Svona hafa laun ríkisforstjóra hækkað

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra kall­aði nýverið eftir upp­lýs­ingum frá póli­tískt skip­uðum stjórnum rík­is­fyr­ir­tækja um launa­hækk­anir for­stjóra slíkra. Tilmæli höfðu verið send út um að hækka ekki launin upp úr öll hófi. Það var ekki farið eftir þeim til­mælum

Þann 12. febr­úar síð­ast­lið­inn sendi fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið bréf til stjórna fyr­ir­tækja í rík­i­s­eigu þar sem óskað var eftir því hvernig þau hefðu brugð­ist við til­mælum sem þáver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Benedikt Jóhann­es­son, sendi til þeirra 6. jan­úar 2017. Tilmælin í bréfi Bene­dikts voru ein­föld: stillið öllum launa­hækk­unum for­stjóra rík­is­fyr­ir­tækja í hóf eftir að ákvarð­anir um laun þeirra fær­ist undan kjara­ráði og til stjórn fyr­ir­tækj­anna, en það gerð­ist um mitt ár 2017.

Af­rit af bréf­inu var síðan sent til allra stjórn­anna dag­inn áður en að ný lög um kjara­ráð, sem færðu launa­á­kvörð­un­ar­vald frá ráð­inu til stjórna opin­beru fyr­ir­tækj­anna, tóku gildi í byrjun júlí 2017. Þá fund­aði Benedikt með stjórnum stærri félaga þann 10. ágúst 2017 þar sem farið var yfir efni bréfs­ins.

Fyrir hefur legið að stjórnir flestra stærri fyr­ir­tækja í opin­berri eigu huns­uðu þessi til­mæli algjör­lega. Í bréf­unum sem núver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, sendi út var stjórn­unum gef­inn frestur til 20. febr­úar til að útskýra mál sitt. Svar­bréfin voru hins vegar ekki birt á vef ráðu­neyt­is­ins fyrr en 6. mars síð­ast­lið­inn, eða tveimur vikum eftir að sá frestur rann út.

Ríkisstarfsmenn leiðandi í launaþróun

Rík­is­starfs­menn hafa verið leið­andi í launa­þróun á und­an­förnum árum. Sumir slíkir hópar hafa hækkað í launum um tugi pró­senta í einu. Frægasta dæmið um slíkt var þegar kjara­ráð ákvað að opin­bera, á kjör­dag 2016, að laun for­­­seta Íslands, þing­far­­­ar­­­kaup alþing­is­­­manna og laun ráð­herra yrðu hækkuð umtals­vert. Sam­­­kvæmt úrskurði kjara­ráðs urðu laun for­­­seta Íslands 2.985.000 krónur á mán­uði, þing­far­­­ar­­­kaup alþing­is­­­manna 1.101.194 krónur á mán­uði, laun for­­­sæt­is­ráð­herra að með­­­­­töldu þing­far­­­ar­­­kaupi varð 2.021.825 krónur á mán­uði og laun ann­­­arra ráð­herra að með­­­­­töldu þing­far­­­ar­­­kaupi urðu 1.826.273 krónur á mán­uði. Laun for­­­sæt­is­ráð­herra voru áður tæp­­­lega 1,5 millj­­­ónir en laun for­­­seta voru tæpar 2,5 millj­­­ón­­­ir. Laun þing­­­­manna hækk­­­­uðu hlut­­­­falls­­­­lega mest við ákvörðun Kjara­ráðs, eða um 44,3 pró­­­­sent.

Skömmu áður, eða um sum­arið 2016, höfðu laun skrif­stofu­stjóra í ráðu­neytum, og laun aðstoð­ar­manna ráð­herra sem miða við skrif­stofu­stjóra­launin, verið hækkuð um allt að 35 pró­sent. Þau urðu þá um 1,2 millj­ónir króna á mán­uði.

Miðgildi heild­ar­launa á Íslandi árið 2017 var til sam­an­burðar 618 þús­und krónur á mán­uði. Það þýðir að helm­ingur launa­manna var með lægri laun en það og helm­ingur með hærri. Að með­al­tali voru heild­ar­laun full­vinn­andi launa­manna hér­lendis á því ári 706 þús­und krónur.

Tölurnar hér að ofan sýna að hópur hátekju­fólks, hífir með­al­talið upp frá mið­gild­inu.

Einn slíkur hópur sem er með laun langt yfir með­al­tali eru for­stjórar opin­berra fyr­ir­tækja.

Bankarnir borga vel

Kjarninn tók saman allar hækk­anir launa helstu rík­is­for­stjóra sem ráð­ist var í þegar ákvörðun um laun þeirra var færð til póli­tískt skip­aðra stjórna þeirra þann 1. júlí 2017.

Það kemur kannski ekki á óvart en launa­hæstu rík­is­for­stjór­arnir tveir stýra sitt­hvorum rík­is­bank­anum.

Íslands­banki var að mestu í eigu kröfu­hafa Glitnis fyrstu árin eftir hrun. Í stöð­ug­leika­samn­ing­unum sem gerðir voru árið 2015 var hins vegar samið um að eign­ar­hald hans myndi fær­ast til íslenska rík­is­ins. Það gerð­ist svo form­lega í upp­hafi árs 2016. Við það færð­ist ákvörðun um laun Birnu Ein­ars­dóttur, banka­stjóra Íslands­banka, frá stjórn bank­ans og til kjara­ráðs.

Birna hafði verið með 4,2 millj­ónir króna á mán­uði árið 2015 í laun og frammi­stöðu­tengdar greiðslur og því ljóst að hún gat búist við kjara­rýrnun. Þegar árs­reikn­ingur bank­ans fyrir árið 2016 var birtur kom hins vegar í ljós að laun hennar juk­ust milli ára og voru 4,85 millj­ónir króna. Raunar úrskurð­aði kjara­ráð ekki um laun Birnu fyrr en snemma árs 2017, þegar búið var að taka ákvörðun um að færa ákvörðun um laun hennar frá kjara­ráði, en áður en sú ákvörðun tók gildi. Samkvæmt þeim úrskurði áttu laun Birnu að vera tvær millj­ónir króna á mán­uði. Stjórn bank­ans taldi sig ekki þurfa að fram­fylgja þeim úrskurði þar sem Birna væri með tólf mán­aða upp­sagn­ar­frest sem næði langt fram yfir þann tíma sem ákvörð­un­ar­vald yfir launum hennar færð­ist aftur til stjórnar Íslands­banka. Þegar árs­reikn­ingur bank­ans fyrir árið 2017 var birtur kom í ljós að Birna var með 4,8 millj­ónir króna í laun að með­al­tali það árið.

Til við­bótar fékk hún eina milljón króna á mán­uði í mót­fram­lag atvinnu­rek­enda í líf­eyr­is­sjóð. Í fyrra voru laun hennar 5,3 millj­ónir króna en hún óskaði sjálf eftir því að lækka laun sín í fyrra­haust. Ef bif­reið­ar­hlunn­indi og áætl­aður kaup­auki á þessu ári eru reiknuð með verða með­al­tals­laun Birnu á mán­uði á árinu 2019 um 4,8 millj­ónir króna.

Stjórn Íslands­banka svar­aði bréfi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra þannig að hún teldi launa­kjör Birnu vera í sam­ræmi við starfs­kjara­stefnu, að hún hafi staðið sig vel í starfi og að laun hennar séu ekki leið­andi.

Banka­stjóri Lands­bank­ans, Lilja Björk Ein­ars­dóttir, var með tæp­lega 2,1 milljón króna í laun á mán­uði þegar hún var ráðin í starfið, en hún hóf störf 15. mars 2017.

Laun hennar voru skömmu síðar, eða um mitt ár 2017, hækkuð í 3,25 millj­ónir króna og á árinu 2018 upp í 3,8 millj­ónir króna. Laun Lilju hafa því hækkað um 82 pró­sent frá því að hún tók við starf­inu fyrir tveimur árum síðan. Bankaráð Lands­bank­ans sagði í bréfi sem það sendi ráð­herra að launin hefðu verið hækkuð svona mikið vegna þess að þau hefðu dreg­ist „langt aftur úr þeim launum sem greidd voru fyrir sam­­bæri­­leg störf“ á árunum 2009 til 2017. Þetta hefði gert það að verkum að laun banka­­stjór­ans hafi ekki verið sam­keppn­is­hæf og ekki í sam­ræmi við starfs­kjara­­stefnu bank­ans. Þá taldi banka­ráðið sig hafa sýnt bæði hóf­­semi og var­kárni þegar samið var um að hækka laun banka­­stjór­ans.

Bjarni Bene­dikts­son hefur þegar brugð­ist við bréfum frá stjórnum rík­is­bank­ana með því að senda bréf til Banka­sýslu rík­is­ins þar sem hann óskaði eftir því að hún komi því með afdrátt­ar­lausum hætti á fram­færi við stjórnir rík­is­bank­anna Íslands­banka og Lands­bank­ans að „ráðu­neytið telji að bregð­ast eigi við þeirri stöðu sem upp er komin með taf­ar­lausri end­ur­skoðun launa­á­kvarð­ana og und­ir­bún­ingi að breyt­ingum á starfs­kjara­stefn­um, sem lagðar verði fram á kom­andi aðal­fundum bank­anna.“

Bankastjóralaunin lækkuð en samt enn hæst

Þann 13. mars síð­ast­lið­inn var svo birt bréf Lárusar Blöndal, for­manns Banka­­sýslu rík­­is­ins, og Jóns Gunn­­ars Gunn­­ar­s­­son­­ar, for­­stjóra stofn­un­­ar­inn­­ar, til Bjarna Bene­dikts­­son­­ar. Í því kom fram að laun banka­­stjóra rík­­is­­bank­anna, Íslands­­­banka og Lands­­bank­ans, yrðu lækk­­uð.

Í því er meðal ann­ars vitnað til bréfa frá Frið­riki Soph­us­syni, for­manni stjórnar Íslands­banka, og Helgu B. Eiríks­dótt­ur, for­manni banka­ráðs Lands­bank­ans.

Í bréf­i Friðriks sagði að „frá og með 1. apríl n.k. verða laun Birnu Ein­­­ar­s­dótt­­­ur, banka­­­stjóra Íslands­­­­­banka 3.650.000 kr. á mán­uði án hlunn­inda. Í þessu sam­­­bandi er vert að benda á að laun banka­­­stjóra án hlunn­inda, sem eru nú 4.200.000 kr. á mán­uði námu 3.850.000 kr. á mán­uði þegar rík­­­is­­­sjóður eign­að­ist allt hluta­fé í bank­an­um árið 2016.“

Í bréfi Helgu til Banka­sýsl­unnar segir að banka­ráðið hafi ákveðið að launa­hækk­­un Lilju Bjark­ar Ein­­ar­s­dótt­­ur, banka­­stjóra Lands­­bank­ans frá 1. apríl 2018 hafi verið tek­in til baka, og þannig komið til móts við þau sjón­ar­mið sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefði komið á fram­færi.

Á móti komi hins veg­ar vísi­­tölu­hækk­­un frá 1. júlí 2017 til 1. janú­ar 2019 sem nemi 7,81 pró­sentum. „Grunn­­laun banka­­stjóra eft­ir lækk­­un verða 3.297 þús­und krón­ur og bif­­reiða­hlunn­indi 206 þús­und krón­­ur. Heild­­ar­­laun banka­­stjóra verða því 3.503 þús­und krón­­ur.“

Auk þess verða starfs­kjara­stefnur bank­anna end­ur­skoð­aðar, þar á meðal launa­kjör ann­arra hátt­settra starfs­manna.

Ekki liggur fyrir hvort að við­brögð stjórna rík­is­bank­anna nægi til þess að mæta óánægju fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra.

Miklar hækkanir hjá stóru ríkisfyrirtækjunum

Sá for­stjóri rík­is­fyr­ir­tækis sem er næstur banka­stjór­unum í launum er Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar. Mán­að­ar­laun Harðar án hlunn­inda eru 3.207.294 krónur á mán­uði og hafa verið þannig frá miðju ári 2017, þegar þau voru hækkuð úr um tveimur millj­ónum króna á mán­uði, eða um 58 pró­sent.

Við launin bæt­ast bif­reið­ar­hlunn­indi, sem juk­ust um 132.285 krónur á mán­uði í fyrra, eða um 151 pró­sent milli ára. Alls námu bif­reiða­hlunn­indi Harðar 2.636.016 krónum á árinu 2018.

Laun og hlunn­indi Harðar voru því 3.426.962 krónur á mán­uði í fyrra og hækk­uðu úr 3.294.677 krónum árið áður, eða um fjögur pró­sent.

Stjórn Lands­virkj­unar hefur gefið þá skýr­ingu að hún hafi verið að efna ráðn­ing­ar­samn­ing við Hörð sem gerður var við hann við ráðn­ingu á árinu 2009 með launa­hækk­un­inni eftir að hann færð­ist undan kja­ráði. Þess má geta að stjórn­ar­for­maður Lands­virkj­unar, Jónas Þór Guð­munds­son, var einnig for­maður kjara­ráðs.

Annar rík­is­for­stjóri sem hækk­aði gríð­ar­lega í launum við það að ákvörðun um laun hans var færð til póli­tískt skip­aðrar stjórnar var Björn Óli Hauksson, for­stjóri Isavia. Laun hans hækk­uðu um 43,3 pró­sent frá miðju ári 2017, úr 1,75 millj­ónum króna í 2,5 millj­ónir króna á mán­uði.

Ingimundur Sigurpálsson er fráfarandi forstjóri Íslandspósts og stjórnarformaður Isavia. Mynd: Íslandspóstur
Ingi­mundur Sig­ur­páls­son er frá­far­andi for­stjóri Íslands­pósts og stjórn­ar­for­maður Isavia. Mynd: Íslands­póstur

Stjórn Isavia útskýrði launa­hækk­un­ina með því að hún hefði fengið ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Intellecta, sem sér­hæfir sig í að kanna laun for­stjóra fyr­ir­tækja í því skyni að að fá fram við­mið til að vinna út frá við ákvörðun launa, til að meta hvað Björn Óli ætti að vera með í laun. Nið­ur­staðan þar hafi verið á bil­inu 3,1 til 4,1 milljón króna. Stjórnin ákvað að stíga var­lega til jarðar en Intellecta hafði mælt með og hækka launin ein­ungis um rúm 43 pró­sent.

Pósturinn tapar en launin hækka mikið

Stjórn­ar­for­maður Isavia er Ingi­mundur Sig­ur­páls­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Garðabæ. Hann er líka for­stjóri Íslands­pósts, ann­ars rík­is­fyr­ir­tækis. Íslands­póstur hefur glímt við mik­inn rekstr­ar­vanda og í sept­em­ber í fyrra fékk fyr­ir­tækið 500 millj­ónir króna að láni til að bregð­­ast við lausa­­fjár­­skorti eftir að við­­skipta­­banki þess, Lands­­banki Íslands, hafði lokað á frek­­ari lán­veit­ing­­ar. Nokkrum mán­uðum síð­­­ar, í des­em­ber, sam­­þykkti Alþingi að lána fyr­ir­tæk­inu allt að millj­­arð til við­­bót­­ar. Erfitt er að sjá hvernig fyr­ir­tækið ætlar sér að greiða þessa fjár­muni skatt­greið­enda til baka.

Þrátt fyrir þessa stöðu var ákveðið að hækka laun Ingi­mundar tví­vegis á síð­asta ári. Þau eru nú um 2.052 þús­und krónur á mán­uði og hafa hækkað um tæp 43 pró­sent frá miðju ári 2017, þegar þau voru 1.436 þús­und krónur á mán­uði. Íslands­póstur fékk líka Intellecta til að gera úttekt fyrir sig um hver laun Ingi­mundar ættu að vera. Samkvæmt nið­ur­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins hefðu þau átt að vera á bil­inu 2.717-3.601 þús­und krónur á mán­uði. Því hækk­aði stjórnin launin minna en ráð­gjaf­inn hafði sagt að væri við hæfi fyrir stjórn­anda í svona fyr­ir­tæki.

Ingi­mundur taldi að ákvörðun stjórn­ar­innar um laun hans hefði ekki verið í sam­ræmi við ákvæði ráðn­ing­ar­samn­ings hans og stjórnar frá því í nóv­em­ber 2004 og lét bóka þá afstöðu sína á stjórn­ar­fundi þann 29. jan­úar 2018. Vara­for­maður stjórnar Íslands­pósts er Svan­hildur Hólm Vals­dóttir, aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, til margra ára.

Ingi­mundur sagði upp starfi sínu sem for­stjóri eftir fjórtán ára starf síð­ast­lið­inn föstu­dag. Sama dag var greint frá því að Íslands­póstur hefði tapað 293 millj­ónum króna í fyrra, sem var um 500 millj­ónum lak­ari afkoma en árið á und­an.

Miklar hækkanir á launum forstjóra Landsnets

Sá rík­is­for­stjóri sem hefur hækkað hlut­falls­lega einna mest í launum frá miðju ári 2017 er Guð­mundur Ingi Ásmunds­son, for­stjóri Lands­nets. Laun hans áttu að vera tæp­lega 1,6 millj­ónir króna á mán­uði um mitt ár 2017, sam­kvæmt síð­astar úrskurði kjara­ráðs sem felldur var í maí 2017, en hafa síðan hækkað í tæp­lega 2,5 millj­ónir króna á mán­uði. Það er aukn­ing um 55,7 pró­sent. Þó verður að hafa þann fyr­ir­vara á að ein­hver við­bót­ar­hlunn­indi geta hafa bæst við launin fyrir hækkun. Á árinu 2016 var Guð­mundur Ingi með rúm­lega 1,6 millj­ónir króna á mán­uði að með­al­tali í laun og leiða verður líkur að því að þannig hafi laun hans verið þegar ákvörðun um þau var færð til stjórnar Lands­nets.

Heild­ar­laun Guð­mundar Inga hækk­uðu um 37,2 pró­sent milli áranna 2017 0g 2018.

Kollegi hans hjá Orkubúi Vest­fjarða, Elías Jón­atans­son, hefur hækkað mun hóf­legar, úr rúm­lega 1,5 milljón króna á mán­uði í 1,8 milljón krónur á mán­uði, eða um 18 pró­sent.

Tryggvi Þór Har­alds­son, for­stjóri Rarik, hefur hækkað úr um 1,5 milljón króna á mán­uði í 1,75 millj­ónir króna, eða um 16,4 pró­sent.

Á menn­ingar- og fjöl­miðla­svið­inu hafa laun Magnúsar Geirs Þórð­ar­sonar, útvarps­stjóra RÚV, farið úr 1,55 millj­ónum króna á mán­uði í 1,8 millj­ónir króna eftir að ákvörðun um laun hans færð­ist undan kjara­ráði og því hækkað um 16,1 pró­sent. Fimm ára ráðn­ing­ar­tími Magnúsar Geirs er nú lið­inn og stjórn RÚV vinnur að því að semja við hann upp á nýtt. Þá á ríkið 54 pró­sent eign­ar­hlut í Hörpu en for­stjóri þar er Svan­hildur Kon­ráðs­dóttir. Hún er með einna lægstu rík­is­for­stjóra­launin eða um 1,4 millj­ónir króna á mán­uði. Þau laun voru tæp­lega 1,3 millj­ónir króna á mán­uði áður en ákvörðun um launin var færð til stjórnar Hörpu og því hafa laun Svan­hildar hækkað um tíu pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár