Stuðningur við ríkisstjórnina jafn lítill og hjá síðustu ríkisstjórn eftir hálft kjörtímabil

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar er aðeins minni eftir að kjör­tíma­bil hennar er hálfnað en stuðn­ingur við rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, sem sat frá 2009 til 2013, var eftir að stjórn­ar­tími hennar var hálfn­aður. Munurinn er þó ekki mik­ill, ein­ungis skeikar einu pró­sentu­stigi. Alls sögð­ust 36 pró­sent lands­manna styðja rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs í júní 2015 en 37 pró­sent sögð­ust styðja rík­is­stjórn Jóhönnu í sama mán­uði árið 2011, þegar hún hafði setið í rúm tvö ár. Þetta kemur fram í tölum Gallup um stuðn­ing við rík­is­stjórnir.


Mikill stuðningur við ríkisstjórnir Davíðs


Þegar horft er lengra aftur í tím­ann er ljóst að vatna­skil urðu við stuðn­ing við rík­is­stjórnir þegar hrunið skall á haustið 2008. Þegar rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks undir for­ystu Davíðs Odds­sonar, sem kosin var til valda árið 1995, hafði setið í tvö ár naut hún stuðn­ings 65 pró­sent lands­manna. Næsta rík­is­stjórn, sem var skipuð sömu flokkum og með sama for­sæt­is­ráð­herra, naut stuðn­ings 57 pró­sent kjós­enda sum­arið 2001, þegar kjör­tíma­bil hennar var hálfnað sum­arið 2001. Þriðja sam­steypu­stjórn þess­arra flokka, sem Davíð veitti for­ystu fyrsta eina og hálfa árið en en Halldór Ásgríms­son það sem eftir lifði kjör­tíma­bils­ins, var ekki jafn vin­sæl en naut samt stuðn­ings 50 pró­sent lands­manna þegar stjórn­ar­tíð hennar var hálfnuð.

Í raun var eina skiptið sem stuðn­ingur við rík­is­stjórn fór niður fyrir rétt tæp­lega 50 pró­sent sum­arið 2004, þegar átök um fjöl­miðla­frum­varpið svo­kall­aða, stóðu sem hæst. Þau átök náðu hámarki þegar Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, beitti neit­un­ar­valdi for­seta í fyrsta sinn í sög­unni og synj­aði lög­unum und­ir­skrift.

Kúvending við hrunið


Algjör kúvend­ing varð í langvar­andi stuðn­ingi við rík­is­stjórnir lands­ins við banka­hrunið. Sú sem sat að völdum þegar hrunið átti sér stað, sam­steypu­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Sam­fylk­ingar undir for­sæti Geirs H. Haarde, naut prýði­legs stuðn­ings sum­arið 2008. Í júní það ár, rúmu ári eftir að stjórnin tók við völdum, naut hún stuðn­ings 52 pró­sent kjós­enda. Sá stuðn­ingur hrundi með bönk­unum. Í nóv­em­ber var hann kom­inn niður í 32 pró­sent og í jan­úar 2009, þegar bús­á­hald­ar­bylt­ingin svo­kall­aða stóð sem hæst, mæld­ist stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina ein­ungis 26 pró­sent. Það er minnsti stuðn­ingur sem nokkru sinni hefur mælst við rík­is­stjórn á Íslandi sam­kvæmt tölum Gallup, enda fór hún frá og minni­hluta­stjórn undir for­sæti Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttir, varin af Fram­sókn­ar­flokknum tók við stjórn­ar­taumunum 1. febr­úar það ár.

Í apríl var svo kosið að nýju og í fyrsta sinn í Íslands­sög­unni var hægt að mynda hreina vinstri­st­jórn þegar Sam­fylk­ing og Vinstri grænir fengu meiri­hluta þing­manna. Vin­sældir þeirrar rík­is­stjórnar mæld­ust geysi­miklar í byrjun, en í maí 2009 mæld­ist stuðn­ingur við hana 61 pró­sent. Þær vin­sældir voru þó fljótar að hverfa þegar hvert risa­málið á fætur klauf þjóð­ina, þingið og stjórn­ar­flokk­anna í herðar niður. Ber þar helst að nefna Icesave-deil­urnar, end­ur­reisn fjár­mála­kerf­is­ins, skulda­mál heim­ila, umsókn um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu, ný stjórn­ar­skrá og breyt­ingar á fisk­veiði­kerf­inu.

[caption id="attachment_14471" align="alignnone" width="600"] Stjórn­ar­tími rík­is­stjórnar Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur ein­kennd­ist af miklum átökum.[/caption]

Stjórnartími ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur einkenndist af miklum átökum.
Stjórn­ar­tími rík­is­stjórnar Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur ein­kennd­ist af miklum átökum.

Þegar rík­is­stjórnin hafði setið helm­ing kjör­tíma­bils­ins var stuðn­ingur við störf hennar hrun­inn. Einungis 37 pró­sent þjóð­ar­innar stóð með henni henni í júní 2011. Botninum náði rík­is­stjórn Jóhönnu þó í mars 2012 þegar ein­ungis rúm­lega 28 pró­sent þjóð­ar­innar studdu hana. Í aðdrag­anda alþing­is­kosn­ing­anna vorið 2013, þegar rík­is­stjórnin var í raun orðin minni­hluta­stjórn og veru­lega veð­ur­barin eftir átök kjör­tíma­bils­ins, jafn innan flokka og þings sem og úti i sam­fé­lag­inu,hafði stuðn­ing­ur­inn bragg­ast eilítið og einn af hverjum þremur sagð­ist styðja hana. Sá stuðn­ingur skil­aði sér alls ekki í kosn­ing­un­unum og flokk­arnir tveir töp­uðu báðir gríð­ar­legu fylgi.

Fengi minna fylgi en hin óvinsæla vinstristjórn


Við tók sam­steypu­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks, með Sigmund Davíð Gunn­laugs­son í stóli for­sæt­is­ráð­herra, enda flokkur hans óum­deil­an­lega sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna þar sem hann fékk 24,4 pró­sent atkvæða og 19 þing­menn. Í fyrstu stuðn­ings­mæl­ingu Gallup mæld­ist stuðn­ingur við nýju rikis­stjórn­ina heil 62,4 pró­sent.

Sá mikli stuðn­ingur ent­ist ekki lengi enda óhætt að full­yrða að átakapóli­tíkin sem var í aðal­hlut­verki á síð­asta kjör­tíma­bili hafi alls ekki verið lögð til hliðar á því sem nú stendur yfir. Í maí síð­ast­liðnum, þegar nákvæm­lega tvö ár voru frá því að rík­is­stjórnin tók við mæld­ist stuðn­ingur við hana 30,9 pró­sent, eða litlu meiri en þegar rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur var sem óvin­sælust.

Kynning á áætlun rík­is­stjórn­ar­innar um losun hafta í síð­asta mán­uði virð­ist þó hafa aukið stuðn­ingin við rík­is­stjórn­ina lít­il­lega því hann óx á milli mán­aða í 36 pró­sent. Það er aðeins minni stuðn­ingur en síð­asta rík­is­stjórn naut þegar hún var hálfnuð með sitt kjör­tíma­bil.

Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna er þó langt frá því sem þeir fengu í kosn­ing­unum vorið 2013, þegar þeir fengu sam­tals 51,1 pró­sent atkvæða. Í júní mæld­ist fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins 24,5 pró­sent og fylgi Fram­sóknar 11,3 pró­sent. Samtals yrði fylgi stjórn­ar­flokk­anna, ef kosið yrði í dag, 35,8 pró­sent.

Þegar hreina vinstri­st­jórnin hafði setið hálft kjör­tíma­bil mæld­ist fylgi Sam­fylk­ingar 21,5 pró­sent en Vinstri grænna 16,4 pró­sent. Sam­an­lagt sögð­ust því 37,9 pró­sent kjós­enda ætla að kjósa þá flokka á þeim tíma, eða 2,1 pró­sentu­stigum fleiri en þeir sem myndu kjósa sitj­andi rík­is­stjórn­ar­flokka í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár