Knýja mætti allan skipaflota Íslands með repjuolíu

Stjórn­völd hafa í hyggju að fara af stað með aðgerða­á­ætlun til að ná því mark­miði að íslenski skipa­flot­inn noti 5 til 10 pró­senta íblöndun af íslenskri repju­olíu á aðal­vél­arnar með það fyrir augum að minnka losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá skipum.

Unnt væri að fram­leiða næga repju­olíu hér landi fyrir elds­neyti á allan skipa­flota Íslend­inga en hann brennir árlega um 160 þús­und tonnum af jarð­dísilolíu. Sam­göngu­stofa telur að ræktun og notkun repju­olíu hér á landi sé hag­kvæm og góður kostur þegar litið er til umhverf­is­á­hrifa. Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráð­herra, hyggst skipa starfs­hóp sem vinna á að áætlun um að íslenski skipa­flot­inn noti 5 til 10 pró­sent íblöndun af íslenskri repju­olíu á aðal­vélar sínar.

Hægt að nýta repjuolíu á þorra véla

Árið 2008 hófst verk­efni um sjálf­bæra ræktun orku­jurta til skipa­elds­neytis á Íslandi hjá Sigl­inga­stofnun Íslands. Samkvæmt svari Sigurðar Inga við fyr­ir­spurn frá Silju Dögg Gunn­ars­dóttur, þing­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins, um sjálf­bæra ræktun orku­jurta hefur verk­efnið skilað mik­illi þekk­ingu, en rann­sóknir á ræktun repju sem orku­jurtar og notkun líf­dís­ils hafa sýnt að hægt er að fram­leiða hér á landi líf­dísil úr repju­olíu sem nýta má sem elds­neyti á þorra þeirra véla sem gerðar eru fyrir dísilolíu úr jarð­olíu.

Í svari ráð­herra segir að þegar litið sé til mark­miða um sjálf­bærni í orku­fram­leiðslu og lofts­lags­mark­miða sé ræktun og notkun repju­olíu góður kostur. Ávinn­ing­ur­inn fari þó að nokkru leyti eftir því landi sem valið er.

Sé valið land sem ræst hefur verið fram gæti ávinn­ing­ur­inn orðið hverf­andi. Sé valið ógróið land, svo sem eins og þeir sandar sem eru hér á landi, verður ávinn­ing­ur­inn mestur. [adspot]

Brennir 160 þúsund tonnum á ári

Íslenski fiski­skipa­flot­inn brennir árlega um 160 þús­und tonnum af jarð­dísilolíu. Orkan sem repju­dís­ill gefur við brennslu er mjög sam­bæri­leg við það sem jarð­dís­ill gefur af sér. Til þess að rækta repju sem gefur þetta magn af elds­neyti þarf 160 þús­und hekt­ara lands miðað við að hver hekt­ari gefur af sér um eitt tonn af repju­olíu.

Sé miðað við ræktun repju á sandi dregur hver hekt­ari lands í sig um 6 tonn af koldí­oxíði (CO2) á rækt­un­ar­tíma, með til­liti til brennslu elds­neytis við notkun tækja við rækt­un­ina. Við ræktun repju á 160 þús­und hekt­urum lands dregur hún því í sig tæp­lega milljón tonn af koldí­oxíði meðan á rækt­un­inni stendur.

Við brennslu á 160 þús­und tonnum af repju­olíu eru losuð um 500 þús­und tonn af koldí­oxíði í and­rúms­loftið. Eftir standa um 500 þús­und tonn af koldí­oxíði sem rækt­unin hefur dregið til sín úr and­rúms­loft­inu og bundið í jörð. Koldí­oxíðið sem bund­ist hefur und­ir­býr jarð­veg­inn fyrir næstu ræktun. 

Við brennslu á 160 þús­und tonnum af jarð­dísil er los­unin koldí­oxíðs tæp 500.000 tonn. Losun koldí­oxíðs sem verður við brennslu jarð­dís­ils og repju­olíu er því mjög sam­bæri­leg en við ræktun á repju­olíu er sama magni af koltví­oxíði bundið í jörðu.

Hægt að nota aukaafurðir repjuræktunar í áburð og fóðurmjöl

Enn fremur kemur fram í svar­inu að þær auka­af­urðir sem fylgja repju­ræktun er hægt að nota sem áburður og fóð­ur­mjöl sem notað er sem dýra­fóður. Við fram­leiðslu á repju­dísil fellur einnig til verð­mæt auka­af­urð, glyseról. Glyser­ólið þarf að hreinsa en er síðan hægt að nota til hreins­unar í margs konar efna­iðn­aði.

Samhliða þessum rann­sóknum hefur farið af stað sam­starfs­verk­efni Sam­göngu­stofu, verk­fræði­stof­unnar Mannvits og útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Skinney-Þinganes á Höfn í Horna­firði.

Útgerð­ar­fyr­ir­tækið rekur stórt kúabú á Flatey á Mýrum þar sem ræktuð er repja og unnin úr henni olía sem er nýtt sem elds­neyti fyrir skip fyr­ir­tækis. Auk þess fylgir rækt­un­inni áburður og fóð­ur­mjöl fyrir naut­gripi, en á búinu eru alls 500 naut­gripir. Stefnt er að því að allt elds­neyti fiski­skipa fyr­ir­tæk­is­ins verði hrein repju­olía í fram­tíð­inni og að allur fóð­ur­bætir kúa­bús­ins að koma frá repju­rækt­un­inni.

Markmiðið að íslenski skipaflotinn noti íslenska repjuolíu

Á Íslandi eru um 480.000 hekt­arar af ónot­uðu rækt­un­ar­landi sem með sér­stöku átaki væri að nýta til að fram­leiða alla þá olíu sem íslenski skipa­flot­inn notar, að því er fram kemur í svar­inu. Ræktun repju­olíu myndi því ekki ógna mat­væla­fram­leiðslu þar sem þessi land­svæði eru ekki í notkun í dag.

„Þegar litið er til mark­miða um sjálf­bærni í orku­fram­leiðslu og lofts­lags­mark­miða er þetta ótví­rætt góður kostur,“ segir Sigurður Ingi en hann ætlar að sjá til þess að rann­sókn­ar­verk­efnið haldi áfram enda sé það hluti af áherslu­at­riðum stjórn­valda til að mæta los­un­ar­á­hrifum sam­kvæmt Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu sem og aðgerða­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar í lofts­lags­málum. 

Þá hafa stjórn­völd hyggju að fara af stað með aðgerða­á­ætlun til að ná því mark­miði að íslenski skipa­flot­inn noti 5 til 10 pró­sent íblöndun af íslenskri repju­olíu á aðal­vélar sínar. Stefnt er að því að starfs­hópur verði skip­aður sem fyrst og að fyrstu drög liggi fyrir í árs­lok.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár