Tæplega sjötíu ný smit síðasta sólarhringinn

Flestir þeirra sem hafa greinst með veiruna eru á aldr­inum 40-49 ára. Sex ein­stak­lingar á tíræð­is­aldri hafa greinst og 25 börn yngri en tíu ára.

Staðfest smit eru orðin 1.086 á Íslandi.
Staðfest smit eru orðin 1.086 á Íslandi. Mynd: EPA

Staðfest smit af kór­ónu­veirunni eru nú orðin 1.086 hér á landi. Í gær voru þau 1.020 og hefur þeim því fjölgað um 66 á einum sól­ar­hring. Í dag eru 9.236 ein­stak­lingar í sótt­kví en í gær var fjöld­inn 9.541.

Tæplega 4.430 manns hafa lokið sótt­kví.

Nú liggja 25 sjúk­lingar á sjúkra­húsi vegna COVID-19 sjúk­dóms­ins, þar af níu á gjör­gæslu, sam­kvæmt því sem fram kemur á síð­unni Covid.is. Þar kemur einnig fram að 139 hafi náð sér af sjúk­dómnum til þessa.

Í dag hafa 16.484 sýni verið tekin frá upp­hafi far­ald­urs­ins. Síðasta sól­ar­hring­inn voru 490 sýni tekin hjá Íslenskri erfða­grein­ingu og 510 hjá sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans. Fimm ný smit greindust hjá ÍE.

Hlutfall smit­aðra sem greinst hafa á meðan þeir eru í sótt­kví er nú 51%. Þetta hefur sótt­varna­læknir sagt sýna nauð­syn sótt­kvíar til að hemja útbreiðslu far­ald­urs­ins.

Flestir þeirra sem hafa greinst með veiruna eru á aldr­inum 40-49 ára. Sex ein­stak­lingar á tíræð­is­aldri hafa greinst og 25 börn yngri en tíu ára.

Þess skal getið að mis­munur getur verið á tölum um sýna­tökur ann­ars vegar og fjölda smita hins vegar sem birtar eru á hverjum degi á Covid.is. Skýr­ingin er sú að birt­ing upp­lýs­inga um smit taka mið af því hvenær sýnið var tekið en ekki hvenær það var greint.

Lög­reglan í Vest­manna­eyjum greindi frá því á Facebook-síðu sinni í gær að stað­fest smit í Eyjum væru orðin 57. Þar eru 596 manns í sótt­kví. 173 Vest­mann­ey­ingar hafa lokið sótt­kví.

Spálíkan uppfært fljótlega

Helstu nið­ur­stöður spálík­ans vís­inda­manna við Háskóla Íslands, með gögnum til og með 24. mars, eru þær að á meðan far­ald­ur­inn gangi yfir muni rúm­lega 1.500 manns á Íslandi grein­ast með COVID-19 en talan gæti náð nær 2.300 manns sam­kvæmt svart­sýn­ustu spá.

Þá er gert ráð fyrir að far­ald­ur­inn nái hámarki fyrstu vik­una í apríl.

Spáin hefur ekki verið upp­færð í nokkra daga en von er á nýrri spá fljót­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár