Þórdís ætlar ekki að afhenda kvittanir

Ráðherra ferða­mála segir að ekki sé hægt að ætl­ast til þess að per­sónu­leg útgjöld hennar séu opin­ber gögn. Kjarninn óskaði eftir því að fá að sjá kvitt­anir fyrir því sem hún greiddi sjálf í vin­konu­hitt­ingi um liðna helgi.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir. Mynd: RÚV/Skjáskot

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar og nýsköp­un­ar­ráð­herra, vill ekki afhenda kvitt­anir fyrir þeim vörum og þjón­ustu sem hún greiddi sjálf fyrir í vin­konu­hitt­ingi sem hún tók þátt í um helg­ina. Ein úr hópnum, Eva Laufey Kjaran Her­manns­dóttir, er í við­skipta­sam­starfi við Hilton Nordica hót­elið og vegna þess bauðst hópnum frír aðgangur að heilsu­lind og gist­ing á hót­el­inu.

Þórdís sagði í stöðu­upp­færslu á Facebook í gær að hún hefði greitt upp­sett verð fyrir mat, drykk og aðgang að heitum pottum í hitt­ingnum. Þá hefði hún ekki gist á hót­el­inu og gert hópnum „frá upp­hafi ljóst að ég myndi borga allan minn kostnað og gerði það. Ég bað ekki um nein sér­kjör, hvorki þarna né ann­ars staðar, og greiddi upp­sett verð fyrir allt.“

[adspot]Kjarninn sendi henni fyr­ir­spurn og óskaði eftir því að fá sjá kvitt­anir fyrir því sem ráð­herr­ann greiddi. Í svari sem aðstoð­ar­maður hennar sendi Kjarn­anum segir: „Varðandi ósk um afhend­ingu reikn­inga/kvitt­ana þá er það afstaða ráð­herra að ekki sé hægt að ætl­ast til þess að per­sónu­leg útgjöld séu opin­ber gögn; þau verða því ekki afhent. Ráðu­neytið vekur athygli á að undir upp­lýs­inga­lög heyra ein­ungis gögn sem varða stjórn­sýslu og starf­semi ráðu­neyt­is­ins. Per­sónu­leg fjár­mál ráð­herra heyra ekki undir starf­semi eða stjórn­sýslu ráðu­neyt­is­ins.“

Myndirnar gegna ekki hlutverki í verkefninu

Röð mynda birt­ist af vin­konu­hópnum þar sem þær stóðu í hnapp. Mynd­irnar voru gagn­rýndar bæði fyrir það að á þeim væri ráð­herra ekki að virða tveggja metra reglu milli aðila sem deila ekki heim­ili og vegna þess að aðrar myndir í sömu mynda­seríu voru merktar sem sam­starf við Nordica.

Eva Laufey birti stöðu­upp­færslu á Facebook í gær­morgun þar sem hún sagð­ist ekk­ert hafa ætlað að tjá sig meira um hitt­ingin en að rang­færslur sem birt­ust í fjöl­miðlum hefðu kraf­ist þess. Þar lýsti hún deg­inum og sagð­ist alltaf hafa verið kýr­skýr þegar hún ynni fyrir önnur fyr­ir­tæki og merkti það með réttum hætti. „Þær myndir sem birtar voru af okkur vin­kon­unum tengj­ast sam­starf­inu ekki á neinn átt og höfðu þær engu hlut­verki að gegna í verk­efni mínu fyrir Nordica.“

Hún sagði það áhyggju­efni þegar frétta­miðlar færu með rangt mál og öllum væri vel­komið að hafa sam­band. Blaða­maður Kjarnans hafði sam­bandi við Evu Laufeyju, meðal ann­ars til að spyrja um hvernig greiðslu­til­högun hefði verið í vin­konu­hitt­ingnum, en hún vildi ekki tjá sig frekar um málið þegar eftir því var leitað.

Baðst afsökunar

Í stöðu­upp­færslu sinni í gær sagði Þórdís að vegna fyr­ir­spurna sem henni hefðu borist um þátt­töku sína í deg­inum hefði hún óskað eftir að skrif­stofa lög­gjaf­ar­mála í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu legði mat á hvort í þessu máli fælist brot á siða­reglum ráð­herra.

[links]Í áliti hennar, sem Þórdís birtir hluta úr, segir: „Eins og mál þetta er vaxið liggur ekk­ert fyrir sem bendir til þess að ráð­herra hafi þegið slíkar gjafir, boðs­ferðir eða afslætti frá Icelandair Hotels eða öðrum umrætt sinn. Ráðherra naut þannig hvorki per­sónu­legra fríð­inda í krafti emb­ættis síns né vegna umrædds sam­starfs. Þá getur ráð­herra ekki borið ábyrgð á því að aðrir gestir sam­sæt­is­ins hafi þegið slík fríð­indi gegn því að birta kynn­ing­ar­efni á sam­fé­lags­miðli. Loks skiptir hér máli að myndir af ráð­herra sjálfri voru ekki merktar sem aug­lýs­ing eða sam­starf, heldur er um að ræða aðrar myndir sem teknar voru sama dag. Miðað við þær for­sendur sem hér er gengið út frá má því ætla að ekki sé um brot á siða­reglum ráð­herra eða öðrum reglum að ræða.“

Þórdís sagði að þrátt fyrir þessa nið­ur­stöðu vildi hún árétta að ráð­herrar eigi að haga gerðum sínum þannig að þær séu hafnar yfir vafa. „Ég gerði það ekki, biðst afsök­unar á því og mun læra af því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár