Mynd: Bára Huld Beck

Ef 20 þúsund fara á hlutabætur þá kostar það 12,8 milljarða

Miklar breyt­ingar hafa verið gerðar á frum­varpi sem er ætlað að gera fyr­ir­tækjum í vanda kleift að minnka starfs­hlut­fall starfs­manna en gera þeim kleift að sækja hluta­bætur í Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóð á móti.

Rík­is­stjórnin reiknar með að ef 20 þús­und ein­stak­lingar muni semja um lækkað starfs­hlut­fall við atvinnu­rek­anda sinn, og nýti sér það að fá hluta­bætur úr Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóði á móti mun heild­ar­kostn­aður Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóðs vegna þessa bráða­birgða­úr­ræðis verða 12,8 millj­arðar króna. Sá heild­ar­kostn­aður er reikn­aður út frá þeim for­sendum að greiðslur hluta­bóta standi yfir frá 15. mars til 1. júní, eða í tvo og hálfan mánuð.

þetta kemur fram í kostn­að­ar­mati sem félags­mála­ráðu­neytið hefur sent til vel­ferð­ar­nefndar Alþingis fyrir fund hennar sem fram fer á eftir klukkan 18, og Kjarninn hefur undir höndum.

Á fund­inum stendur til að fjalla um breyt­ingar á frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar um breyt­ingar á lögum um atvinnu­leys­is­trygg­ingar og lögum um Ábyrgð­ar­sjóð launa, vegna sér­stakra aðstæðna á vinnu­mark­að­i, sem lagt var fram af Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og barna­mála­ráð­herra, og var upp­haf­lega afgreitt úr rík­is­stjórn síð­ast­lið­inn föstu­dag.

Umtalsverðar breytingar á frumvarpinu

Frum­varpið mun taka tölu­verðum breyt­ingum. Samkvæmt þeim drögum frum­varps­ins sem Kjarninn hefur séð þá eru helstu breyt­ing­arnar þær að starfs­fólk sem er með allt að 700 þús­und krónur í mán­að­ar­laun mun geta fengið allt að 90 pró­sent launa sinna á tíma­bil­inu ann­ars vegar frá vinnu­veit­anda og hins vegar í formi atvinnu­leys­is­bóta. Þeir sem eru með undir 400 þús­und krónur á mán­uði munu fá 100 pró­sent launa sinna. Upp­haf­lega var hlut­fallið sem hægt var að fá greitt 80 pró­sent af launum upp að 650 þús­und krónum á mán­uði og engar sér­stakar ráð­staf­anir gerðar til að verja launa­lægsta hóp­inn.

Þá hefur sú breyt­ing verið gerð á frum­varp­inu að starfs­maður getur nú að hámarki lækkað í 25 pró­sent starfs­hlut­fall og fengið greiðslur á móti, en áður var það hámarks­hlut­fall 50 pró­sent.

Við­mæl­endur Kjarnans segja að frum­varpið gæti enn tekið breyt­ingum áður en fundur vel­ferð­ar­nefndar hefst í dag, og ofan­greindar tölur eru settar fram með þeim fyr­ir­vara.

Var harðlega gagnrýnt í umsögnum

Upp­haf­lega þegar frum­varpið var lagt fram af Ásmundi Einari fól það í sér að fyr­ir­tæki sem myndi skuld­binda sig til að greiða starfs­fólki 50 til 80 pró­sent launa sinna áfram myndi geta sóst eftir því að það starfs­fólk gæti fengið atvinnu­leys­is­bætur á móti launum frá vinnu­veit­enda.

ASÍ gagnrýndi frumvarpið nokkuð harðlega í umsögn sinni. Drífa Snædal er forseti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck.
ASÍ gagn­rýndi frum­varpið nokkuð harð­lega í umsögn sinni. Drífa Snædal er for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck.

Heild­ar­greiðslur áttu aldrei að geta numið hærri fjár­hæð en 80 pró­sentum af með­al­tali launa og ekki meira en 650 þús­und krónur í heild­ina. Frum­varpið var harð­lega gagn­rýnt í umsögnum um það og bentu full­trúar laun­þega meðal ann­ars á að fyrir ein­stak­linga á lægstu laun­unum myndi sú inn­byggða launa­lækkun sem hluta­bæt­urnar fælu í sér skila því að þeir færu úr 317 þús­und krónum fyrir skatta í 254 þús­und krónur á mán­uði. Í umsögn ASÍ sagði: „Þessi hópar geta ekki tekið á sig slíka lækkun tekna.“

Tekið hefur verið til­lit til þess­ara athuga­semda og áður­nefndar breyt­ingar lagðar til á frum­varp­inu.

Tíminn styttur

Í kostn­að­ar­mati félags- og barna­mála­ráðu­neyt­is­ins kemur fram að Vinnu­mála­stofnun áætli að um 23 þús­und manns hafi verið starf­andi í ferða­þjón­ustu­tengdum greinum í febr­úar. Í mat­inu er áætlað að ef 20 þús­und ein­stak­lingar semji um lækkað starfs­hlut­fall við vinnu­veit­anda sinn í tvo og hálfan mánuð, frá 15. mars til 1. júní, þá muni heild­ar­kostn­aður Atvinnu­trygg­inga­sjóðs nema 12,8 millj­örðum króna.

Upp­haf­lega átti að vera hægt að sækja um hluta­bætur til 1. júlí og heim­ildir Kjarnans herma að kostn­að­ar­mat til þess tíma, út frá sömu for­sendum, væri að slíkt myndi kosa Atvinnu­trygg­inga­sjóð 19 millj­arða króna.

Því liggur fyrir að tíma­bilið sem þessi ráð­stöfun á að ná til hefur verið stytt um einn mánuð sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi drögum um breyt­ingar á frum­varp­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár