Þjóðarleiðtogar ræða Úkraínu, forsetinn biður Vesturlönd um hjálp

Petro Poros­henko, for­seti Úkraínu, biðl­aði til Vest­ur­landa um hjálp við að ná fram friði í Úkraínu á örygg­is­ráð­stefn­unni í Munchen í Þýska­landi í dag. Hann óskaði eftir hern­að­ar­að­stoð og sagði skort á vopnum hafi valdið auk­inni sókn upp­reisn­ar­manna und­an­farnar vikur. Þá sagði for­set­inn að eina leiðin til að ná fram friði í Úkraínu væri að inn­leiða upp­runa­lega vopna­hléið sem sam­þykkt var í Minsk í byrjun sept­em­ber. Hann sýndi einnig vega­bréf og önnur skil­ríki rúss­neskra her­manna, sem sönnun fyrir því að rúss­neski her­inn tæki sann­ar­lega þátt í stríð­inu í land­inu.

 

Those are pas­sports and milit­ary IDs of Russian soldi­ers who 'lost their way' into Ukraine. pic.twitter.com/iAr2gQwE9O

— Петро Порошенко (@poroshenko) February 7, 2015

Málefni Úkraínu hafa verið í for­grunni á fund­inum í Munchen. Fyrr í dag sagði Angela Merkel að það væri ekki víst að til­raunir hennar og Francois Hollande Frakk­lands­for­seta til að miðla málum muni heppn­ast. Til­raunin væri þó erf­ið­is­ins virði. „Ég held að þeir sem hafa orðið fyrir barð­inu á átök­unum í Úkraínu eigi það inni hjá okkur.“ Þau fund­uðu lengi með Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seta í Moskvu í gær­kvöldi. Þótt engar nið­ur­stöður hafi verið kynntar af fund­inum var hann sagður hafa verið upp­byggi­legur.

Will arm­ing #Ukraine help bring about a negoti­ated solution? Angela Merkel on why she doesn't think so from #MSC2015: pic.twitter.com/7eldujuzzI — Security Conference (@MunSecConf) February 7, 2015

Merkel varði þá skoðun sína að ekki ætti að senda vopn til úkra­ínskra stjórn­valda. Hún sagð­ist telja að sama hversu mikið magn af vopnum úkra­ínski her­inn fengi yrði það aldrei nóg til að sann­færa Pútín um að Rússar myndu tapa. Fleiri vopn myndu ein­fald­lega þýða fleiri fórn­ar­lömb í stríð­inu. Þessum ummælum hennar var fagnað ákaf­lega á ráð­stefn­unni, en hvorki Poros­henko né Joe Biden, vara­for­seti Banda­ríkj­anna, klöpp­uðu. Banda­ríkja­menn íhuga nú alvar­lega að senda hern­að­ar­að­stoð til úkra­ínska hers­ins.

[caption id="attachment_19464" align="alignnone" width="517"] Rútur fullar af fólki keyra fram­hjá skemmdum skrið­dreka við borg­ina Debaltseve.[/caption]

Búist er við því að Merkel og Hollande haldi síma­fund með Pútín og Poros­henko á morgun og áfram verði rætt um mögu­legt vopna­hlé. Tíma­bundið vopna­hlé í Debaltseve og nágrenni hefur gert þús­undum óbreyttra borg­ara að kom­ast þaðan burt, en fólk hefur verið inn­lyksa í margar vikur vegna stríðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár