Sigmundur Davíð sagður standa í vegi fyrir afgreiðslu RÚV-frumvarps

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra kemur í veg fyrir að frum­varp Illuga Gunn­ars­sonar, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, um að útvarps­gjald verði óbreytt á næsta ári, verði afgreitt úr rík­is­stjórn. Samkvæmt frum­varp­inu átti útvarps­gjaldið að vera áfram 17.800 krónur en ekki lækka í 16.400 krónur, líkt og fjár­laga­frum­varpið gerir ráð fyrir. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu.

Í blað­inu segir að frum­varpið sé mjög umdeilt í báðum stjórn­ar­flokk­unum. Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar, og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, vara­for­maður fjár­laga­nefndar, eru til að mynda bæði ein­dregið þeirrar skoð­unar að útvarps­gjaldið eigi að lækka. Í Morg­un­blað­inu er haft eftir ónafn­greindum þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins að hann teldi að meiri­hluti þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks væri and­vígur frum­varp­inu og sömu sögu sagði ónafn­greindur þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Fjórir stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna lögðu hins vegar í gær fram breyt­ing­ar­til­lögu við fjár­laga­frum­varpið um að útvarps­gjaldið yrði óbreytt á næsta ári.

Tekjur RÚV munu drag­ast saman um hátt í fimm hund­ruð millj­ónir króna á næsta ári ef útvarps­gjaldið verður lækkað. Það myndi þýða stór­tækan nið­ur­skurð á dag­skrá og þjón­ustu, með til­heyr­andi upp­sögnum starfs­fólks. Stjórn­endur RÚV hafa sagt að þeir muni ekki geta upp­fyllt þjón­ustu­samn­ing sinn við ríkið ef af verður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár