Volkswagen viðurkennir annan skandal sem kann að vera mun stærri

Volkswagen svindl­aði með öðrum hætti á vott­un­ar­ferli fyrir koltví­oxíðsút­blástur. Hluta­bréfa­verð fyr­ir­tæk­is­ins hefur hríð­fallið í morgun.

Volkswagen viðurkenndi svindl sitt í fréttatilkynningu eftir að hafa gert innanhúsrannsókn eftir svindl septembermánaðar.
Volkswagen við­ur­kenndi svindl sitt í frétta­til­kynn­ingu eftir að hafa gert inn­an­hús­rann­sókn eftir svindl sept­em­ber­mán­aðar. Mynd: PETER STEFFEN / EPA

Þýski bíla­fram­leið­and­inn Volkswagen hefur við­ur­kennt að við ítar­lega inn­an­húss­skoðun á svindli sínu í haust hafi komið í ljós „óreglu­legt magn útblást­urs koltví­sýr­ings“ úr bílnum þeirra, með öðrum orðum að magn koltví­sýr­ings hafi verið skrúfað niður áður en vérnar voru sendar í próf­anir. Allt að 800.000 bílar sem fram­leiddir eru í verk­smiðjum Volkswagen Group kunna að vera „gall­aðir“ að þessu leyti.

Það þýðir að aðrar bíla­teg­undir í eigu Volkswagen-sam­stæð­unnar gætu verið fram­leiddir með útblást­urs­galla. Verk­smiðjur á borð við Audi, Skoda, Bentley, Bugatti og Porsche eru í eigu Volkswagen.

Fyr­ir­tækið til­kynnti um gallan í frétta­til­kynn­ingu seinnt í gær­kvöldi á vef­síðu sinni. Strax í morgun höfðu hluta­bréf í fyr­ir­tæk­inu fallið um allt að 10 pró­sent í verði, áður en verðið jafn­aði sig út 18 pró­sent lægra en það var við lokun mark­aða í gær.

Umhverf­is­vernd­ar­stofnun Banda­ríkj­anna kom upp um svindl Volkswagen í sept­em­ber. Þá höfðu tölvur bíl­anna verið for­rit­aðar til þess að gera grein­ar­mun á því hvort þær væru tengdar við mæli­tæki eft­ir­lits­að­ila eða ekki og um leið minnka útblástur bíls­ins. Um leið og tölv­urnar voru teknar úr sam­bandi mæld­ist útblást­ur­inn um 40 sinnum meiri en leyfi­legt er.

Loft­teg­undin sem var til umræðu þá var nit­uroxíð sem getur verið hættu­legt mönnum en hefur ekki mikil áhrif á lofts­lagið og lofts­lags­breyt­ingar. Við end­ur­skoðun allra verk­ferla í tengslum við diesel-vélar Volkswagen við­ur­kennir fyr­ir­tækið að magn koltví­oxíðs, CO2 (og þar af leið­andi elds­neyt­iseyðslu), hafi verið skrúfað niður og of lágt þegar vél­arnar voru sendar til útblást­ur­vott­unar. „Megnið af vél­unum til umræðu eru diesel-vélar.“

Matthias Müller, nýskip­aður for­stjóri Volkswagen, seg­ist hafa tekið ákvörðun um að til­kynna um þetta í nafni gagn­sæis. „Þetta er sárs­auka­fullt ferli,“ lætur hann hafa eftir sér í frétta­til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins. Ljóst er að þessi uppgvötun og til­kynn­ing mun hafa í för með sér gríð­ar­legt fjár­hags­legt tjón fyrir Volkswagen. Fyrstu áætl­anir fyr­ir­tæk­is­ins gera ráð fyrir efna­hags­legu tjóni sem nemur um tveimur millj­örðum doll­ara.

Áður en skandall­inn kom upp í sept­em­ber hafði Volkswagen ekki tapað pen­ingum í árs­fjórð­ungs­upp­gjöri í 15 ár. Fyrr á þessu ári tók bíla­fram­leið­and­inn meira að segja framúr Toyota sem stærsti bíla­fram­leið­andi í heimi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár