Fjögur áhersluatriði Tesla næstu 10 árin

Elon Musk er búinn að birta „leyni­á­ætlun“ sína fyrir bíla­fram­leið­and­ann Teslu næstu tíu árin.

Elon Musk stofnaði bílafyrirtækið Tesla árið 2004.
Elon Musk stofn­aði bíla­fyr­ir­tækið Tesla árið 2004. Mynd: EPA

Eftir að Elon Musk seldi inter­net­fyr­ir­tækið PayPal árið 2002 stofn­aði hann SpaceX og Tesla Motors. Geim­ferða­fyr­ir­tækið SpaceX hefur þegar náð tals­verðum árangri og sinnir nú geim­ferðum fyrir NASA og er eitt þeirra fyr­ir­tækja sem þjón­ustar Alþjóð­legu geim­stöð­ina á spor­braut um jörðu. Bíla­fram­leið­and­inn Tesla Motors hefur síðan árið 2004 verið leið­andi í þróun og fram­leiðslu raf­bíla í heim­inum.

Árið 2006 birti Elon Musk „leyni­lega 10 ára áætlun“ á vef Tesla. Mark­miðin þar voru fjögur og hafa þau öll verið upp­fyllt. Hægt er að lesa þennan tíu ára gamla blogg­póst á vefnum. Í vik­unni sem leið birti Musk svo „annan hluta leyni­legu aðal­á­ætl­un­ar­innar“ sem á að gilda næstu tíu árin.

„Listin yfir banda­ríska bíla­fram­leið­endur sem hafa ekki orðið gjald­þrota hefur tvö atriði: Ford og Tesla,“ skrifar Musk í nýj­ustu blogg­færsl­unni sinni. „Að setja bíla­fyr­ir­tæki á legg er heimsku­legt og að stofna raf­bíla­fyr­ir­tæki er heimsku­legt í öðru veldi.“ Mark­miðið með þessum blogg­póstum segir Musk vera að útskýra hvernig Tesla á að passa inn í fram­tíð­ina. Mark­miðið með Teslu sé að hraða þróun í átt að auk­inni sjálf­bærri orku­notkun.

Hér að neðan hafa verið tekin saman lyk­il­at­riði í áætl­un­inni sem Tesla mun starfa eftir næsta ára­tug­inn.

Sjálfbær orkunotkun heimila

Elon Musk hefur þegar byrjað að prófa nýja tækni á sínu eigin heim­ili. Þar er hann búinn að koma fyrir sér­stakri Tesla-raf­hlöðu í bíl­skúrnum hjá sér og þekja þakið sitt með sól­ar­raf­hlöðum sem fram­leiða raf­magn til heim­il­is­nota. Tæknin er enn í þróun en Musk segir hönnun þaks­ins á hús­inu hans koma í veg fyrir að hann þurfi ennþá að tengj­ast hefð­bundnum raf­orku­strengjum.

Markmið Tesla verður að koma þessu í almenn­ings­eign. Þannig geti heim­ili fólks orðið sjálf­bær með raf­orku. Hvort sem það verður til að rista brauð, horfa á sjón­varpið eða hlaða bíl­inn. Í blogg­inu segir að umhverfis allan heim­inn eigi að vera hægt að panta græjurnar í gegnum eina vef­síðu, að aðeins þurfi að setja kerfið upp einu sinni, að einn tengiliður verði fyrir hvern og einn og bara eitt app til að stýra öllu.

Til þess að þetta geti orðið að veru­leika er stefnt að því að sam­eina Teslu og sól­ar­sellu­fyr­ir­tækið SolarCity sem Musk tók þátt í að stofna árið 2006.

Fjölbreyttari rafökutæki

Eins og er þá hefur Tesla aðeins ráð­ist inn á sport­bíla- og jepp­linga­mark­að­inn með bíl­teg­undum sínum. Á næstu tíu árum er mark­miðið að fram­leiða fleiri gerðir bíla. Þegar hefur verið ráð­gert að smíða pall­bíll sem skartar merkjum Tesla. Í blogg­færsl­unni stefnir Musk að því að fram­leiða líka vöru­flutn­inga­bíla, rútur, almenn­ings­sam­göngu­vagna og allt þar á milli.

En til þess að það sé hægt hefur Musk kom­ist að því að Tesla þurfi að breyta verk­smiðjum sínum úr því að vera aðeins það — verk­smiðjur — í að verða sölu­varan. Til þess að þetta gangi upp verður að auka afkasta­get­una allt að tífallt fyrir árið 2022. Þá fyrst geti Tesla-bif­reiðar orðið nógu ódýrar svo almenn­ingur sjái hag í að kaupa slíka bíla.

Bílar sem aka sjálfir verði tífallt öruggari

Sjálfa­kandi bílar hafa þegar verið sendir út á göt­urnar. Google hefur til dæmis náð miklum árangri með sjálfa­kandi hug­bún­að­inn sinn og sýnt fram á að tölvur eru raun­veru­lega mun örugg­ari bíl­stjórar en mann­fólkið sjálft. Þeir sem hafa keypt sér nýjan bíl nýlega hafa að öllum lík­indum einnig upp­lifað bíl­inn taka stjórn­ina við vissar aðstæður. Bílarnir eru farnir að hjálpa þér við að stýra, bremsa og láta þig vita þegar þú ert að bakka á staur eða næsta bíl.

Á næstu tíu árum ætlar Tesla að gera sjálf­stýr­ing­una tíu sinnum örugg­ari en mennska öku­menn. Musk telur að sjálf­stýrðir Tesla-bílar muni þurfa að aka sjálfir um 10 millj­arða kíló­metra til þess að heim­ur­inn taki slíka bíla í sátt. Það mun taka fimm og hálft ár á þeim hraða sem áætl­unin er á núna.

Leyfum bílnum að búa til peninga

Samkvæmt könnun sem gerð var af félagi bif­reiða­eig­enda í Banda­ríkj­unum í fyrra notar hinn almenni bíla­eig­andi bíl­inn sinn að jafn­aði í 46 mín­útur á dag. Á milli þess sem að bíll­inn er í notkunn stendur hann oftar en ekki yfir­gef­inn á bíla­stæði í stór­borg. Tesla hygg­ist bjóða upp á þjón­ustu þar sem bíll­inn getur verið í notkunn lengur á dag. Og búið til pen­inga fyrir eig­and­ann í leið­inni.

Þegar sjálf­stýr­ing bíla verður loks leyfð af yfir­völdum og ekki háð und­an­þágum til til­rauna, mun verða hægt að senda bíl­inn hingað og þangað far­þega­lausan. Bíllinn gæti þess vegna verið heima hjá þér á meðan þú ert í vinn­unni. En hann gæti líka verið að sinna öðrum sem þurfa að kom­ast á milli staða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár