„Tucker Carlson 2024?“

Áhrifa­menn meðal repúblik­ana og íhalds­samir álits­gjafar í Banda­ríkj­unum telja raun­hæft að Tucker Carlson, þátta­stjórn­andi á Fox News sem millj­ónir fylgj­ast með á hverju kvöldi, gæti náð langt ef hann kysi að fara í for­seta­fram­boð árið 2024.

Flennistór mynd af þáttastjórnandanum Tucker Carlson á höfuðstöðvum Fox News.
Flenni­stór mynd af þátta­stjórn­and­anum Tucker Carlson á höf­uð­stöðvum Fox News. Mynd: EPA

„Áhorfið á Tucker Carlson er í hæstu hæðum og einnig sögu­sagnir um að þessi vin­sæli þátta­stjórn­andi Fox News muni leggja sjón­varps­fer­il­inn til hliðar og bjóða sig fram til for­seta árið 2024,“ sagði í frétta­skýr­ingu á banda­ríska vef­miðl­inum Politico í gær.

Blaða­maður mið­ils­ins ræddi við sextán þekkta repúblik­ana og íhalds­sama álits­gjafa sem allir telja að Carlson ætti tölu­verðar sig­ur­líkur ef hann myndi gefa kost á sér sem for­seta­efni Repúblikana­flokks­ins árið 2024. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem nafn hans er nefnt í þessu sam­hengi.

Carlson, sem er 51 árs gam­all, er nefni­lega gríð­ar­lega vin­sæll hjá stórum hópum Banda­ríkja­manna. Þáttur hans, Tucker Carlson Tonight, er vin­sæl­asti þátt­ur­inn í banda­rísku kap­al­sjón­varpi sam­kvæmt nýjum mæl­ingum og á YouTube-síðu Fox News fær nán­ast hvert ein­asta mynd­skeið úr þætt­inum millj­ónir áhorfa.

Þátt­ur­inn er raunar ekki bara sá vin­sæl­asti um þessar mundir, heldur er hann núna orð­inn sá þáttur sem hefur haldið flestum áhorf­endum við skjá­inn að með­al­tali yfir þriggja mán­aða tíma­bil frá upp­hafi. Rúmar 4,33 millj­ónir Banda­ríkja­manna horfðu að með­al­tali á þátt­inn frá byrjun apríl og til loka júní.

Flestir sem fylgj­ast með banda­rískum stjórn­málum og menn­ingu hafa eflaust séð ein­hverjar af ein­ræðum Carlson, þar sem hann leggur áhorf­endum lín­urnar og segir skoðun sína umbúða­laust á stöðu lands­ins og heims­ins, ræðst gegn demókrötum, „frjáls­lyndu elít­unni“ og flestum helstu fjöl­miðlum Banda­ríkj­anna.

Hann boðar í raun það sem á síð­ari árum hefur verið kall­aður „Trump­ismi“ af ýmsum álits­gjöfum og hefur verið dáður af mörgum þekktum hvítum þjóð­ern­issinnum fyrir vikið. Hann segir stundum hluti, sem ekki einu sinni óheflaður for­set­inn lætur hvarfla að sér að segja.

Í síð­asta mán­uði hættu stór­fyr­ir­tæki á borð við Disney og T-Mobile að kaupa aug­lýs­ingar af Fox News í kringum þátt­inn eftir að Carlson lét umdeild ummæli falla um Black Lives Matter-hreyf­ing­una. Aug­lýsendur létu sig einnig hverfa árið 2018 þegar hann sagði að inn­flytj­endur gerðu „landið okkar fátækara og skítug­ara og klofn­ara.“

En slíkur boð­skapur heillar fullt af fólki í Banda­ríkjum dags­ins í dag. „Orðum þetta svona,“ segir Sam Nunberg, fyrr­ver­andi póli­tískur ráð­gjafi Donalds Trump, „ef Biden vinnur og Tucker ákveður að bjóða sig fram [fyrir Repúblikana­flokk­inn árið 2024, þá fengi hann til­nefn­ing­una.“

Nunberg þekkir reyndar Carlson per­sónu­lega og telur að hann myndi ekki bjóða sig fram, þar sem þátta­stjórn­and­inn hafi óbeit á stjórn­mála­mönnum. Carlson hefur aldrei tekið þátt í stjórn­málum og hefur áður lýst því yfir að hann hafi það ekki í hyggju.

Óttast að hófsamara fólk taki flokkinn yfir

En að und­an­förnu hefur hann líka sagt að áhorf­endur hans og kjós­endur repúblik­ana, ættu að vara sig á því að þegar Donald Trump hverfi á braut, ýmist vegna taps í kosn­ingum hausts­ins eða eftir næsta kjör­tíma­bil, muni hóf­sam­ari „hrægammar“ reyna að taka flokk­inn yfir. Hefur hann sér­stak­lega rætt um Nikki Haley í því sam­hengi, en hún er talin lík­leg til þess að fara í fram­boð 2024.

„Um leið og Trump fer, þá munu þau ráð­ast á hann,“ sagði Carlson í vik­unni. „Þau munu segja ykkur að repúblikanar hafi tapað völdum ein­ungis þar sem þeir voru ill­gjarnir og óumbyrð­ar­lyndir eins og Donald Trump. Það er lygi.“

Und­an­farið hefur Carlson farið nokkrum ham­förum í gagn­rýni sinni á repúblik­ana sem hafa tekið undir mál­stað Black Lives Matters hreyf­ing­ar­innar.

Í vik­unni hjólaði hann í tvo öld­ung­ar­deild­ar­þing­menn flokks­ins sem lögðu til að 19. júní, Juneteenth, yrði gerður að almennum frídegi í stað dags Krist­ó­fers Kól­umbusar. Á Juneteenth er þess minnst að þann dag árið 1865 voru síð­ustu svörtu þræl­arnir í Texas leystir undan ánauð.

Hann hefur einnig skotið fast að Jared Kushner, tengda­syni og ráð­gjafa Trumps, sagt að hann fyr­ir­líti kjós­endur for­set­ans og kennir honum um að hafa komið í veg fyrir að for­set­inn beitti sér af fullri hörku í inn­flytj­enda­málum, lög­gæslu­málum og utan­rík­is­málum.

Áhrifamáttur

Í umfjöllun Politico um þessar ógn­ar­vin­sældir hins umdeilda Carlson í bak­landi repúblikana­floks­ins er klikkt út með því að vitna til orða ráð­gjafa repúblik­ana sem er í nánu sam­bandi við Hvíta húsið: 

„Ef þú ert repúblikani í stjórn­málum og vilt vita hvar kjós­endur Repúblikana­flokks­ins standa, þá er það eina sem þú þarft að gera að horfa á Tucker Carlson á hverju kvöldi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár