Lestur Fréttablaðsins minnkar enn, færri lesa DV eftir eigendaskipti

Lestur á Frétta­blað­inu heldur áfram að minnka hratt, sér­stak­lega hjá Íslend­ingum undir fimm­tugu. Eig­enda­breyt­ingar á DV virð­ast hafa haft ein­hver nei­kvæð áhrif á lestur blaðs­ins en þau eru ekki stór­kost­leg og ein­ungis um fimmt­ungur Íslend­inga undir fimm­tugu les Morg­un­blaðið. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri könnun Capacent á lestri dag­blaða á Íslandi sem var birt í gær.

Lestur prent­miðla

|

Create infographics

Mikill samdráttur í lestri hjá Fréttablaðinu

Lestur Frétta­blaðs­ins heldur áfram að minnka hratt. Hann minnkar um rúm tvö pró­sent á milli mán­aða hjá Íslend­ingur á aldr­inum 12 til 80, og er nú 52,03 pró­sent. Til sam­an­burðar var hann 64 pró­sent í apríl 2010. Síðan þá hefur lest­ur­inn minnkað um tæpan fimmt­ung. Þegar horft er á yngri les­endur er les­enda­flótt­inn enn sýni­legri. Í apríl 2010 lásu 77,5 pró­sent 18 til 49 ára á höf­uð­borg­ar­svæð­inu blaðið. Það hlut­fall er nú 57,7 pró­sent og lest­ur­inn því dreg­ist saman um rúm 25 pró­sent á fjórum og hálfu ári.

Þegar þessi ald­urs­hópur er skoð­aður á öllu land­inu kemur í ljós að 48,8 pró­sent innan hans lesa Frétta­blaðið.Það hlut­fall fór niður fyrir 50 pró­sent í des­em­ber síð­ast­liðnum í fyrsta skipti frá árdögum blaðs­ins, en Frétta­blað­inu er dreift frítt í um 90 þús­und ein­tökum dag­lega á heim­ili fólks á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og völdum stöðum á lands­byggð­inni. Hitt frí­blaðið, Frétta­tím­inn, mæld­ist þegar best lét með um 42 pros­ent lestur. Hann er nú tæp­lega 38 pró­sent. Vert er að taka fram að upp­lag Frétta­tím­ans er mun minna en Frétta­blaðs­ins auk þess sem Frétta­tím­inn kemur út einu sinni í viku en Frétta­blaðið sex sinnum.

Sviptingarnar á DV virðast bitna lítillega á lestri

Miklar svipt­ingar hafa verið í kringum DV und­an­farna mán­uði með eig­enda­skiptum, upp­sögnum, brott­rekstrum og nýjum ráðn­ingum. Þegar best gekk hjá DV voru 14,15 pró­sent lands­manna á aldr­inum 12 til 80 ára að lesa blaðið. Það var í maí 2011. Tæpum þremur árum síðar var hann 12,3 pró­sent og í sept­em­ber 2014, skömmu eftir að Reyni Trausta­syni og sam­starfs­mönnum hans var ýtt út af fjöl­miðl­inum var lest­ur­inn 11 pró­sent. Lest­ur­inn hefur dreg­ist saman síðan þá og mælist nú 9,5 pró­sent.

Það þýðir að lest­ur­inn hafi minnkað um tæp 14 pró­sent á síð­ustu mán­uðum. Hann hefur ein­ungis einu sinni mælst lægri í mæl­ingum Capacent frá því að DV kom aftur inn í mæl­ingar eftir eig­enda­skipti árið 2010. Það var í nóv­em­ber í fyrra. Þessi staða ætti ekki að koma á óvart í ljósi frétta af því að margir áskrif­endur DV sögðu upp áskrift sinni síð­asta haust í kjöl­far eig­enda­breyt­inga. Ljóst er á tölum Capacent að les­enda­hópur DV er í eldri kant­inum. Í hópnum 18 til 49 ára mælist lest­ur­inn 6,66 pró­sent. Þar var hann mestur 12,1 pró­sent í maí 2013 og því hefur hann nán­ast helm­ing­ast í þessum ald­urs­hópi frá þeim tíma.

fjölmiðlaflóra
fjöl­miðlaflóra

Ekki margir ungir að lesa Morgunblaðið

Morg­un­blaðið, stærsta áskrift­ar­blað lands­ins, var lesið af um 43 pró­sent lands­manna árið 2009 en er nú með 28,8 pró­sent lestur.Lestur blaðs­ins fór í fyrsta sinn í ára­tugi undir 30 pró­sent í fyrra­vor. Lesendur Morg­un­blaðs­ins virð­ast líka vera í eldri kant­inum því að í ald­urs­hópnum 18 til 49 ára lesa ein­ungis um 20,8 pró­sent lands­manna Morg­un­blaðið. Vefsíða útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, mbl.is, er hins vegar sú mest lesna á Íslandi.

Mikið breytt neysluhegðun

Allar þessar breyt­ingar eru til­komnar sam­hliða mik­illi tækni­fram­þróun og þeirri umbylt­ingu á neyslu­hegðun fjöl­miðla­neyt­enda sem orðið hefur vegna hennar. Í nýlegum tölum frá Ofcom kemur að lang­mik­il­væg­asti mið­ill­inn í lífi fólks á aldr­inum 16 til 34 ára í Banda­ríkj­unum er snjall­sím­inn. Í gegnum hann neytir þessi hópur frétta og afþrey­ingar.

Snjall­sím­inn spilar hins vegar miklu minni rullu hjá eldri hópum en sjón­varpið. Og notkun hans mælist varla hjá þeim sem eru eldri en 65 ára. Í dag athuga eig­endur eig­endur snjall­síma sím­anna sína að um 1.500 sinnum á viku, að með­al­tali. Þeir byrja dag­inn vana­lega klukkan 7:31 með því að kanna tölvu­póst­inn sinn og Facebook. Þegar með­al­talsnot­and­inn leggst til hvílu að deg­inum loknum hefur hann kannað stöð­una á öllu sem hann telur skipta mestu í gegnum sím­ann sinn 221 yfir dag­inn.

Hrun í auglýsingum hjá prentmiðlum

Kjarninn greindi frá því um síð­ustu helgi að þessi þróun sé farin að sjást vel í vali aug­lýsenda á vett­vangi fyrir birt­ingar á aug­lýs­ingum sínum. Aug­lýsendur á Íslandi eyddu næstum því fjórum sinnum hærra hlut­falli í að birta aug­lýs­ingar í net­miðlum í fyrra en þeir gerðu árið 2010.


Á sama tíma hefur það hlut­fall af heild­ar­kök­unni sem er notað í birt­ingar í dag­blöðum minnkað mjög mikið. Aug­lýs­ingar í prent­miðlum eru í frjálsu falli. Árið 2010 fór 48 pró­sent af kök­unni til þeirra, sam­kvæmt tölum frá Birt­ing­ar­hús­inu, en í fyrra var hlut­fall dag­blaða komið í 29 pró­sent, sam­kvæmt tölum frá aug­lýs­inga­stof­unni PIPAR/TWBA sem tok saman tölur um skipt­ingu birt­inga­fjár á árinu 2014.

Vert að taka fram að tölur Birt­ing­ar­húss­ins frá 2010 og tölur PIPAR/TWBA eru ekki að öllu leyti sam­bæri­legar. Þær eru hins vegar einu upp­lýs­ing­arnar um þróun á mark­aðnum sem til eru, því á Íslandi er ekki haldið opin­ber­lega utan um tölur um hvernig það fé sem greitt er fyrir birt­ingar á aug­lýs­ingum skipt­ist á milli ólíkra miðla. Á flestum vest­rænum mörk­uðum er haldið vel utan um svona töl­fræði og sveiflur á aug­lýs­inga­mörk­uðum birtar jafn óðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár