Grikkir greiddu 200 milljónir til AGS í dag - viðræður ganga betur

Grikkir náðu að borga 200 millj­óna evra end­ur­greiðslu af lánum til Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins í dag. Merki þykja um það að samn­inga­við­ræður um aukin neyð­ar­lán til Grikkja séu að skila árangri.

Grikkir eiga að borga mun stærri afborgun af lánum sínum til Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins á þriðju­dag­inn í næstu viku, 770 millj­ónir evra. Útlit er fyrir að þeir muni eiga í tals­verðum erf­ið­leikum með að greiða þá afborgun, auk þess sem síðar í þeirri viku þarf að standa skil á greiðslum líf­eyris og launa opin­berra starfs­manna.

Grikkir þurfa 7,2 millj­arða evra frá Evr­ópu­sam­band­inu og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum, en enn er verið að semja um skil­yrði þessa neyð­ar­láns. Lítið hefur gengið í þessum við­ræðum und­an­farna mán­uði en að sögn ónefndra emb­ætt­is­manna í Brussel, sem AP frétta­stofan ræddi við í dag, hefur loks­ins rofað eitt­hvað til í við­ræð­unum. Ákveðið var á síma­fundi for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, Alexis Tsipras, og Jean-Claude Juncker, for­seta fram­kvæmda­stjórnar ESB, að halda við­ræð­unum áfram á morgun. Þeir sögðu svo í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu að þeim hefði orðið nokkuð ágengt í við­ræðum und­an­far­inna daga.

Meðal þeirra umbóta sem Grikkir eiga að ráð­ast í til að fá neyð­ar­lán eru breyt­ingar á líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu og vinnu­mark­aðnum.

Grísk stjórn­völd hafa þegar skipað opin­berum stofn­unum og sveit­ar­fé­lögum að flytja vara­sjóði sína inn á reikn­ing í seðla­banka Grikk­lands, þar sem hægt verði að nota féð sem lán til rík­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár