15 hrunmálum lokið og 20 enn eftir

Ekki sér fyrir end­ann á með­ferð hrun mála fyrir dóm­stólum ennþá.

Um þessar mundir eru fimm mál til með­ferðar fyrir Hæsta­rétti sem telj­ast til svo­nefndra hrun mála, og tvö fyrir hér­aðs­dómi. Til hrun mála telj­ast mál sem tengj­ast hruni fjár­mála­kerf­is­ins með einum eða öðrum hætti. Tæplega átta og hálft ár eru frá því Kaupþing, Glitnir og Lands­bank­inn féllu eins og spila­borg á þremur dögum, 7. til 9. októ­ber 2008.

Aðspurður um stöð­una á hrun málum um þessar mundir segir Ólafur Þór Hauksson, hér­aðs­sak­sókn­ari, að 15 mál hafi farið fyrir Hæsta­rétt og sé lokið, sex mál séu enn í rann­sókn og önnur sex í ákæru­með­ferð, þar sem meta þarf hvort ákært verði í þeim eða ekki. Eitt mál­anna er í bið­stöðu vegna rann­sóknar erlendis, að sögn Ólafs Þórs. Fimmtán málum er því lokið og 20 málum ólokið, sé mið tekið af þessu.

Banka­stjórar allra bank­anna, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Lárus Welding, fyrr­ver­andi for­stjóri Glitnis, og Sigurjón Þ. Árnason, fyrr­ver­andi banka­stjóri Lands­bank­ans, hafa hlotið fang­els­is­dóma og eru ennþá til með­ferðar mál sem bein­ast að þeim tveimur fyrr­nefndu. Halldór J. Krist­jáns­son, sem var banka­stjóri með Sig­ur­jóni hjá Lands­bank­anum, hefur ekki hlotið dóm vegna hruns­máls og ekki verið ákærður.

Á þriðja tug ann­arra hafa hlotið dóma í hrun­mál­unum, sem flest hafa verið mikil að umfangi og verið tíma­frek í rann­sókn, eins og segir í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar. Stærsta málið, með til­liti til fjölda ákærðra, mál­skjala og umfangs í upp­hæðum, var mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál Kaup­þings, en í því voru allir 9 ákærðu sak­felldir, en þyngstu dómana hlutu æðstu stjórn­endur bank­ans.

Sakfellt hefur verið í vel­flestum mál­unum í Hæsta­rétti, eins og greint er frá í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara frá því í nóv­em­ber í fyrra. „Af þeim 806 málum sem emb­ættið tók við lutu 208 að upp­haf­legu verk­efni þess, rann­sókn og sak­sókn mála sem tengd­ust efna­hags­hrun­inu (hrun­mál), og lauk það með­ferð 173 þeirra, 27 voru í vinnslu þegar emb­ættið var lagt niður og átta biðu afgreiðslu. Alls fóru 46 hrun­mál í ákæru­með­ferð á starfs­tíma emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara. Þar af fékkst end­an­leg dóms­nið­ur­staða í níu mál­anna. Einum dómi hér­aðs­dóms var unað en átta dómar féllu í Hæsta­rétti. Sakfellt var að hluta eða öllu leyti í sjö málum en sýknað í tveimur,“ segir í skýrsl­unni. Þegar allt er talið eru það fimmtán mál, stór og smærri, sem er lokið fyrir Hæsta­rétti, sam­kvæmt svari Ólafs Þórs.

Í nýjasta mál­inu sem telst til hrun mála var sýknað, en í því voru stjórn­ar­menn og for­stjóri SPRON ákærð vegna lán­veit­ingar SPRON til Exista 30. sept­em­ber 2008, eða fyrir tæp­lega átta og hálfu ári. Einnig var sýknað í hér­aði í því máli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár