Einkabílar bannaðir í Osló og aðrir ferðamátar settir í forgang

Einka­bílar verða bann­aðir í mið­borg Osló árið 2019 til þess að draga úr mengun. Þeir sem ferð­ast um borg­ina í almenn­ings­sam­göngum, sam­floti, fót­gang­andi og hjólandi verða settir í for­gang fram yfir einka­bíla. Þetta kemur fram í stefnu­yf­ir­lýs­ingu nýs meiri­hluta borg­ar­stjórn­ar­innar, en í fyrsta sinn eru Græn­ingjar í meiri­hluta borg­ar­stjórnar. Verka­manna­flokk­ur­inn og Sós­í­aliski vinstri­flokk­ur­inn eru einnig í meiri­hlut­anum, og Marianne Borgen er nýr borg­ar­stjóri.

Þetta er í fyrsta sinn sem til stendur að gera mið­borg evr­ópskrar höf­uð­borgar bíl­lausa með þessum hætti, en gripið hefur verið til tíma­bund­inna lokanna sums staðar, eins og í París. Meiri­hlut­inn ætlar sér líka að helm­inga útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda fyrir árið 2020.

Með því að loka fyrir bíla­um­ferð verður mið­borgin betri fyrir gang­andi og hjólandi veg­far­endur, segir meiri­hlut­inn. Til stendur að leggja að minnsta kosti 60 kíló­metra af hjóla­stígum og göngu­stígum í mið­borg­inni fyrir árið 2019 og fjár­festa veru­lega í almenn­ings­sam­göngum. Stræt­is­vagnar og spor­vagnar munu keyra um mið­borg­ina og einka­bílar fatl­aðs fólks og vöru­bílar sem flytja vörur til versl­ana munu fá að keyra um mið­borg­ina áfram. Á næstu árum verða gerðar til­raunir með lok­anir fyrir einka­bíla auk þess sem meiri­hlut­inn seg­ist ætla að kynna sér reynslu ann­arra borga.

„Við erum ánægð með að hafa komið okkur saman um sögu­lega sterka stefnu í lofts­lags­málum. Þetta mun setja Osló í for­ystu grænu hreyf­ing­ar­innar,“ segir Lan Marie Nguyen Berg, leið­togi Græn­ingja, við norska rík­is­út­varpið NRK.

Minni­hlut­inn í borg­inni hefur strax gagn­rýnt þessi áform og leið­togi Fram­fara­flokks­ins í Osló, Carl I. Hagen, segir meiri­hlut­ann byggja á óraun­særri draum­sýn. „Það sem litla Osló gerir hefur enga þýð­ingu fyrir umhverfið,“ segir hann við NRK. Þá hafa versl­un­ar­eig­endur í mið­borg­inni lýst yfir ótta við áformin, en eru reiðu­búin til að ræða við meiri­hlut­ann um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár