Björt Ólafsdóttir: Fólki er misboðið

Leynd­ar­hyggja var við­höfð og fólk í Bjartri fram­tíð gat ekki hugsað sér að starfa í henni.

Björt Ólafsdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar og umhverfisráðherra.
Björt Ólafs­dóttir, þing­maður Bjartrar fram­tíðar og umhverf­is­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Björt Ólafs­dóttir, umhverf­is­ráð­herra, segir að flokks­menn hafi verið alveg sam­stíga um að lengra væri ekki kom­ist í rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu.

Hún segir að trún­að­ar­brest­ur­inn í sam­starf­inu hafi falist í því, að Bjartri fram­tíð hafi ekki verði treyst fyrir upp­lýs­ingum sem skiptu sköpum í þeirri atburða­rás sem nú hefur leitt rík­is­stjórn­ina á enda­stöð.

Þetta kom fram í við­tali við morg­un­út­varpið á RÚV.

Hún segir að það hafi hafi komið á óvart, og „leynd­ar­hyggja verið við­hafin“, þegar Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra lét Bjarna Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra vita af því, í júlí mán­uði, að faðir hans, Benedikt Sveins­son, væri meðal með­mæl­enda í umsókn Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar, barn­a­níð­ings, um upp­reista æru.

[adspot]

Þetta séu vinnu­brögð sem hún telji ekki sam­ræm­ast góðri stjórn­sýslu, og að innan Bjartrar fram­tíðar sé þetta ekki sam­þykkt. Hún sagð­ist telja eðli­legt að boða til kosn­inga, eins á mál stæðu nú.

Stjórn Bjartrar fram­tíðar ákvað í gær­kvöldi að slíta sig frá rík­is­stjórn­ar­sam­starfi með Sjálf­stæð­is­flokknum og Viðreisn.

Þing­flokkur Við­reisnar hefur þegar sent frá sér til­kynn­ingu, þar sem hann telur eðli­legt að boða til kosn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnarkreppa

Mest lesið undanfarið ár