Breskir fræðimenn: „Við getum gert meira, við eigum að gera meira, við verðum að gera meira“

Yfir eitt hund­rað breskir fræði­menn á sviði stjórn­mála, stjórn­sýslu, lög­fræði og sér­fræð­ingar í mál­efnum inn­flytj­enda og flótta­manna, hafa skrifað for­sæt­is­ráð­herra og inn­an­rík­is­ráð­herra Bret­lands, David Cameron og Theresu May, bréf þar sem þess er kraf­ist að bresk stjórn­völd breyti stefnu sinni og geri miklu meira til þess að hjálpa flótta­fólki í Evrópu. Bréfið er birt í New Statesman.

„Við, und­ir­rituð, höfum helgað okkur því að búa til félags­lega rétt­látan heim. Við verjum ferli okkar í að styðja við og ýta undir rann­sóknir, frum­kvæði og verk­efni sem munu skapa sann­gjarn­ara og rétt­lát­ara sam­fé­lag fyrir alla. [...] Við teljum að núver­andi afstaða rík­is­stjórn­ar­innar í evr­ópsku flótta­manna­krís­unni sé mis­ráðin og þarfn­ist bráðra breyt­inga,“ segir í upp­hafi bréfs­ins.

Stolt hefð fyrir hjálpsemi


Í bréf­inu kemur fram að í Bret­landi sé löng og stolt hefð fyrir því að veita þeim skjól sem það þurfi. „Tekið var á móti þús­undum evr­ópskra gyð­inga af stjórn­völdum á fjórða og fimmta ára­tug síð­ustu aldar, og þeim bjargað frá hörm­ungum fas­isma og útrým­ingu nas­ista.“ Þá hafi Bretar verið meðal stofn­að­ila að Gen­far­sátt­mál­anum um flótta­fólk, tugum þús­unda hafi verið bjargað undan harð­stjórn Idi Amin á átt­unda ára­tugnum og á níunda ára­tugnum hafi þús­undum verið bjargað frá Víetnam. „Nýlega höfum við gefið þús­undum flótta­manna, sem flúðu átök í Afríku, Mið­aust­ur­löndum og ann­ars staðar frá grið­ar­stað.“

Bent er á að ekki þurfi að leita langt til að finna fólk sem hafi notið góðs af þessu. Sumir sitji með for­sæt­is­ráð­herr­anum og inn­an­rík­is­ráð­herr­anum í þing­inu. „Priti Patel, atvinnu­mála­ráð­herra ykkar, en for­eldrar hans flúðu harð­stjórn Idi Amin í Úganda. Nadeem Zahawi, þing­maður Strat­ford-upon-Avon, sem kom til Bret­lands sem níu ára gam­alt barn frá Írak, hluti einnar af fjöl­mörgum fjöl­skyldum sem flúðu Saddam Hussein.“ Í stjórn­ar­and­stöð­unni sé svo til að mynda Ed Miliband, en faðir hans hafi náð síð­asta bátnum til Bret­lands þegar nas­istar réð­ust inn í Belgíu.

„Flótta­menn og afkom­endur þeirra hafa lagt gríð­ar­mikið til allra hliða bresks sam­fé­lags. Sumir eru frægir inn­an­lands og á alþjóða­vett­vangi, aðrir leggja bresku sam­fé­lagi lið hljóð­lega og byggja upp líf fyrir sig og fjöl­skyldur sínar. Allt þetta fólk á allt sitt undir grund­vall­ar­göf­ug­lyndi fyrri for­sæt­is­ráð­herra. Slíkt göf­ug­lyndi þarf nauð­syn­lega að sýna aftur núna.“

[quote font="0" align="right"]Það er eins og að skilja fólk eftir í brenn­andi bygg­ingu af því að það að bjarga þeim muni ekki slökkva eld­inn. Við þurfum að gera meira til að leysa átökin á þessu svæði. En fyrst verðum við að hjálpa fleirum sem eru settir í hættu vegna þess­ara átaka.“[/quote]

Fáránlegur málflutningur


Fræði­menn­irnir gagn­rýna þann mál­flutn­ing að ekki eigi að hjálpa neinum af því að ekki sé hægt að hjálpa öllum. Það sé einnig engin rök­færsla á bak við það að segj­ast ekki vilja taka við þeim sem nú þegar hafa flúið til Evrópu, vegna þess að það muni ekki leysa vand­ann. „Það er eins og að skilja fólk eftir í brenn­andi bygg­ingu af því að það að bjarga þeim muni ekki slökkva eld­inn. Við þurfum að gera meira til að leysa átökin á þessu svæði. En fyrst verðum við að hjálpa fleirum sem eru settir í hættu vegna þess­ara átaka.“

„Afstaða núver­andi stjórn­valda er slæm stefna, slæm stjórn­mál og svik við stolta breska hefð. Það er skammar­legt fyrir okkur sem þjóð að við höfum gert svona lítið, og það er greini­legur stuðn­ingur við breyt­ingar á stefn­unni alls staðar á hinu póli­tíska rófi.“

Í lok bréfs­ins eru ráð­herr­arnir hvattir til þess að halda á lífi þeim hefðum sem Bretland hafi haft í heiðri. „Sýnið þeim, sem úthella stuðn­ingi sínum við þá sem eru í sárri neyð en finnst þeir van­máttugir til hjálpa, að bresk stjórn­völd séu ennþá afl til góðs í heim­inum. Við getum gert meira. Við eigum að gera meira. Við verðum að gera meira. For­sæt­is­ráð­herra og inn­an­rík­is­ráð­herra, hlustið á raddir kollega ykkar í Evrópu, raddir kollega ykkar í flokknum ykkar og öðrum flokkum, og raddir kjós­enda ykkar þegar við segjum: Leyfið þeim að koma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár