Sigurður Ingi skipar starfshóp um ræktun og nýtingu orkujurta

Ing­veldur Sæmunds­dóttir, aðstoð­ar­maður sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, er for­maður hóps­ins.

Sigurður Ingi Jóhannsson
Sigurður Ingi Jóhanns­son Mynd: Bára Huld Beck

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, hefur skipað starfs­hóp um ræktun og nýt­ingu orku­jurta, sem sagt repju. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

Samkvæmt ráðu­neyt­inu er verk­efni hóps­ins að kanna for­sendur fyrir stór­tækri og sjálf­bærri ræktun orku­jurta á Íslandi til fram­leiðslu á líf­dísil og öðrum afurðum, til að mynda fóð­ur­mjöli, áburði og stönglum.

Í starfs­hópnum sitja Ing­veldur Sæmunds­dóttir, aðstoð­ar­maður ráð­herra og for­maður hóps­ins, Dr. Gylfi Árnason pró­fessor við Háskóla Íslands, Hlín Hólm frá Sam­göngu­stofu, Jón Bern­ód­us­son frá Sam­göngu­stofu, Jón Þor­steinn Gunn­ars­son frá Fóð­ur­blönd­unni, Ólafur Egg­erts­son bóndi á Þor­valds­eyri, Sandra Ásgríms­dóttir frá Mannviti og Sig­ur­bergur Björns­son, skrif­stofu­stjóri sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins. Starfs­hóp­ur­inn mun, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni, skila til­lögum og drögum að aðgerða­á­ætlun fyrir lok sept­em­ber á þessu ári.

[links]Meg­in­verk­efni sér­fræð­inga­hóps­ins er, sam­kvæmt ráðu­neyt­inu, ann­ars vegar að greina fram­leiðslu og fram­leiðslu­verð repju­rækt­unar ásamt flutn­ings­kostn­aði og öðrum kostn­aði við rækt­un­ina, þar með talið hver væru hag­kvæm­ustu rækt­un­ar­svæði lands­ins. Hins vegar að leggja mat á mögu­legan markað fyrir repju­af­urðir og mark­aðs­verð. Það verði einnig hlut­verk hóps­ins að vinna að því að upp­fylla mark­mið í þings­á­lyktun Alþingis frá árinu 2017 um að árið 2030 verði 5 til 10 pró­sent elds­neytis íslenska skipa­flot­ans íblandað líf­elds­neyti.

Sigurður Ingi segir við til­efnið að efl­ing akur­yrkju, ræktun orku­jurta og nýt­ing repju­olíu geti dregið úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á marg­vís­legan hátt. Rann­sóknir sýni að hægt sé að fram­leiða hér á landi líf­dísil úr repju­olíu sem nýta megi sem elds­neyti á þorra þeirra véla sem gerðar eru fyrir dísilolíu úr jarð­olíu. Íslensk fram­leiðsla spari inn­flutn­ing og vinnsla afurð­anna skapar atvinnu og eykur sjálf­bærni.

Hafa unnið að rannsóknum um langt skeið

„Sam­göngu­stofa og þar á undan Sigl­inga­stofnun hefur um langt skeið unnið að rann­sóknum á ræktun orku­jurta á Íslandi og nýt­ingu þeirra. Gerðar hafa verið til­raunir með repju­ræktun sem hafa gef­ist vel. Ræktun og notkun repju­olíu væri hag­kvæm um leið og hún hafi jákvæð áhrif á umhverfið,“ segir á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Þá kemur fram að til­raunir Sam­göngu­stofu bendi til þess að repju­dís­ill gefi við brennslu sam­bæri­lega orku og hefð­bundin dísil­olía. Stór mark­aður sé fyrir repju­olíu sem líf­dísil, en íslenski fiski­skipa­flot­inn brennir til dæmis árlega alls um 160 þús­und tonnum af dísilolíu. Reynslan hafi sýnt að hver hekt­ari lands í repju­rækt gefi af sér um eitt tonn af repju­olíu. Miðað við 10 pró­sent íblöndun þyrfti því að rækta repju á um 16.000 hekt­urum lands.

Sömu­leiðis metur Sam­göngu­stofa ávinn­ing fel­ast í ræktun repju í land­græðslu. „Tækifæri fel­ast í auk­inni akur­yrkju sem hefur náð nokk­urri hylli íslenskra bænda á und­an­förnum árum og ára­tugum. Ræktun á inn­lendu fóðri sem áður var talin utan seil­ingar fyrir Íslend­inga, hefur verið stunduð með ágætum árangri í öllum lands­hlutum og verður sífellt stærri þáttur í fóð­ur­öflun bænda. Það eykur mögu­leika land­bún­aðar og gæti orðið mik­il­væg nýsköpun hér á landi. Ávinn­ing­ur­inn fer eftir því landi sem valið er en hann er mestur á ógrónu landi svo sem á íslenskum söndum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár