Meirihluti Skota myndi kjósa með sjálfstæði ef kosið yrði núna

Meiri­hluti Skota myndi kjósa með sjálf­stæði ef gengið yrði til kosn­inga um sjálf­stæðið á nýjan leik, sam­kvæmt nýrri könnun STV í Skotlandi.

53 pró­sent aðspurðra segj­ast myndu segja já við sjálf­stæði ef kosið yrði á morgun. 44 pró­sent myndu segja nei, og þrjú pró­sent sögð­ust óákveðin. Þetta er fyrsta könn­unin frá því að þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan fór fram í sept­em­ber síð­ast­liðnum sem bendir til þess að meiri­hluti sé fyrir sjálf­stæði, þegar óákveðnir eru teknir með í reikn­ing­inn.

Helm­ingur aðspurðra sagð­ist jafn­framt styðja það að önnur þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla yrði haldin á næstu fimm árum og 58 pró­sent á næstu tíu árum.

Þá myndu 52 pró­sent styðja nýja þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði ef Bretar kjósa að yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni sem á að fara fram um það mál árið 2017. 41 pró­sent segj­ast styðja nýja þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu ef ákveðið verður að fram­lengja Trident kjarn­orku­á­ætl­un­inni og 50 pró­sent ef það verður sam­þykkt að Eng­lend­ingar kjósi um lög sem gilda í Englandi.

Mikil ánægja með Skoska þjóðarflokkinn


Þegar kosið var um sjálf­stæðið fyrir rétt tæpu ári síðan varð nið­ur­staðan sú að 55,3 pró­sent Skota sögðu nei við sjálf­stæði en 44,7 pró­sent vildu sjálf­stæði. Kjörsókn var 84,5 pró­sent. Margir áttu von á því að nið­ur­staðan yrði til þess að minnka fylgi við Skoska þjóð­ar­flokk­inn, en raunin varð allt önnur.

Flokk­ur­inn vann sann­kall­aðan stór­sigur í bresku þing­kosn­ing­unum fyrr á árinu, fór úr því að hafa 6 af 59 þing­sætum Skotlands í Westminster og í það að hafa 56 af 59 sætum.

Flokk­ur­inn mynd­aði fyrstu meiri­hluta­stjórn sína í heima­stjórn­inni í Skotlandi eftir kosn­ingar þar árið 2011. Í könn­un­inni sem gerð var fyrir STV í síð­ustu viku heldur flokk­ur­inn meiri­hluta sínum í þing­inu í næstu kosn­ingum, sem verða í maí á næsta ári.

Flokk­ur­inn myndi fá 74 þing­sæti af þeim 129 sem eru í skoska þing­inu, Holyrood. Flokk­ur­inn er með 69 sæti núna. Íhalds­flokk­ur­inn héldi sínum 15 þing­sætum, Græn­ingjar myndu bæta við sig og fá 8 þing­menn, en bæði Verka­manna­flokk­ur­inn og Frjáls­lyndir demókratar myndu tapa fylgi. Verka­manna­flokk­ur­inn færi úr 37 þing­mönnum í 26 og Frjáls­lyndir demókratar færu úr sjö í sex.

Sömu­leiðis var kann­aður stuðn­ingur við leið­toga í könn­un­inni. 71 pró­sent aðspurðra sögð­ust ánægð með störf Nicolu Sturgeon, fyrsta ráð­herra Skotlands og for­manns Skoska þjóð­ar­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár