irnir komust einnig að því að þeir sem höfðu sýkst gengu að með­al­tali 1.440 færri skref og sváfu að með­al­tali hálf­tíma lengur en þeir sjálf­boða­liðar sem ekki höfðu sýkst.

Í kjöl­farið var þróað við­vör­un­ar­kerfi. Appið lætur við­kom­andi vita með „gulu spjaldi“ ef ein­hverjar breyt­ingar grein­ast sem fylgj­ast ætti með eða með „rauðu spjaldi“ sem táknar álag án aug­ljósrar skýr­ingar. Ef sá sem með úrið gengur veit hver ástæðan fyrir frá­vik­inu er, t.d. áfeng­is­neysla eða mikil hæð yfir sjáv­ar­máli, getur hann ein­fald­lega afskrifað við­vör­un­ina. Ef hann hefur engar skýr­ingar getur verið að hann hafi fengið sýk­ingu sem lík­am­inn er að reyna að vinna á og ætti því að ein­angra sig og fara í sýna­töku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár