Pfizer-rannsókn hefði skilað þekkingu „einmitt af því að við erum nánast veirufrí“

Rannsókn Pfizer á Íslandi hefði getað svarað mörgum spurn­ingum um virkni bólu­efn­is­ins einmitt af þeirri ástæðu að hér eru mjög fá smit, segir líf­töl­fræð­ing­ur­inn Jóhanna Jak­obs­dóttir í við­tali við Kjarnann.

Jóhanna Jakobsdóttir líftölfræðingur er í teymi vísindamanna Háskóla Íslands sem gera spálíkan um faraldurinn.
Jóhanna Jak­obs­dóttir líf­töl­fræð­ingur er í teymi vís­inda­manna Háskóla Íslands sem gera spálíkan um far­ald­ur­inn. Mynd: Kristinn Ingvarsson/Háskóli Íslands

Enn á eftir að svara mörgum spurn­ingum um virkni þeirra bólu­efna fyrir COVID-19 sem þegar eru komin á markað. Vitað er að þau veita vörn gegn alvar­legum veik­indum en svör vantar til dæmis enn við því hvort að bólu­settur geti enn borið smit í aðra og hversu góða vörn þau veita gegn nýjum afbrigðum veirunnar.

Í des­em­ber og jan­úar fór af stað mikil umræða í sam­fé­lag­inu um mögu­lega þátt­töku Íslend­inga í bólu­efna­rann­sókn lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Pfizer. Bóluefni þess, sem þróað var í sam­starfi við þýska líf­tækni­fyr­ir­tækið BioNtech, var það fyrsta sem fékk mark­aðs­leyfi í Evrópu og á Íslandi. Eftir fund sótt­varna­læknis og for­stjóra Íslenskrar erfða­grein­ingar með for­svars­mönnum Pfizer í febr­úar var hins vegar ljóst að af henni yrði lík­lega ekki. Skýr­ingin: Hér eru of fá smit til að slík rann­sókn myndi skila þeim árangri sem stefnt var að.

[adspot]

Jóhanna Jak­obs­dóttir lektor í líf­töl­fræði við Háskóla Íslands, veltir í við­tali við Kjarnann upp annarri hlið á mál­inu og segir að gera hefði mátt rann­sókn­ina einmitt af því að smitin eru fá. Þannig hefði feng­ist ný þekk­ing og önnur en í löndum þar sem byrjað var að bólu­setja af kappi í miðri bylgju far­ald­urs. „Rann­sóknin hefði getað svarað svo mörgum spurn­ingum,“ segir hún. Ein sú helsta væri sú hversu mikið bólu­efni dregur úr því að bólu­settur ein­stak­lingur sem sýk­ist smiti aðra. „Við hefðum getað svarað því mjög fljótt og það hefðu verið verð­mætar upp­lýs­ingar fyrir alla bólu­efna­fram­leið­endur. Því við erum með svo mikið af gögnum til að byggja á nú þegar.“

[links]Rann­sóknin hefði getað verið tví­skipt, segir Jóhanna. Annars vegar byggt á því að fá leyfi vís­inda­siða­nefndar til að taka saman lýð­grunduð gögn og gera á þeim sam­an­tektir en slíkt er nú þegar gert að ein­hverju leiti þegar við fáum upp­lýs­ingar um stöðu far­ald­ur­ins frá sótt­varna­lækni. Fylgst er með þróun far­ald­urs­ins í þýð­inu. „Þannig má segja að við séum þegar partur af rann­sókn – innan gæsalappa,“ bendir Jóhanna á. En svo hefði einnig verið hægt að fara í klíníska rann­sókn þar sem fólk er kallað inn til þátt­töku, t.d. í mótefna­mæl­ingu og fleira, og þyrfti þá að sjálf­sögðu gefa sitt upp­lýsta sam­þykki.

Pfizer er að gera sam­bæri­lega rann­sókn í Ísrael sam­hliða fjölda­bólu­setn­ingu en þar hófst hún í mestu bylgju far­ald­urs­ins frá upp­hafi. „Ég tel að rann­sókn hér hefði getað bætt við þekk­ingu einmitt af því að við erum nán­ast veiru­frí. Þegar mikið smit er í gangi skekkir það mat okkar á raun­veru­legri virkni bólu­efnis. Fólk getur til dæmis smit­ast áður en efnið er farið að virka. En á Íslandi hefðum við mögu­lega getað sýnt fram á það að þegar nán­ast ekk­ert smit er í gangi er virknin meiri en á fyrri stigum klínískra rann­sókna. Við hefðum getað bólu­sett alla á skömmum tíma, í þessu góða ástandi, og svo hefði fólk farið að ferð­ast hingað og við héðan. Hvað hefði þá gerst? Þetta er áhuga­verð rann­sókn­ar­spurn­ing.

Aðal­spurn­ingin sem Pfizer þarf að leita svara við snýst um hjarð­ó­næmið og hvort að bólu­efnið komi ekki aðeins í veg fyrir sjúk­dóm heldur einnig sýk­ingu yfir höfuð og hvort að bólu­settir beri smit á milli.

Fyrir mér eru það von­brigði að rann­sóknin verði lík­lega ekki gerð hér. Ég held að hún hefði haft mikið gildi fyrir heims­byggð­ina.“

Ítarlegt við­tal við Jóhönnu birt­ist í Kjarn­anum um helg­ina og má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár