Þórdís: Myndatakan ekki brot á reglum en var óþarfi og það hefði ekki átt að taka hana

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir segir að hún hafi talið sig vera að fylgja reglum um nálægð­ar­tak­mark­anir þegar hún var mynduð í mik­illi nálægð með vin­konum sínum. Henni þykir leitt að mynda­takan hafi átt sér stað.

„Ég skil vel hvernig þetta kom við fólk. Þessi mynda­taka af okkur saman í einum hópi, þrátt fyrir strangt til tekið skilj­ist mér að það sé ekki brot á ein­hverjum reglum, að þá var hún óþarfi og við hefðum ekki átt að taka hana. Og mér þykir það leitt.“

[links]Þetta sagði Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, í fréttum RÚV í kvöld en myndir af vin­konu­hitt­ingi hennar um helg­ina, þar sem þær voru mynd­aðar nokkrum sinnum saman í einum hnappi, hefur sætt gagn­rýni í ljósi tveggja metra regl­unnar svoköll­uðu sem var ekki við­höfð við þær mynda­tökur. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, kall­aði hegðun hennar „óheppi­lega“ í dag.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði í Kast­ljósi í kvöld að það væri auð­vitað þannig að rík­ari kröfur væru gerðar til ráð­herra en ann­arra að passa sig í sínum ein­stak­lings­bundnu sótt­vörnum.

Í stöðu­upp­færslu á Facebook í gær skrif­aði Þórdís: „Ég átti lang­þráðan frí­dag með æsku­vin­konum mínum sem mér þykir vænt um og dag­ur­inn, sem ég hafði hlakkað mikið til, var nær­andi. En dag­ur­inn í dag síður og ein­fald­ara hefði verið að ákveða að vera ekki með þeim.“

Í við­tal­inu við RÚV í kvöld sagði Þórdís að það hafi ekki verið þannig að hún hefði þurft svo ofboðs­lega mikið á fríi að halda, heldur hefði verið lang­þráð að hitta æsku­vin­konur sínar. Þær búi í mis­mun­andi bæj­ar­fé­lögum og hitt­ist ekki oft. „Ég átta mig á að ég er í fram­línu og fronti og þetta er risa­stórt verk­efni og okkur líður öllum alls­konar. En ég bara full­vissa fólk um að ég er að gera mitt besta og ég mun áfram segja að ein­stak­lings­bundnar sótt­varnir séu mik­il­væg­asta verk­færið okkar í þess­ari veiru.“

Aðspurð hvort þeir sem væru að virða tveggja metra regl­una í sínu dag­lega lífi væru að mis­skilja til­mæli stjórn­valda sagði hún að almenna reglan væri tveggja metra reglan. „Það er skylda rekstr­ar­að­ila að fólk geti komið inn á veit­inga­stað og við­haldið þess­ari tveggja metra reglu. En að öðru leyti finnst mér þrí­eykið hafa svarað þessu ágæt­lega í dag. Ég tek þetta til mín og vanda mig. En ég taldi mig að sjálf­sögðu vera að fylgja reglum.“

[adspot]Fjöl­margir hafa verið að fresta við­burðum á borð við ferm­ingum og jarð­ar­förum eftir að nálægð­ar­við­mið voru hert í lok síð­asta mán­aðar, en þá sagði Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra á blaða­manna­fundi að þar sem fólk kæmi saman og í allri starf­semi yrði tveggja metra reglan við­höfð á milli ein­stak­linga. „Það er að segja að hún verði ekki lengur val­kvæð heldur skyldu­bund­in. Þar sem ekki er hægt að tryggja tveggja metra fjar­lægð milli ótengdra ein­stak­linga þá er kraf­ist notk­unar and­lits­grímu sem hylur nef og munn.“

Þórdís sagði að þeir sem frest­uðu atburðum væru að taka ein­stak­lings­bundnar ákvarð­anir. „Ég myndi sjálf ekki halda hund­rað manna ferm­ing­ar­veislu. En það er líka stórt verk­efni að finna út úr því hvernig við gerum þetta saman. Ég átta mig á mínu hlut­verki í því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár