Ást og fótbolti

Auður Jóns­dóttir rit­höf­undur gerð­ist íþrótta­f­rétta­rit­ari og fór á lands­leik með átta ára syni sínum og fót­bolta­vin­konu. Henni fannst takt­ur­inn í HÚH-inu sem kyrjað var í stúkunni minna sig á stig­vax­andi sam­farir.

Und­ir­rituð á son sem æfir fót­bolta og talar um fót­bolta öllum stundum. Svo henni er mikið í mun að standa sína plikt sem fót­bolta­móðir. Því bað und­ir­rituð um að fá að fara sem íþrótta­f­rétta­rit­ari Kjarnans á leik Íslands og Andorra ásamt átta ára syni sínum, Leifi Ottó Þór­ar­ins­syni, og Margréti Mart­eins­dóttur, kærri vin­konu sem er alin upp í fót­bolta, dóttir fót­bolta­manns­ins Marteins Geirs­sonar sem var eitt sinn fyr­ir­liði íslenska lands­liðs­ins og lék á sínum tíma fót­bolta erlendis. Und­ir­rit­aða lang­aði að fá þau til að greina leik­inn með sér, barnið sem lifir fyrir fót­bolta og konu sem hefur lifað lífi sem sner­ist um fót­bolta, bæði sem dóttir atvinnu­manns í bolt­anum og líka sem fyrrum fót­bolta­kempa. Við héldum á völl­inn í roki, slyddu og myrkri en heit að innan af eft­ir­vænt­ingu þegar við sett­umst inn á flóð­lýst svæðið.

Um leið og við vorum sest sagði Leifur Ottó: Þið verðið að geta hver staðan verður og það er bannað að breyta.

Ég held hún verði 2/0 fyrir Ísland, sagði und­ir­rituð.

Ég held hún verði 3/0 fyrir Ísland, sagði Leifur. Af því að Ísland er miklu betra og vörnin hjá Andorra hefur ekki verið neitt sér­stök svo ég held við getum alveg skorað mark fljótt.

Íslend­ingar hafa alltaf unnið Andorra ... sagði Margrét þá og greip and­ann á loft því í sömu andrá var Ísland nærri búið að gera sjálfs­mark. En síðan hélt hún áfram: Svo þeir kannski ... Nöjh, hvað þetta er flott! ... van­meta þá því fót­bolti er svo mikil sál­fræði.

Vá, hann tók hjól­hesta­spyrnu! gall þá í Leifi.

Allar íþróttir snú­ast að miklu leyti um and­legan styrk, sagði Margrét, líka hóp­í­þróttir. Liðs­heildin er svo mik­il­væg, hvernig stemn­ingin í hópnum er. Þegar ég hugsa um liðs­heild og sál­fræði hugsa ég alltaf um Ólaf Stef­áns­son, þegar hann var í lands­lið­inu í hand­bolta, þá sér­stak­lega þegar þeir fengu silfrið á Ólymp­íu­leik­unum. Það sem ég sá þá voru faðm­lög, gleði, knús og grátur, liðið virt­ist alveg laust við hvers konar hug­myndir um eitr­aða karl­mennsku. Ég held í alvöru að Ólafur Stef­áns­son hafi breytt hug­ar­far­inu í því og það hafi smitað út frá sér.

Við þessi orð rám­aði und­ir­rit­aða í frá­sögn téðs Ólafs um mik­il­vægi hug­ar­á­stands í leik á taí­lenskum veit­inga­stað á Akureyri þar sem við sátum þrír rit­höf­undar með honum að borða eftir ráð­stefnu. Sagan klingdi svo við þessi orð Mar­grétar að við reyndum að hringja í Ólaf en heyrðum aðeins í spænskum sím­svara þannig að sú saga fær að bíða betri tíma.

Rómantísk flóðljós

Margrét og Leifur veltu sög­unni fyrir sér en um leið brast á Vík­inga­klapp svo allir fyllt­ust anda­gift.

HÚH, drundi í drengnum, HÚH, HÚH, HÚH, kall­aði hann en móðir hans hugs­aði með sér að takt­ur­inn minnti á stig­vax­andi sam­farir.

Flóð­ljósin eru svo róm­an­tísk, sagði þá Margrét dreymin. Sjáið feg­urð fót­bolt­ans!

Leifur leit spyrj­andi á hana sem hélt áfram ang­ur­værri röddu: Ég var aldrei ein­mana því ég átti alltaf bolta.

Leifur kink­aði skiln­ings­ríkur kolli á meðan móðir hans þerraði snjó­flygsur af tölvu­skjánum.

Flóðljós og snjór! Ég dey úr nostal­gíu, hróp­aði Margrét í sömu andrá og pabbi hennar gaf okkur merki um að hann væri þarna, nokkrum bekkjum ofar, með teppi handa drengnum. Margrét dúð­aði Leif í teppi sem hætti þó ekki að klappa hljóðum klöppum í mark­manns­hönsk­unum sínum.

Þeir eru með sterka vörn núna, Andorra, sagði Margrét.

Allavega núna, botn­aði Leifur dræmur og bætti síðan við að leik­ur­inn væri erf­ið­ari en hann hefði búist við. Bara góð vörn hjá Andorra!

Hvað finnst þér um leik­inn? spurði ég þá Margréti.

Ég er svo upp­tekin af því hvað aug­lýs­inga­skiltin hafa breyst mikið, þetta er orðið svo sam­ræmt; stíl­hreint og alþjóð­legt, svar­aði hún kát. Í minn­ing­unni voru þetta bara Vilko-súpur og Mikli­garður. En vörnin er mjög góð hjá Andorra, þeir eru eins og veggur. Samt, Ísland sækir og sækir og það liggur mark í loft­inu ...

Hún þagn­aði þegar áhorf­endur úuðu skyndi­lega.

Hvað gerð­ist? spurði und­ir­rituð.

Við misstum af því, þið talið svo mikið, sagði Leifur.

Ég fæ alltaf aðeins í mag­ann þegar verið er að úa, við­ur­kenndi Margrét þá. Ég held ég hafi aldrei úað á leik. Einhver með­virkni bara!

Nú úaði Leifur af öllu hjarta yfir ein­hverju sem honum sýnd­ist vera brot.

Boltinn var á milli þeirra, sýnd­ist mér, sagði Margrét við hann. Þetta var ekki víti.

En ég segi það! sagði Leifur og úaði aftur.

Ísland er áber­andi betra lið en samt nær Andorra að halda hreinu, sagði Margrét þegar hann hætti að úa. Einu sinni var ég í liði sem var áber­andi lélegra en banda­rískt félags­lið sem við kepptum á móti á móti í Danmörku en þar var útkoman líka rök­rétt, við töp­uðum 12/0.

Leifur leit hugsi á hana og sagði síðan: Ef Andorra myndi halda öllu hreinu þangað til á nítug­ustu mín­útu og skora þá væri það hræði­legt. Samt veit ég alveg að það er ekki að fara að ger­ast.

Nei, sam­sinnti Margrét. Íslend­ing­arnir eru betri en það virð­ist vera meira adrena­lín­flæði í leik­mönnum Andorra. Sem kemur af því þeir vita að þeir eru að mæta ofjörlum sínum.

Já, íslenska liðið er sterkara, sagði Leifur.

Samt Leifur, sagði Margrét íhugul, kíkjum á styrk­leika­lista FIFA. Ég held að það sé ekki mik­ill munur á styrk­leika Íslend­inga og Andorra. Svo held ég að það sé ekki einn maður frá Andorra í FIFA-leiknum.

Jú, þeir eru allir! sagði Leifur.

Nú, þá veit ég ekk­ert, sagði Margrét.

Við nán­ari athugun kom í ljós að Ísland er í þrí­tug­asta og fimmta sæti á styrk­leika­lista FIFA, hund­rað og fjórum sætum ofar en Andorra.

Sko! sagði Leifur en kippt­ist um leið við og urraði: Þessi varn­ar­leikur Andorra er bara ahrrr ...

Í sömu mund heyrð­ust áhorf­endur úa og hrópa en Leifur hróp­aði: Dómari, þetta má ekki!

Hvað má ekki? spurði móðir hans en hvor­ugt heyrði í henni og Margrét sagði ein­beitt: Íslenska liðið heldur ekki takti, ég sver það, hver og einn góður en það vantar takt­inn ...

Hún þagn­aði þegar bolt­inn flaug í mark Andorra-manna svo áhorf­endur þeytt­ust fagn­andi á fætur.

Arnór Sig­urðs­son skor­aði!

Ísland skoraði.
Ísland skor­aði.

Og um leið rigndi flísteppum. Gamli lands­liðs­fyr­ir­lið­inn, pabbi Mar­grétar, þyrl­aði þeim til okkar, smeykur um að okkur væri orðið kalt.

Ást og fótbolti

Að loknum fyrsta hálf­leik ómaði lag með kunn­ug­legum texta: Ég hef engu gleymt þó að ég tali ekki um það og láti sem ekk­ert sé ...

Ó! and­varp­aði Margrét. Þetta var einmitt það sem mig lang­aði að segja. Það er svona sem mér líður, ég hef engu gleymt þó að ég tali ekki um það.

Hverju hef­urðu ekki gleymt? spurði Leifur.

Nú, ást­inni og fót­bolt­anum, svar­aði Margrét fjar­ræn um leið og við þok­uðum okkur niður til að kaupa pizzusneið og heitt kaffi.

Í röð­inni spurði Leifur Margréti: Hefur þú keppt MJÖG vondan leik á móti útlensku liði.

Já, sagði Margrét, versti leik­ur­inn minn var þessi leikur á móti banda­ríska félags­lið­inu – 12/0!

Íþróttafréttaritari Kjarnans að störfum í hálfleik. Aðstoðarmaður hennar leggur sitt að mörkum.
Íþrótta­f­rétta­rit­ari Kjarnans að störfum í hálf­leik. Aðstoð­ar­maður hennar leggur sitt að mörkum.

Þegar seinni hálf­leikur byrj­aði minnti Margrét á gamla indíána­ömmu í flístepp­inu frá pabba sínum á meðan hún humm­aði: Já, koma svo! ... já, já, já, já ... psss, þetta er ekki búið, þetta er ekki búið ... Já!!!

Aftur mynd­uð­ust hug­renn­inga­tengsl við stig­vax­andi sam­farir hjá und­ir­rit­aðri en grein­ing sonar hennar eyddi þeim þegar hann sagði: Gylfi skaut á mark­mann Andorra, beint á hann, en hann greip ekki bolt­ann!

Æ! Kannski var mark­vörð­ur­inn óör­uggur, sagði Margrét. Kannski var hann að hugsa að Ísland væri hund­rað og fjórum sætum ofar á FIFA-list­anum. Þá verður maður óör­uggur ... Koma svo! ... Ert þú í mark­inu, Leifur?

Já, stundum, sagði Leifur sem hélt þykkum mark­manns­hönskum um pizzu-sneið­ina sína.

Fínir mark­manns­hanskar, sagði Margrét, eru þetta Select?

Já. Takk, sagði Leifur og fylgd­ist með henni beygja sig niður eftir lúinni papp­írs­harm­on­ikku sem ein­hver hafði misst.

Leifur, er þetta til að gera hljóð? spurði hún.

Já, sagði Leifur. Hefurðu ekki séð svona?

Nei, vá! sagði Margrét, spennt eins og barn. Það var ekki til neitt svona props í gamla daga. Þetta er alveg geggjað! Vilt þú gera hljóð með harm­on­ikkunni?

Oj nei, sagði Leifur, þetta er skítugt.

Samt greip hann harm­on­ikk­una, slengdi henni í kálfa móður sinnar og hróp­aði: Áfram Ísland!

Æ, æ, æ, stundi þá Margrét. Þarna hefur einn frá Andorra meitt sig og þarf að fara út af. Hugsið ykkur, það er verið að klappa og hann liggur þarna!

Síðan sagði hún mæðgin­unum að hún hefði í fyrsta skipti farið sex mán­aða gömul á völl­inn og síðan bara verið alltaf á vell­inum – þangað til fyrir svona tíu árum. En henni hafi alltaf fund­ist erfitt að sjá ein­hvern meið­ast.

Það er örugg­lega tengt því að hafa setið sem lítil stelpa í stúkunni, sagði hún, þegar kom fyrir að pabbi minn meidd­ist. Eitt skipti er mér sér­stak­lega minn­is­stætt, leikur á móti ÍA en pabbi var í Fram. Þá upp­lifði ég að mað­ur­inn sem spark­aði pabba niður hefði gert það vilj­andi. Maðurinn hafði spark­aði í mag­ann á honum svo pabbi féll niður og missti and­ann. Síðan fór hann út af. Og síðan hélt leik­ur­inn áfram, eins og ekk­ert hefði í skorist. Í augum barns var það ein­kenni­leg hegðun svo ég var hugsi yfir þessu. Maðurinn var mjög loð­inn, í minn­ing­unni þak­inn svörtum hárum, og í huga barns­ins varð hann að urr­andi skóg­ar­birni. Ég var alltaf hrædd um að pabbi minn myndi meiða sig. Mér fannst líka erfitt þegar fólk öskr­aði ljóta hluti um hann í æsingnum. Ég hlakk­aði alltaf til að fara á völl­inn en stundum fannst mér hann breyt­ast í víg­völl.

Ég skil það, sagði Leifur hrelldur en gleymdi sér um leið og til­kynnt var að nú kæmi Jón Daði Böðv­ars­son inn á í stað Alfreðs Finn­boga­sonar.

Áfram Ísland! var hrópað og um leið skor­aði Kolbeinn Sig­þórs­son mark og jafn­aði þar með frægt marka­met Eiðs Smára Guðjohn­sen en við smá fréttaflett fundum við út að árið 2013 hafði Eiður Smári sagt í við­tali að hann von­aði að Kolbeinn, eða ein­hver annar, myndi bæta marka­metið sitt.

Nú meiddi ein­hver sig.

Hver er þetta? spurði Margrét.

Einhver númer sex, sagði und­ir­rituð.

Þetta er Ragnar Sig­urðs­son, til­kynnti Leifur. Upp­á­halds leik­mað­ur­inn minn.

Áhorf­endur klöppuð um leið og Sverrir Ing­ólfs­son fór inn á völl­inn.

Minnið mig á að fá mér grifflur fyrir næsta leik, sagði und­ir­rituð krók­lopin við lykla­borðið.

En hin voru aftur sokkin í leik­inn og Margrét sagði: Ég spái að Ísland skori tvö mörk núna og leik­ur­inn fari þrjú núll.

Alveg eins og ég spáði, sagði Leifur. Ég ætl­aði að spá 4/0 en breytti því síðan í 3/0.

Ó, stundi Margrét. And­orra­mað­ur­inn náði bolt­anum svo fal­lega ... vó!

Þau sukku ofan í fag­ur­fræði fót­bolt­ans þangað til Leifur sagði: Þarna kemur Emil Hall­freðs­son inn fyrir Birki Bjarna­son. Upp­á­halds leik­mað­ur­inn hans pabba!

Finnst þér þessi leikur svo­lítið grófur, Leifur? spurði Margrét þá. Eru þeir soldið að meiða sig?

Smá, sagði Leifur. Samt er ekki komið neitt gult spjald.

Auður og Leifur með bræðrunum Marteini og Þorvaldi Geirssonum.
Auður og Leifur með bræðr­unum Marteini og Þorvaldi Geirs­sonum.

Það er smá tryll­ingur í Andorra. Þeir ýta í þá, sagði Margrét en þagn­aði þegar dæmt var víti – sem mark­vörður Andorra varði. Þarna mun­aði mjóu að und­ir­rituð hefði tapað í per­sónu­lega veð­bank­anum. Á end­anum fór samt svo að hún vann.

Skáldið spáði rétt, sagði Margrét. Leiknum lauk 2/0 fyrir Ísland.

Á leið­inni út fundum við pabba Mar­grétar og bróður hans, Þorvald Geirsson. Við smelltum af þeim mynd og síðan kvöddu þeir hlý­lega. Bless strákur! sagði Marteinn og klapp­aði Leifi á koll­inn.

Leifur horfði með aðdáun á eftir honum og Margrét sagði: Þetta eru okkar bestu menn. Báðir störf­uðu við sjúkra­flutn­inga og voru slökkvi­liðs­menn. Miklir fjöl­skyldu­menn og öðlingar.

Þetta eru alvöru töffarar, segir und­ir­rituð.

Þetta eru góð orð til að ljúka lýs­ing­unni á þessum leik.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár