Auðmenn vilja að ríkisstjórnir hækki skatta „á fólk eins og okkur“

„Millj­óna­mær­ingar eins og við gegna lyk­il­hlut­verki í því að græða heim­inn,“ segir í bréfi 83 auð­manna sem vilja skatta­hækk­anir á ríkt fólk – eins og þá sjálfa – til að draga úr mis­rétti vegna COVID-19 og flýta fyrir efna­hags­bata.

(F.v.) Richard Curtis, Jerry Greenfield og Abigail Disney eru meðal þeirra milljónamæringa sem skrifa undir bréfið.
(F.v.) Richard Curtis, Jerry Greenfield og Abigail Disney eru meðal þeirra millj­óna­mær­inga sem skrifa undir bréfið. Mynd: Samsett mynd

Hópur 83 manna, sem eru í hópi þeirra rík­ustu í heimi, hvetja rík­is­stjórnir til að hækka til fram­búðar skatta á þá sjálfa og aðra auð­kýf­inga til að ýta undir bata hag­kerf­is­ins vegna COVID-19.

Meðal þeirra sem rita nafn sitt undir hvatn­ing­una er stofn­andi ísris­ans Ben and Jerry’s, Jerry Greenfield, og Abigail Disney, einn af erf­ingjum Disney-veld­is­ins. Í opnu bréfi, sem m.a. hefur verið birt í breska dag­blað­inu Guardian, hvetja þau rík­is­stjórnir til að „hækka skatta á fólk eins og okkur. Strax. Umtals­vert. Til fram­búðar“.

Í bréf­inu segir að í far­aldri COVID-19 leiki „millj­óna­mær­ingar eins og við gegna lyk­il­hlut­verk í því að græða heim­inn. Nei, við erum ekki þau sem hjúkra sjúkum á gjör­gæslu­deildum. Við erum ekki þau sem keyra sjúkra­bíl­ana sem flytja þá sjúku á sjúkra­hús. Við erum ekki þau sem raða mat­vælum í poka sem sendir eru heim til fólks. En við eigum pen­inga, mikið af þeim. Peninga sem gríð­ar­leg þörf er nú fyrir sem og næstu árin á meðan heim­ur­inn er að jafna sig af þessum ham­förum.“

Auð­manna­hóp­ur­inn varar við því að efna­hags­leg áhrif far­ald­urs­ins muni vara í ára­tugi sem gæti orðið til þess að ýta hálfum millj­arði manna fram af brún­inni og í fátækt.

Meðal þeirra sem rita nafn sitt undir bréfið er Stephen Tindall, annar rík­asti maður Nýja-Sjálands, og breski hand­rits­höf­und­ur­inn og leik­stjór­inn Richard Curtis. Einnig ritar írski fjár­festir­inn John O’Farrell, nafn sitt undir bréfið en hann hefur verið umfangs­mik­ill í fjár­fest­ingum í tækni­geir­anum.

„Vanda­málin sem COVID-19 hefur skapað og líka þau sem far­ald­ur­inn hefur afhjúpað verða ekki leyst með góð­gerðum – sama hversu veg­legar þær eru. Leið­togar rík­is­stjórna verða að taka þá ábyrgð að hækka útgjöld sem þarf og útbýta þeim með rétt­látum hætti,“ segir í bréf­inu. „Við stöndum í mik­illi þakk­ar­skuld við þá sem staðið hafa í fram­lín­unni í bar­átt­unni. Flest fram­línu­fólkið er lág­launa­fólk en þarf að bera byrð­arnar.“

Bréf auð­mann­anna er birt í aðdrag­anda G20-ráð­stefn­unnar en til hennar mæta fjár­mála­ráð­herrar stærstu iðn­ríkja heims sem og seðla­banka­stjórar þeirra ríkja. Í bréf­inu eru stjórn­mála­menn hvattir til að taka á mis­rétti sem á sér stað á alþjóða­vísu og við­ur­kenna að skatta­hækk­anir á hina ríku eru nauð­syn­legur hluti af lausn­inni til lang­frama.

Í frétt Guardian um málið segir að fjöldi ofur­ríkra ein­stak­linga í heim­inum haldi áfram aukast þrátt fyrir far­aldur kór­ónu­veirunnar. Sem dæmi hafi auð­æfi Jeff Bezos, stofn­anda Amazon og rík­asta manns ver­aldar, auk­ist um 75 millj­arða Banda­ríkja­dala í ár. Hans auður er nú met­inn á 189 millj­arða dala. Bezos hefur látið 100 millj­ónir dala af hendi rakna vegna far­ald­urs­ins. Það er innan við 0,1 pró­sent af öllum hans auði.

Yfir hálf milljón manna í heim­inum er í hópi ofur­ríkra. Til að kom­ast í þann hóp þarf við­kom­andi að eiga meira en 30 millj­ónir dala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár