Seðlabanki Evrópu tilkynnir risavaxnar örvandi aðgerðir í dag

Mario Draghi, banka­stjóri Seðla­banka Evrópu, mun að öllum lík­indum til­kynna miklar örvandi aðgerðir seinna í dag sem ætlað er að örva hag­kerfi evru­svæð­is­ins. Samkvæmt fréttum stendur til að kaupa rík­is­skulda­bréf fyrir allt að 50 millj­arða evra á mán­uði út árið 2016, um tvö­falt hærri upp­hæðir en áður hafði verið talið. 50 millj­arðar evra jafn­gilda 7.633 millj­örðum króna.

[caption id="attachment_17765" align="align­right" width="150"] Mario Draghi, banka­stjóri Seðla­banka Evrópu.[/caption]

Fyrr í þessum mán­uði sýndu tölur að verð­hjöðnun væri á evru­svæð­inu. Aðgerð­irnar eiga að lækka lána­kostnað, og hvetja banka þannig til þess að lána meira til fyr­ir­tækja og ein­stak­linga og örva hag­kerfið.

Talið er að þessar aðgerðir hefj­ist í mars, en loka­á­kvörð­unin verður tekin á fundi stjórnar seðla­bank­ans í dag. Enn er talið mögu­legt að full­trúi Þýska­lands í stjórn­inni muni mót­mæla þessum aðgerðum, að því er fram kemur í frétt BBC.

Þjóð­verjar vilja frekar að ef ráð­ist verður í stór­tæk kaup á rík­is­skulda­bréfum verði það í höndum ríkj­anna sjálfra frekar en að þau séu í höndum bank­ans. Þýskir sér­fræð­ingar hafa varað við verð­lækk­unum og minnk­andi fjár­fest­ingum, en rík­is­stjórn Þýska­lands hefur reynt að fjar­lægja sig ákvörðun bank­ans.

Í gær­kvöldi gekk Markus Ferber, einn áhrifa­mesti Evr­ópu­þing­maður Þýska­lands, þó lengra en aðrir stjórn­mála­menn hafa gert opin­ber­lega í gagn­rýni á ætl­aðar aðgerðir bank­ans. Ferber er vara­for­maður í efna­hags- og pen­inga­mála­nefnd Evr­ópu­þings­ins.

„Ég held að það sé ekki á ábyrgð Seðla­banka Evrópu að taka póli­tískar ákvarð­anir og það er það sem mun ger­ast,“ með fyr­ir­hug­uðum rík­is­skulda­bréfa­kaupum, eða magn­bund­inni íhlutun, sagði Ferber við Evr­ópu­frétta­vef­inn euractiv.com.

Hann seg­ist telja aðgerð­irnar ganga lengra en seðla­bank­anum sé heim­ilt. „Stærsta verk­efnið er verð­stöð­ug­leiki, og núna er bank­inn að berj­ast gegn ein­hverju sem er ekki að ger­ast. Það er ekki verð­hjöðnun, ef við minnkum áhrif olíu- og gasverðs er verð­bólga í Evr­ópu­sam­band­inu og mér sýn­ist að Seðla­banki Evrópu sé að berj­ast gegn því sem ekki á sér stað.“

Efnahags- og fram­fara­stofn­unin hvatti seðla­banka­stjór­ann Mario Draghi hins vegar til þess að halda sig við þessar aðgerðir. Angel Gurria, fram­kvæmda­stjóri stofn­un­ar­innar, tal­aði um málið í gær á fundi Alþjóða­efna­hags­ráðs­ins, sem nú fer fram í Davos í Sviss. „Leyfið Mario ganga eins langt og hægt er. Ég held ekki að það ætti að setja tak­mörk. Ekki segja 500 millj­arðar evra. Segið bara „förum eins langt og við getum, eins mikið og við þurfum.““

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár