Föruneyti Xi Jinping stjórnar 67 faldri landsframleiðslu Íslands

Föru­neyti Xi Jinping, for­seta Kína, í Banda­ríkj­unum er skipað 160 stjórn­mála­mönnum, emb­ætt­is­mönnum og stjórn­endum nokk­urra stærstu fyr­ir­tækj­anna í Kína. Aðeins þrír leið­togar Kína hafa komið í opin­bera heim­sókn til Banda­ríkj­anna síðan Alþýðu­lýð­veldið Kína var stofnað árið 1949.

Jiang Zemin, sá sami og heim­sótti Ísland sum­arið 2002, kom til Banda­ríkj­anna árið 1997 þegar hag­kerfi Kína var minna en hag­kerfi Ítalíu. Hu Jintao naut svo gest­risni Barack Obama árið 2011. Nú þegar Xi heim­sækir Banda­ríkin er kín­verska hag­kerfið orðið það stærsta í heimi.

For­set­inn og föru­neyti hans lentu í Seattle fyrr í vik­unni og sátu kvöld­verð með for­svars­mönnum stærstu fyr­ir­tækja Banda­ríkj­anna og Henry Kiss­in­ger, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna. Banda­rískir fjöl­miðlar segja for­setan hafa verið hylltan sem leið­toga stór­veldis og sem mik­il­vægur við­skipta­maður handan Kyrra­hafs­ins. Örygg­is­gæsla á hót­eli for­set­ans hafi jafn­framt verið mun meiri en þegar for­seti Banda­ríkj­anna heim­sækir Seattle.

Obama og Xi hitt­ust síð­ast í Peking fyrir tæpu ári síðan þar sem ákveðið var að vera sam­stíga í að minnka losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og að auka sam­skipti herja land­anna. Eftir efna­hag­skrísu sum­ars­ins í Kína hefur Xi einnig und­ir­strikað heil­brigði kín­versks efna­hags í ræðu og með föru­neyti sínu, þar sem finna má 15 rík­ustu menn Kína.

Sam­an­lagt er mark­aðsvirði fyr­ir­tækj­anna sem þessir menn eru í for­svari fyrir 987,3 millj­arðar banda­ríkja­dala. Það er um það bil 127 þús­und millj­arðar íslenskra króna eða rétt tæp­lega 67 föld lands­fram­leiðsla Íslands árið 2014. Þessir 15 kín­versku stjórn­endur munu sitja fund með kol­legum sínum í 15 stærstu fyr­ir­tækjum í Banda­ríkj­unum í dag.

Hverjir eru þessir menn? Hér að neðan er list­inn eins og hann birt­ist í mynd­bandi Wall Street Journal síðan í síð­ustu viku.


  • Jack Ma, for­stjóri Alibaba
    Mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins: 175,5 millj­arðar doll­ara

  • Ma Huateng, for­stjóri Tencent
    Mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins: 162,5 millj­arðar doll­ara

  • Li Yan Hong, for­stjóri Baidu
    Mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins: 51,6 millj­arðar doll­ara

  • Yang Yuanqing, for­stjóri Lenovo
    Mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins: 10,3 millj­arðar doll­ara

  • Tian Guoli, stjórn­ar­for­maður Bank of China
    Mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins: 202,2 millj­arðar doll­ara

  • Jiang Jianqing, stjórn­ar­for­maður iðn­aðar og við­skipta­banka Kína
    Mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins: 294,4 millj­arðar doll­ara

  • Lu Guanqiu, stjórn­ar­for­maður Wanxiang Group
    Mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins: 6,62 millj­arðar doll­ara

  • Pan Gang, for­stjóri Yili Industrial í Innri Mongólíu
    Mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins: 15,17 millj­arðar doll­ara

  • Wang Yusuo, stjórn­ar­for­maður ENN Energy
    Mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins: 5,7 millj­arðar doll­ara

  • Liang Haishan, for­seti Haier Group
    Mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins: 14,7 millj­arðar doll­ara

  • Ma Zehua, stjórn­ar­for­maður China COSCO
    Mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins: 15,6 millj­arðar doll­ara

  • Guan Qing, for­seti bygg­inga­verk­fræði­stof­unnar Kína
    Mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins: 29,4 millj­arðar doll­ara

  • Wan Long, for­stjóri WH Group
    Mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins: 9 millj­arðar doll­ara

  • Li Qiang, for­stjóri Tianjin Pipe-sam­stæð­unnar
    Mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins: óvíst

  • Wang Jinshu, stjórn­ar­for­maður Yuhuang Chemical Group
    Mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins: óvíst


https://www.youtube.com/watch?v=F6gayx32RhM

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár