Segja Sigmund verja valdakerfi sem hygli körlum

„Sig­mundur [Davíð Gunn­laugs­son] er að verja valda­kerfi undir for­merkjum „vest­rænnar sið­menn­ingar“, sem hyglir körlum eins og honum á kostnað jað­ar­setts fólks,“ segir stuðn­ings­fólk Black Lives Matter á Íslandi.

„Þegar Sig­mundur [Davíð Gunn­laugs­son] ræðst gegn Black Lives Matter er hann því ekki að verja jafnan rétt fólks. Þvert á móti er hann að gera mann­rétt­inda­bar­áttu tor­tryggi­lega og boða rasíska, fóbíska og kven­fjand­sam­lega hug­mynda­fræði. Slík hug­mynda­fræði mun ein­göngu geta af sér meiri sundr­ung og djúp­stæð­ara órétt­læti.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í aðsendri grein á Vísi í dag sem skrifuð er af fjöl­mennum hópi fólks sem styður hreyf­ingu Black Lives Matter sem barist hefur m.a. gegn lög­reglu­of­beldi og kúgun svartra í Banda­ríkj­unum.

Um er að ræða svar­grein við heil­síðu­grein Sig­mundar Davíðs, for­manns Mið­flokks­ins, sem birt var í Morg­un­blað­inu um síð­ustu helgi.

Í grein stuðn­ings­hóps­ins segir að í grein Sig­mundar megi finna ýmsar rang­færslur og hóp­ur­inn vilji svara „þeirri hug­mynda­fræði sem Sig­mundur Davíð boðar, enda er fram­tíð íslensks sam­fé­lags, jafn­réttis og lýð­ræðis í húfi“.

„Sig­mundur er að verja valda­kerfi undir for­merkjum „vest­rænnar sið­menn­ingar“, sem hyglir körlum eins og honum á kostnað jað­ar­setts fólks,“ stendur í grein­inni. „Hann er að verja harð­línu­kap­ít­al­isma sem bein­línis hvetur til arð­ráns ríks fólks á fátæku fólki. Hann er að verja þrönga og þving­aða sýn á fjöl­skyldu­form sem hefur verið notað sem átylla til kúg­unar á fólki sem ekki fellur undir gam­al­dags skil­grein­ingar á kyn­vit­und og kyn­hneigð. Hann er að verja stjórn­kerfi, lög­reglu og dóm­stóla sem rann­sóknir og sagan sýna að þjóna því miður fyrst og fremst þeim sem njóta for­rétt­inda í sam­fé­lag­inu. Þetta birt­ist m.a. í við­horfum til kyn­ferð­is­brota­mála, mansals, mót­töku flótta­fólks og örorku­bóta, við­horfum sem end­ur­spegla ekki við­ur­kenn­ingu þess órétt­lætis og mis­réttis sem jað­ar­sett fólk verður fyrir í sam­fé­lag­inu.“

Bent er á að greinin sé skrifuð af „hvítum, ríkum, gagn­kyn­hneigðum, valda­miklum, mið­aldra karli sem hefur aldrei látið sig bar­áttu jað­ar­settra hópa varða. Hann hefur aldrei upp­lifað for­dóma eða félags­legt mót­læti vegna jað­ar­setn­ingar og aldrei þurft að glíma við ótta vegna kerf­is­lægrar hættu á áreitni eða ofbeldi. Greinin er óreiðu­kenndur sam­tín­ingur raka­lausra sögu­sagna sem auð­velt er að afskrifa sem þvælu, af því að í barns­lægri ein­lægni trúum við því flest að skrif á borð við þessi dæmi sig sjálf“.

Hópurinn segir löngu tíma­bært að upp­ræta „stofn­ana­bund­inn og skelfi­legan ras­isma“ sem hefur áhrif á dag­legt líf alls svarts og brúns fólks í heim­inum. „Það er okkar ein­læga von að kjós­endur láti Sigmund Davíð ekki slá ryki í augu sér með hat­urs­fullum skrifum sem hafa það mark­mið að sundra fólki sem berst gegn kúgun og ofbeldi og safna á sama tíma atkvæðum fyrir sjálfan sig. Við heitum því að gera allt sem í okkar valdi stendur til að berj­ast gegn öllum þeim kerfum sem kúga, arð­ræna og jað­ar­setja fólk og standa sam­einuð vörð um mann­rétt­indi hvers ann­ars. Síðast en ekki síst munum við aldrei sitja þegj­andi undir upp­gangi fasískra stjórn­mála­afla.“

Greinina má lesa í heild hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár