Óvenjulegur sjómannadagur framundan

Vegna COVID-19 far­ald­urs­ins verður sjó­manna­dag­ur­inn í ár ólíkur því sem Íslend­ingar eiga að venj­ast. Þó verður lág­marks­dag­skrá víða um land með heiðr­unum ald­inna sjó­manna, minn­ing­ar­at­höfnum og veittar verða við­ur­kenn­ingar fyrir björg­un­ara­frek.

Sjó­manna­dag­ur­inn er núna um helg­ina, sunnu­dag­inn 7. júní, en vegna kór­ónu­veirunnar verður dag­ur­inn með öðru sniði en venju­lega. Sjó­manna­sam­band Íslands (SSÍ) gerir dag­inn að umtals­efni í stöðu­upp­færslu á Facebook. „Sjó­mönnum ber að hrósa í þessu ástandi og hvernig þeir hafa tek­ist á við COVID-ástandið. Mjög lítið var um smit og sótt­kví meðal sjó­manna og flot­inn gat verið á sjó þó sum­staðar væri dregið úr sókn­inni vegna ástands á mörk­uðum.“

Þá kemur fram að víða um land sé búið að slá af eða fresta hátíð­ar­höldum vegna sjó­manna­dags­ins. Þó verði lág­marks­dag­skrá víða um land með heiðr­unum ald­inna sjó­manna, minn­ing­ar­at­höfnum og veittar við­ur­kenn­ingar fyrir björg­un­ara­frek. Auðvitað haldi sjó­menn og þeirra fjöl­skyldur dag­inn hátíð­legan þó með öðrum hætti en áður.

Sjó­manna­dag­ur­inn var hald­inn hátíð­legur í fyrsta skipti þann 6. júní árið 1938. Sá dagur var mánu­dagur, annar í hvíta­sunnu. Næstu ár var fylgt reglu sem á end­anum var lög­tekin árið 1987, að sjó­manna­dagur skyldi vera fyrsti sunnu­dagur í júní nema hvíta­sunnu bæri upp á þann dag. Þá skyldi sjó­manna­dag­ur­inn vera viku síðar.

SFS segja að hálfa prósentið sé fallið úr gildi

Samkvæmt Sjó­manna­sam­bandi Íslands er ekki mikið að frétta af kjara­málum sjó­manna. „Og þó. Sjó­manna­sam­band Íslands er nú með eitt mál gegn Samtökum fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) fyrir Félags­dómi. Það varðar hækkun kaup­trygg­ingar sem sjó­menn áttu að fá þann 1. maí í fyrra. Það stendur bein­línis skrifað í okkar samn­ing að allar þær hækk­anir sem koma á almenna mark­aðnum á árinu 2019 ættu einnig að koma til sjó­manna. Allt tal um annað er útúr­snún­ingur af hálfu SFS.

Einnig er annað mál í und­ir­bún­ingi fyrir Félags­dómi af hálfu SSÍ gegn SFS. Það er ein­hliða til­kynnig SFS að hálfa pró­sentið sem bætt­ist við þá lág­marks­pró­sentu til skipta þegar útgerð kaupir afla af sjálfri sér, sé fallið úr gildi. Þetta var okkur til­kynnt með tölvu­pósti þann 6. maí síð­ast­lið­inn. Þó er það inn­ritað í samn­ing­inn að það gildi meðan samn­ing­ur­inn er í gildi. Og takið eftir, hann gildir þar til nýr samn­ingur er gerður. Um það er hefur aldrei verið nokkur ein­asti vafi á íslenskum vinnu­mark­aði,“ segir í færsl­unni.

Enn fremur kemur fram að ef þessi fram­gangs­máti eigi að vera á rekstri kjara­samn­ings­ins þeirra muni sjó­menn áskilja sér rétt til að segja upp þeim hluta samn­ings­ins sem þeir eru ekki sáttir við, til að mynda nýsmíða­á­lag­inu. „Eigum við að byrja þar? Það er ger­sam­lega óþol­andi að annar aðili samn­ings geti sagt upp einum lið samn­ings­ins án sam­tals og/eða við­un­andi raka.“

Sjómenn verði að fylgjast vel með

Nú verði sjó­menn að fylgj­ast með hvort hálfa pró­sentið detti út hjá þeim í júní. Til­kynnig SFS um olíu­við­miðs­pró­sent­una í júní sé 77 pró­sent en eigi að vera 77,5 pró­sent. Ef það ger­ist að við­miðið vegna kaupa á eigin afla verði 77 pró­sent í júní, telur Sjó­manna­sam­bandið að komin sé ótví­ræð heim­ild félag­anna sem að samn­ingnum standa, að beita sekt­ar­á­kvæði kjara­samn­ings­ins sem er 630.046 krónur fyrir hvert brot.

„Umboðs­menn útgerð­anna, SFS, segj­ast ekki hafa umboð til að klára bókana­vinnu sem verið hefur í gangi síðan síð­asti samn­ingur var gerður vegna þess að kröfur séu nú komnar fram. Það er alveg krist­al­tært að að ekki verður gerður annar samn­ingur nema þessar bók­anir verði kláraðar. Fyr­ir­vari er í kröfu­gerð okkar um það. Bók­an­irnar skipta gíf­ur­legu máli fyrir fram­haldið.

Nýr for­maður SFS hefur látið hafa eftir sér að næsta verk­efni sé að klára samn­inga við sjó­menn. Gott og vel við erum til í slag­inn ef hugur fylgir máli og SFS hættir að keyra kjara­samn­ing­inn áfram á til­kynn­ingum um að hitt og þetta sem þeim er ekki að skapi, sé fallið úr gildi,“ segir í færsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár