Almenningur hefur trú á sóttvarnaraðgerðum – og að þær muni skila árangri

Samkvæmt nýjum nið­ur­stöðum könn­unar á þátt­töku og afstöðu Íslend­inga til aðgerða almanna­varna bendir allt til þess að mik­ill meiri­hluti almenn­ings hafi fylgt til­mælum strax í upp­hafi.

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Alma Möller landlæknir.
Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn, Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir og Alma Möller land­læknir. Mynd: Lögreglan

Mikill meiri­hluti almenn­ings fylgdi til­mælum almanna­varna strax í upp­hafi. Trú almenn­ings á aðgerð­irnar og að þær myndu skila árangri var sömu­leiðis mjög sterk, jafn­vel á meðan far­ald­ur­inn var í fullum vexti. Þetta gerð­ist jafn­vel þótt sektir og lög­reglu­af­skipti hafi verið sjald­gæf og að mun meiri áhersla hafi verið á að höfða til borg­ara­legrar skyldu en beit­ingu við­ur­laga.

Þetta kemur fram í nýjum nið­ur­stöðum könn­unar á þátt­töku og afstöðu Íslend­inga til aðgerða almanna­varna, sem Félags­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands hefur unnið að í sam­starfi við fræða­fólk á Félags­vís­inda­sviði Háskóla Íslands.

Enn fremur segir að sam­hliða opinni upp­lýs­inga­gjöf hafi verið lögð áhersla á ávinn­ing sam­fé­lags­ins af aðgerð­unum, frekar en á ávinn­ing ein­stak­linga. Slagorð aðgerð­anna, „við erum öll Almanna­varnir“ sé dæmi um hvernig send hafa verið skila­boð um að yfir­völd og almenn­ingur séu á sama báti. Útbreidd þátt­taka almenn­ings í sótt­varn­ar­að­gerðum sé lík­leg til að hafa átt veiga­mik­inn þátt í hægum vexti far­ald­urs­ins.

Mikilvægar spurningar um hegðun almennings á tímum óvissu og hættu

Í grein á Vís­inda­vef Háskóla Íslands, þar sem nið­ur­stöð­urnar eru kynntar, er ferlið rakið. „Þegar fyrsta smitið af COVID-19 sjúk­dómnum greind­ist á Íslandi föstu­dag­inn 28. febr­úar höfðu almanna­varnir stjórn­valda skipu­lagt sam­hæfða aðgerð­ar­á­ætlun til að hægja á útbreiðslu far­ald­urs­ins hér­lendis. Fyrst um sinn fólu aðgerð­irnar í sér að ein­angra smit­aða ein­stak­linga og setja þá sem sýndu ein­kenni eða höfðu verið á áhættu­svæðum erlendis í 14 daga sótt­kví. Tveimur vikum síðar, 13. mars, var sett á sam­komu­bann og þann 24. mars var sam­komu­bannið hert veru­lega; ekki máttu fleiri en 20 manns safn­ast saman og lík­ams­ræktar- og sund­stöðum var lokað, auk ýmissa ann­arra tak­mark­ana. Enn fremur fylgdu leið­bein­ingar og til­mæli til almenn­ings ekki aðeins um hand­þvott heldur var almenn­ingur beð­inn um að tak­marka sam­skipti og halda tveggja metra fjar­lægð milli ein­stak­linga sem ekki búa saman á heim­ili.“

Samkvæmt höf­und­unum, sem eru þau Ari Klængur Jónsson, verk­efna­stjóri á Félags­vís­inda­stofnun, Guðbjörg Andrea Jóns­dóttir, for­stöðu­maður Félags­vís­inda­stofn­unar, Jón Gunnar Bernburg, pró­fessor í félags­fræði við HÍ, Magnús Þór Torfason, lektor við við­skipta­fræði­deild HÍ, Sigrún Ólafs­dóttir, pró­fessor í félags­fræði við HÍ og Ævar Þór­ólfs­son, verk­efna­stjóri á Félags­vís­inda­stofn­un­Þessir, vekja þessir tímar upp mik­il­vægar spurn­ingar um hegðun almenn­ings á tímum óvissu og hættu. Ljóst hafi verið frá upp­hafi að sam­komu­bannið og leið­bein­andi til­mælin yrðu íþyngj­andi fyrir ein­stak­linga, fyr­ir­tæki og atvinnu­líf. Engu að síður hafi aðgerð­irnar falið í sér þá for­sendu að unnt væri að fá mik­inn meiri­hluta almenn­ings til þess að breyta dag­legu lífi sínu í einu vet­fangi á grund­velli vís­inda­legra vænt­inga um árangur opin­berra aðgerða í for­dæma­lausu óvissu­á­standi.

„Afar mik­il­vægt er að kort­leggja hegðun og afstöðu almenn­ings með til­liti til þess­ara aðgerða, á meðan far­ald­ur­inn hefur gengur yfir. Sú vit­neskja verður ekki síst verð­mæt eftir að far­ald­ur­inn hefur gengið yfir og vís­inda­fólk fer í þá vinnu að meta árangur aðgerð­anna,“ segir í grein­inni.

Könnunin var send til 400 ein­stak­linga á hverjum degi og þannig var hægt að greina hvernig afstaða Íslend­inga breytt­ist yfir tíma. Þegar greinin var skrifuð, mánu­dagur 20. apríl, virt­ist fyrsta bylgja COVID-19 vera í rénum. Hápunktur í aukn­ingu smita var í sein­ustu viku mars­mán­aðar en hápunktur virkra smita var 5. apríl. Nið­ur­stöður segja til um þróun í þátt­töku í og afstöðu almenn­ings til sótt­varn­ar­að­gerð­anna dag­ana 1. til 19. apríl.

Aðgerðirnar taldar trúverðugar

Fram kemur hjá grein­ar­höf­undum að til þess að hámarka trú­verð­ug­leika aðgerða og efla áhrif þeirra hafi þeir sér­fræð­ingar sem að aðgerðum stóðu mætt á dag­lega blaða­manna­fundi og sagt frá stöð­unni, farið yfir þær for­sendur sem þeir störf­uðu eftir og setið fyrir svörum fjöl­miðla­fólks sem oft spurði gagn­rýnna spurn­inga.

Nið­ur­stöður benda til þess að aðgerð­irnar hafi fengið afar mik­inn trú­verð­ug­leika, jafn­vel á meðan far­ald­ur­inn var ennþá í veru­legum vexti. Allt frá 1. apríl hefur mik­ill meiri­hluti svar­enda, yfir 95 pró­sent, haft þá trú á að sótt­varn­ar­að­gerðir myndu „mjög lík­lega“ eða „frekar lík­lega“ skila þeim árangri að hægja veru­lega á far­aldr­inum. Eins og við mætti búast eykst fjöldi þeirra sem segja það „mjög lík­legt“ eftir að far­ald­ur­inn byrjar að réna undir lok tíma­bils­ins, en þá skoðun hafa 70 pró­sent svar­anda í nýj­ustu mæl­ing­unni frá 19. apríl.

Meirihluti almennings tók tilmæli almannavarna alvarlega

Í grein­inni segir að það að fólk hafi trú á aðgerð­unum teng­ist óneit­an­lega því hvort að fólk álíti það mik­il­vægt að fylgja til­mæl­unum og upp­lifun þess á hvort aðrir geri slíkt hið sama. Nið­ur­stöður benda sterk­lega til þess að mik­ill meiri­hluti almenn­ings hafi tekið til­mæli almanna­varna alvar­lega, en tæp­lega 90 pró­sent svar­enda hafa fylgt þessum til­mælum að frekar miklu eða öllu leyti allt tíma­bilið sem skoðað er.

Einstaklingar líklegri til þess að taka þátt þegar þeir telja að þátttaka annarra sé útbreidd

Enn fremur segja grein­ar­höf­undar að ítrekað hafi sann­ast í rann­sóknum í félags­vís­indum að ein­stak­lingar séu jafnan miklu lík­legri til þess að taka þátt í atferli eða starf­semi þegar þeir telja að þátt­taka ann­arra sé útbreidd. Þegar ein­stak­lingar telja marga aðra vera að taka þátt verði þeir lík­legri til þess að líta svo á að þátt­takan sé ekki aðeins sjálf­sögð og eðli­leg heldur sið­ferði­lega rétt. Nið­ur­stöð­urnar sem koma fram á mynd­unum hér að neðan eru eft­ir­tekt­ar­verðar í þessu til­liti, sam­kvæmt grein­ar­höf­undum.

Fyrri myndin sýnir að milli 71 og 85 pró­sent svar­enda hafi þá upp­lifun að þeir aðilar sem þeir eru í mestum sam­skiptum við fylgi til­mælum almanna­varna að mjög miklu eða öllu leyti. En mikið dregur úr þessu hlut­falli þegar svar­endur eru spurðir um hegðun allra ann­arra í sam­fé­lag­inu; en ein­ungis á milli 34 og 47 pró­sent svar­end­anna töldu að Íslend­ingar almennt væru að fara eftir til­mæl­unum að miklu eða öllu leyti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár