Brynjar íhugar að hætta við að hætta: „Boginn í baki“ undan þrýstingi samflokksfólks

Brynjar Níelsson segir í nýjum hlað­varps­þætti að hann sé ekki end­an­lega búinn að gera upp við sig um hvort hann bjóði sig fram til þings eða ekki. Segist ætla að skoða málin.

Brynjar Níelsson hugsar sig enn um hvort hann eigi að halda áfram í stjórnmálum, eftir að hafa gefið út að hann væri hættur fyrir skemmstu.
Brynjar Níelsson hugsar sig enn um hvort hann eigi að halda áfram í stjórn­málum, eftir að hafa gefið út að hann væri hættur fyrir skemmstu. Mynd: Bára Huld Beck

Brynjar Níelsson þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem gaf það út að hann hygð­ist kveðja stjórn­málin eftir að hafa ekki náð til­skyldum árangri í próf­kjöri flokks­ins í Reykja­vík á dög­unum, seg­ist nú óviss um hvort hann ætli að hætta.

Í sam­tali við Þórarinn Hjart­ar­son, stjórn­anda hlað­varps­ins Ein pæl­ing, segir Brynjar að mjög hart hafi verið gengið að honum um að halda áfram í póli­tík og taka það sæti sem hann náði í próf­kjör­inu, sem ætti að verða þriðja sætið í öðru hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu.[links]

Brynjar sótt­ist eftir 2. sæti í próf­kjör­inu, sem hefði dugað honum til þess að leiða list­ann í öðru hvoru kjör­dæm­inu.

Hann gefur það ekki út í hlað­varp­inu hvort hann ætli að halda áfram, heldur seg­ist hann ætla að „sjá hvernig málin þró­ast“ og „bíða rólegur“. Hann seg­ist enn­fremur undr­andi á þeim mikla stuðn­ingi sem hann hafi fengið frá sjálf­stæð­is­mönnum víða um land um að reyna að ná end­ur­kjöri til þings.

„Eins og einhverjum þyki ég mikilvægur ennþá“

„Það er eins og ein­hverjum þyki ég mik­il­vægur ennþá,“ segir Brynjar í þætt­inum og lætur að því liggja að þrýst­ingur á hann um að taka sæti á lista hafi verið svo mik­ill síð­ustu daga að hann sé orð­inn „bog­inn í baki“.

[adspot]

Helstu leið­togar flokks­ins, bæði Bjarni Bene­dikts­son for­maður og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son odd­viti í Reykja­vík, hafa sagt opin­ber­lega að þeir óski þess Brynjar end­ur­skoði ákvörðun sína um að hætta í stjórn­mál­unum.

Brynjar segir í við­tal­inu að mikið hafi verið smalað inn í próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík af mót­fram­bjóð­endum hans og þar hafi fullt af vinstri­mönnum verið að greiða atkvæði. Fólk sem ekki komi til með að kjósa flokk­inn í haust.

Hann seg­ist aðspurður ekki hafa verið sár eftir að úrslit í próf­kjör­inu lágu fyrir. „Ég var bara fúll, það var auð­vitað ég sem stofn­aði fýlu­púka­fé­lagið,“ sagði hann. En síðan hafi hann áttað sig á því að úrslitin voru ekki jafn slæm og hann taldi í fyrstu – honum hefði ekki verið hent út úr mögu­legu þing­sæti.

Til gam­ans má geta að ef Brynjar ákveður að halda áfram í stjórn­mál­unum væri það ekki í fyrsta sinn sem hann hættir við að hætta. Fyrir nokkrum árum gaf hann það út að hann væri hættur á Facebook. En þar er hann enn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár