Staða ungra barnafjölskyldna á Íslandi slæm

Efnislegur skortur barna hér á landi hefur aukist verulega samkvæmt tölum UNICEF.
Efn­is­legur skortur barna hér á landi hefur auk­ist veru­lega sam­kvæmt tölum UNICEF. Mynd: Birgir Þór

Tæplega níu þús­und börn á Íslandi líða efn­is­legan skort þegar kemur að hús­næð­inu sem þau búa í. Þetta sýna nið­ur­stöður nýrrar rann­sóknar UNICEF á Íslandi, en rann­sóknin var kynnt í morgun.

Staðan á hús­næð­is­mark­aði hefur mikil áhrif á vel­ferð barna, og UNICEF segir stöðu leigj­enda hér á landi vera sér­stakt áhyggju­efni. Mikil munur er á stöð­unni eftir því hvort börnin búi í leigu­hús­næði for­eldra eða í eigin hús­næði for­eldra. Næstum eitt af hverjum fimm börnum, eða 19% barna á leigu­mark­aði, liðu skort sam­kvæmt nýj­ustu tölum, sem eru frá árinu 2014, sem er þrefalt meira en árið 2009. Ef for­eldr­arnir eiga hús­næðið er hlut­fall barna sem líða skort í hús­næð­is­málum 6,2%. Ef for­eldr­arnir leigja eru börnin jafn­framt lík­legri til að líða skort á öllum öðrum sviðum sem mæld eru.

Þröng­býli hefur auk­ist veru­lega og er algeng­asta ástæða þess að börn búa við skort þegar kemur að hús­næði. Einnig er algengt að ekki komi næg dags­birta inn um glugga hús­næð­is­ins.

Heildarskortur barna meira en tvöfaldast

Börn telj­ast líða skort ef þau skortir tvennt eða fleira af því sem spurt er um í lífs­kjara­rann­sókn Evr­ópu­sam­bands­ins, sem Hagstofa Íslands hefur umsjón með hér á landi. Tvær kann­anir hafa verið gerðar á lífs­kjörum barna, árið 2009 og árið 2014. Greining UNICEF á þessum tölum leiðir það í ljós að 9,1% barna liðu skort árið 2014, sem er meira en tvö­falt fleiri börn en liðu skort árið 2009. 9,1% sam­svarar um 6.000 börnum.

Á sama tíma­bili hefur hlut­fall þeirra barna sem líða veru­legan skort hefur þre­fald­ast á sama tíma, og er nú 2,4%, eða sem sam­svarar tæp­lega 1.600 börnum. Börn sem líða veru­legan skort skortir alla­vega þrjú atriði á list­anum.

Þau sjö svið sem skoðuð eru í lífs­kjara­rann­sókn­inni eru nær­ing, klæðn­aður, menntun, upp­lýs­ingar, hús­næði, afþrey­ing og félags­líf.

Árið 2009 skorti 77,1% barna á Íslandi ekki neitt, en árið 2014 hafði sú tala lækkað niður í 60,6%. Þegar skoðað er hversu mikið börn á Íslandi skortir kemur í ljós að dæmi eru um að börn hér á landi líði skort í öllum sjö flokk­unum sem spurt er um. Það eru 0,2% barna, eða sem sam­svarar 147 börnum. 

Utan hús­næðis liðu börn helst skort hvað varðar félags­líf. Talið er að um 3.400 börn hér á landi búi við slíkan skort, oft­ast vegna þess að þau geta ekki boðið vinum sínum heim til að borða eða leika við. Litlu færri börn líða skort á sviði klæðn­aðar, en oft­ast er það vegna þess að þau eiga ekki tvenn pör af skóm sem passa á þau. Þá líða 3.200 börn á Íslandi skort á sviði afþrey­ingar, vegna þess að þau eiga ekki leik­tæki, leik­föng eða íþrótta­búnað, eða bækur sem henta aldri þeirra. 

Staða foreldranna skiptir öllu máli

Nýjar grein­ing­ar­að­ferðir hjá UNICEF gera þeim nú kleift að taka inn bak­grunns­breytur og skoða gögnin út frá þeim. Í ljós kemur að mik­ill munur er á stöðu barn­anna eftir menntun for­eldra. Börn for­eldra með grunn­menntun eru lík­legri til að líða skort á öllum sviðum en börn háskóla­mennt­aðra. 18,2 pró­sent barna for­eldra með grunn­menntun liðu skort, 12 pró­sent þeirra sem áttu for­eldra með fram­halds- og starfs­menntun og sex pró­sent þeirra sem áttu for­eldra með háskóla­menntun.

Börn for­eldra í lægsta tekju­fimmt­ungnum eru líka nær alltaf lík­legri til að líða skort en börn þeirra sem eru í hæsta tekju­bil­inu. UNICEF segir koma í ljós þegar rýnt sé í nið­ur­stöð­urnar með til­liti til sam­fé­lags­hópa að staða ungra barna­fjöl­skyldna á Íslandi sé slæm. „Staða barna sem eiga unga for­eldra er erfið og það sama má segja um pör með eitt barn. Hvað gerir að verkum að börn for­eldra með eitt barn og for­eldra sem eru yngri en 30 ára mæl­ast tals­vert lík­legri til að líða skort en önnur börn? Af hverju eykst hlut­fall þeirra barna sem líða skort í þessum hópi umfram aðra hópa á milli 2009 og 2014?“ Þessa hluti þurfi að kanna nánar.

Algeng­ast er að börn líði skort ef þau eiga for­eldra sem vinna minna en 50% vinnu og niður í enga vinnu, þar með talið börn þeirra sem eru atvinnu­lausir. Meira en fjórð­ungur þess­ara barna líður skort. Næst þar á eftir koma börn for­eldra sem eru yngri en 30 ára og svo börn for­eldra sem eru á leigu­mark­aði.

Vilja frekari rannsóknir

UNICEF segir að margar af nið­ur­stöð­unum af rann­sókn­inni valdi áhyggjum. Aukinn skortur á félags­lífi og afþr­ey­ingu sé hættu­merki og raun­veru­leg hætta á að hluti barna sé og verði félags­lega ein­angr­aður. Drengir mæl­ast frekar með skort heldur en stúlkur, sér­stak­lega hvað varðar félags­líf. „Er drengjum hætt­ara við félags­legri ein­angrun? Hvers vegna? Til að svara þessum spurn­ingum - og öðrum sem vakna - þarf að ráð­ast í ítar­legri rann­sóknir.“

Brýnt sé jafn­framt að gögnum um þessi mál sé mark­visst safnað og þau gerð aðgengi­leg.

UNICEF tekur þó líka sér­stak­lega fram að rann­sóknin segi ekki alla sög­una, þrátt fyrir að skýrslan sé full af upp­lýs­ingum og tölu­legum stað­reyndum. Ekkert er fjallað um upp­lifun barn­anna sjálfra á skort­inum, og ekk­ert um þörf fyrir kær­leika, góða umönnun og stuðn­ing frá for­eldrum eða for­sjárað­ilum. „Þeir þættir skipta einnig sköpum fyrir þroska og vel­ferð barna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár