Kúvending í Reykjanesbæ

Und­an­farin ára­tugur hefur verið mikil rús­sí­ban­areið fyrir Suðurnes þegar kemur að efna­hags­málum. Það sem helst hrjáir svæðið núna, er of hæg inn­viða­upp­bygg­ing. Vöxtur í ferða­þjón­ustu hefur kúvent stöð­unni í atvinnu­málum.

Ég var svo hepp­inn að fá að vera við­staddur form­lega athöfn á svæði varn­ar­liðs­ins sum­arið 2006, þegar Banda­ríkja­her fór af land­inu. Þetta var til­finn­ga­þrungin athöfn að mörgu leyti, og hún mark­aði mikil tíma­mót í sögu lands­ins.

Þessi tíma­mót báru bratt að og var ákvörð­unin ein­hliða Banda­ríkj­anna, út frá nýju stöðu­mati í varn­ar­málum. Það var ekki talin þörf á því að vera með fasta við­veru hers­ins á Íslandi.

Stoðir hrundu

Þessi nýi veru­leiki var efna­hags­legt áfall fyrir Suðurnes og þá einkum Reykja­nesbæ. Mikil þjón­usta var í kringum veru hers­ins sem fyr­ir­tæki í Reykja­nesbæ og nágrenni sáu um að veita. Mörg hund­ruð störf voru bein­tengd hernum, og þau hurfu af svið­inu.

Eftir stóð atvinnu­lífið á svæð­inu veik­ara.

Á árunum 2006 og 2007 var mik­ill gangur í efna­hags­málum, og gætti mik­illar spennu, einkum í mann­virkja­gerð. Þessi þróun náði líka til Suð­ur­nesja, og þegar halla fór undan fæti - og síð­ari hluta árs­ins 2007 - þá var grunn­ur­inn á Suð­ur­nesjum veikur.

Hrunið haustið 2008, frost í bygg­inga­geir­anum og upp­nám í stór­iðju­fram­kvæmdum á svæð­inu, skap­aði afar erf­iðar aðstæður fyrir bæinn, svo ekki sé meira sagt. Atvinnu­leysi fór hratt upp fyrir fimmtán pró­sent, fyr­ir­tæki börð­ust við hættu á gjald­þroti víða og fjár­hagur sveit­ar­fé­laga var erf­iður, ekki síst í Reykja­nesbæ.

Má segja að áfallið hafi verið tvö­falt, af fullum þunga, á rúm­lega tveimur árum. Með brott­hvarfi Banda­ríkja­hers og síðan sjálfu hrun­inu.

Ferðaþjónustan hefur breytt öllu

Frá því árið 2011 hefur íbúum á Suð­ur­nesjum fjölgað um meira en fjögur þús­und, og er íbúa­fjöld­inn nú kom­inn yfir 25 þús­und manns. Lyk­il­at­riði í þess­ari þróun hefur verið gríð­ar­legur vöxtur ferða­þjón­ust­unnar og upp­bygg­ingin á Kefla­vík­ur­flug­velli. Í Reykja­nesbæ hefur íbúum fjölgað um tæp­lega 3.500 á sex árum.

Í ljósi þess að 99 pró­sent af erlendum ferða­mönnum sem heim­sækja landið koma í gegnum Kefla­vík­ur­flug­völl, þá hefur mik­illar þenslu gætt í nærum­hverfi vall­ar­ins. Árið 2010 komu 450 þús­und erlendir ferða­menn til lands­ins en talið er að þeir verði fleiri en 2,3 millj­ónir á þessu ári.

Í fyrra fjölg­aði störfum á Kefla­vík­ur­flug­velli um rúm­lega 1.300 og horft til fram­tíðar er ráð fyrir því gert að fjölg­unin verði 300 til 500 störf á hverju ári. Mikil upp­bygg­ing á vell­inum kallar á mik­inn mann­skap, en atvinnu­leysi er nú lítið á Suð­ur­nesjum, eða um 2 til 3 pró­sent.

Vaxtaverkir

Fátt bendir því til ann­ars en að vöxt­ur­inn á Suð­ur­nesjum - og þá ekki síst í Reykja­nesbæ - haldi áfram á næstu árum, og raunar ára­tugum. Það þyrti að koma til áfall eins og á árunum 2006 til 2008, til að umbreyta því sem nú hefur gerst.

En það hefur reynst Reykja­nesbæ erfitt að rétta af fjár­hag bæj­ar­ins, þó loks­ins nú sjái fyrir end­ann deilum og hár­togi við kröfu­hafa bæj­ar­ins.

En það sem helst þarf að koma til - bæði í Reykja­nesbæ og Suð­ur­nesjum sem atvinnu­svæði - er ítar­leg stefnu­mótun og styrk­ing inn­viða, meðal ann­ars hjá hinu opin­bera. Í ítar­legri úttekt á stöðu mála, sem Dr. Huginn Freyr Þor­steins­son vann, kemur fram að tölu­vert mikið vanti upp á til að styrkja inn­viði svæð­is­ins. Meðal ann­ars á sviði lög­gæslu og ann­arra þátta opin­berrar þjón­ustu.

Til þess að svæðið geti þró­ast vel og í takt við þann vöxt sem er í kort­unum, þarf frek­ari fjár­fest­ingar hins opin­bera til við­bótar við sveit­ar­fé­lögin. Þau reyna sitt, en meira þarf að koma til, að því er segir í fyrr­nefndri úttekt á stöðu mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár