Útvarpsstjóri segir stöðu RÚV galna - Illugi gaf vilyrði fyrir peningunum

Magnús Geir Þórð­ar­son útvarps­stjóri segir að það sé skýr vilji Illuga Gunn­ars­sonar, mennta- og menn­ing­ar­ráð­herra, að útvarps­gjald til RÚV lækki ekki. Á opnum fundi fjár­laga­nefndar í gær­kvöldi sagði hann:„Þetta er auð­vitað algjör­lega galið, algjör­lega galin staða fyrir okkur að vera í og fyrir marga aðra. Við erum búin að vera að vinna í átta mán­uði eftir plani sem lagt var upp af ráð­herra og ráðu­neyti og við erum að gera áætl­anir þar sem þetta er fast í hendi. Við viljum fá botn í þetta, þannig að fjár­mögn­unin sé tryggð, í það minnsta til fjög­urra ára svo við þurfum ekki að standa í þessu á hverju ein­asta ári.“ Frá þessu er greint á Eyjunni.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra er, sam­kvæmt nýlegri frétt í Morg­un­blað­inu, sá sem kemur í veg fyrir að frum­varp Illuga um að útvarps­gjald verði óbreytt á næsta ári, verði afgreitt úr rík­is­stjórn. Samkvæmt frum­varp­inu átti útvarps­gjaldið að vera áfram 17.800 krónur en ekki lækka í 16.400 krónur, líkt og fjár­laga­frum­varpið gerir ráð fyrir.

Í frétt blaðs­ins sem birt­ist á mið­viku­dag sagði að frum­varpið sé mjög umdeilt í báðum stjórn­ar­flokk­unum.Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar, og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, vara­for­maður fjár­laga­nefndar, séu til að mynda bæði ein­dregið þeirrar skoð­unar að útvarps­gjaldið eigi að lækka. Þar var einnig haft eftir ónafn­greindum þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins að hann teldi að meiri­hluti þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks væri and­vígur frum­varp­inu og sömu sögu sagði ónafn­greindur þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Fjórir stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna lögðu fram breyt­ing­ar­til­lögu við fjár­laga­frum­varpið þriðju­dag um að útvarps­gjaldið yrði óbreytt á næsta ári. Hún var felld.

Tekjur RÚV munu drag­ast saman um hátt í fimm hund­ruð millj­ónir króna á næsta ári ef útvarps­gjaldið verður lækkað. Stjórn­endur RÚV hafa sagt að þeir muni ekki geta upp­fyllt þjón­ustu­samn­ing sinn við ríkið ef af verður.

Magnús Geir sagði á fund­inum í gær­kvöldi að það myndi sjást veru­lega á dag­skrár­liðum RÚV ef gjaldið myndi lækka þar sem leikið efni á íslensku myndi minnka. Hann gaf sterk­lega í skyn að segja þyrfti upp starfs­mönnum ef af yrði þar sem launa­kostn­að­ur­inn væri stærsti útgjalda­lið­ur­inn. Samkvæmt Eyjunni sagði Magnús Geir að minna íslenskt efni myndi leiða til „dómínó-áhrifa“ þar sem hagn­aður af aug­lýs­inga­sölu myndi lækka í kjöl­farið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár