Erlendir fjárfestar hafa selt eignir á Íslandi fyrir næstum hundrað milljarða á einu ári

Erlendir sjóðir hafa selt rík­is­skulda­bréf og hluta­bréf fyrir gríð­ar­legar fjár­hæðir á síð­ast­liðnu ári. Mest seldu þeir frá því í fyrra­haust og fram á árið 2021. Ef sala á íslenskum fjar­skipta­innviðum verður sam­þykkt mun erlend nýfjár­fest­ing verða jákvæð.

Frá byrjun síð­asta árs hefur erlend nýfjár­fest­ing á Íslandi verið nei­kvæð um 119 millj­arða króna. Hún var nei­kvæð um 57 millj­arða króna í fyrra og á fyrstu tíu mán­uðum yfir­stand­andi árs hafa erlendir fjár­festar selt inn­lend hluta­bréf og rík­is­skulda­bréf fyrir alls 62 millj­arða króna. Þar af fóru 58 millj­arðar króna út á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins.

Þetta kemur fram í rit­inu Pen­inga­málum sem Seðla­banki Íslands gaf út í vik­unni.

Þorri þessa fjár­magns­flótta átti sér stað frá októ­ber í fyrra og til loka mars­mán­aðar 2021. Á því hálfs árs tíma­bili los­uðu erlendir fjár­festar um alls 93 millj­arða króna í inn­lendum hluta­bréfum og rík­is­skulda­bréfum og fóru með þá út úr íslensku hag­kerfi. Á einu ári seldu erlendir fjár­festar því eignir fyrir 97 millj­arða króna og fóru með ávinn­ing­inn annað.

Erlendir kaupa fjarskiptainnviði

Viðbúið er að þessi staða muni að ein­hverju leyti snú­ast við í nán­ustu fram­tíð ef eft­ir­lits­að­ilar sam­þykkja kaup erlendra aðila á íslenskum fjar­skipta­innviðum.

Þar munar mest um ætluð kaup franska sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Ardian France SA á Mílu af Símanum. Áætl­aður sölu­hagn­aður er rúm­lega 46 millj­arðar króna að teknu til­liti til kostn­aðar vegna við­skipt­anna og áætlað virði við­skipt­anna er 78 millj­arðar króna, að með­töldum fjár­hags­legum skuld­bind­ingum Mílu sem kaup­and­inn yfir­tek­ur.

Í lok mars skrif­aði Sýn undir samn­ing um sölu og end­ur­leigu á fjar­skipta­innviðum til sjóðs í stýr­ingu banda­ríska sjóð­stýr­inga­fyr­ir­tæk­is­ins Digital Colony. Hagn­að­ur­inn af söl­unni var sagður nema 6,5 millj­örðum króna, en hún bíður enn sam­þykkis Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

[adspot]Þá sam­þykkti Sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­runa eign­ar­halds­fé­lag­anna Nova Acquisition Holding og Plat­ínum Nova. Með því varð fjar­skipta­fé­lagið Nova í eigu banda­ríska fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins PT Capital Advisors, en það átti áður helm­ing­inn í fjar­skipta­fé­lag­inu. Svo virð­ist sem kaup­verðið hafi verið um sex millj­arðar króna, sam­kvæmt frétt vb.is. Nova stefnir einnig að því að selja fjar­skipta­inn­viði sína til erlendra aðila og er sú sala til skoð­unar hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu.

Þjóðar­ör­ygg­is­ráð hefur einnig verið að rýna söl­una á fjar­skipta­inn­við­unum til erlendra fjár­festa. Ráðið hefur fundað um málið og telur ástæðu til að greina áhættu­þætti sem tengj­ast því.

Höft héldu peningum inni árum saman

Á Íslandi voru sett fjár­magns­höft í nóv­em­ber 2008 til að koma í veg fyrir að umfangs­miklar krónu­eign­ir, meðal ann­ars í eigu kröfu­hafa fall­inna banka, væri ekki skipt yfir í aðra gjald­miðla með til­heyr­andi áhrifum á íslensku krón­una. Höftin voru svo losuð að mestu í mars 2017, en ekki að öllu leyti. Enn var til staðar svokölluð bindi­skylda. Sam­­kvæmt henni var erlendum fjár­­­festum gert að festa fimmt­ung af fjár­­­magni sínu hér til lengri tíma, en með því varð Ísland að óálit­­legri kosti fyrir fjár­­­fest­ingar erlendis frá. Bindi­skyldan var svo afnumin í mars 2019.

Bindi­skyldan kom í veg fyrir að þeir erlendu aðilar sem áttu fjár­fest­ingar hér­lend­is, til dæmis í rík­is­skulda­bréfum eða hluta­bréfum skráðra félaga, seldu þær eignir og færu. Þar var að uppi­stöðu um að ræða fjár­festa sem áttu eignir með rætur í banka­hrun­inu. Um var að ræða til dæmis aflandskrónu­eig­endur eða erlendu sjóð­ina sem áttu kröfur á Kaup­þing og breyttu þeim í hlutafé í Arion banka.

Inn­byggður hvati var til að halda fjár­fest­ing­unum hér­lendis á meðan að bindi­skyldan var við lýði. Fyrstu tvo mán­uð­ina eftir að hún var afnumin virt­ist sem að þessi breytta staða myndi stuðla að jákvæðri þróun fyrir íslenskt hag­kerfi. Hrein nýfjár­fest­ing erlendra aðila hér­lendis var jákvæð um 25 millj­arða króna. Á öllu árinu 2019 var hún jákvæð um 30 millj­arða króna.

Það breytt­ist hins vegar í fyrra.

Hrina fjármagnsútflæðis

Á fyrstu fimm mán­uðum árs­ins 2020 var hrein nýfjár­fest­ing erlendra aðila hér­lendis nei­kvæð um fimm millj­arða króna. Í lok þess tíma­bils var kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn búinn að herja á Ísland í þrjá mán­uði. Í Fjár­mála­stöð­ug­leika­riti Seðla­bank­ans sem kom út í byrjun júlí í fyrra sagði að þessi tala benti til þess að „engin merki hafa verið um fjár­magns­flótta frá land­inu en frá því að far­sóttin náði útbreiðslu hér á landi hefur hrein skráð nýfjár­fest­ing verið jákvæð um 2 ma.kr.“

Á seinni hluta síð­asta árs, og fyrstu mán­uðum árs­ins 2021 komu þau merki hins vegar skýrt fram.

Í Fjár­mála­stöð­ug­leika­riti Seðla­bank­ans sem birt var í apríl sagði að „hrina fjár­magns­út­flæð­is“ hafi hafi haf­ist í fyrra­haust þegar nokkrir erlendir aðilar sem áttu stórar verð­bréfa­stöður hér­lend­is, tóku að selja auð­selj­an­legar krónu­eignir sínar og síðar meir inn­lend verð­bréf. „Á tíma­bil­inu sept­em­ber 2020 - mars 2021 los­uðu erlendir aðilar um 29 ma.kr. af rík­is­bréf­um, 23 ma.kr. af aflandskrónum (inn­stæðu­bréf CBI 2016 fyrst og fremst) en einnig hluta­bréf fyrir 62 ma.kr. og fluttu and­virðið úr landi. Á sama tíma keyptu líf­eyr­is­sjóðir gjald­eyri fyrir 31 ma.kr., að megn­inu til í sept­em­ber og októ­ber.“

Útlendingarnir létu sig hverfa

Aflandskrónur lækk­uðu um helm­ing á síð­asta ári, að megn­inu til undir lok árs. Fram að því hafði staða þeirra lítið sem ekk­ert breyst frá því að losað var um bindi­skyld­una vorið 2019.

Alls flæddu út 52,2 millj­arðar króna í eigu erlendra fjár­festa umfram það sem var nýfjár­fest hér­lendis frá júnílokum og út des­em­ber 2020. Inn­flæðið var 19,3 millj­arðar króna en útflæðið 67,9 millj­arðar króna.

Mest mun­aði um sölu eins skulda­bréfa­sjóðs, Blue Bay Asset Mana­gement, á rík­is­skulda­bréfum sem hann átti, en sjóð­ur­inn átti í upp­hafi árs í fyrra um helm­ing allra rík­is­bréfa í eigu erlendra aðila og los­aði um alla stöð­una á árinu 2020. Sam­an­lagt skil­aði þessi staða því að hrein nýfjár­fest­ing á Íslandi var nei­kvæð um 57 millj­arða króna alls í fyrra.

Til við­bótar seldu tveir stærstu eig­endur Arion banka sig út úr honum á örfáum mán­uðum, eða fra lokum sept­em­ber í fyrra og fram á árið 2021. Um er að ræða vog­un­­­ar­­­sjóð­ina Taconic Capital Advisors og Sculptor Capital Mana­gement. Á örfáum vikum fór eign­ar­hlutur Taconic í Arion banka úr 23,22 pró­sentum í ekk­ert. Sculptor seldi sömu­leiðis allan 6,12 pró­sent hlut sinn snemma á þessu ári.

Fleiri vog­un­­­ar­­­sjóð­ir, sem komu inn í eig­enda­hóp Arion banka eftir að hafa til­­­heyrt kröf­u­hafa­hópi Kaup­þings, hafa líka verið að selja sig nið­ur. Fjórir slík­ir, meðal ann­ars þeir tveir áður­nefndu, áttu sam­an­lagt 32,57 pró­sent hlut í Arion banka fyrir ári. Nú á eng­inn erlendur sjóður meira en eitt pró­sent í bank­anum.

Þótt hægt hafi á fjár­magns­flótt­anum síð­asta rúma hálfa árið hefur erlend nýfjár­fest­ing samt verið nei­kvæð um fjóra millj­arða króna frá lokum mars og til loka októ­ber 2021. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár