Ríkisstjórninni til háborinnar skammar að hafa þúsundir barna í fátækt

Þing­maður Flokks fólks­ins segir að það eigi ekki að eiga sér stað í sið­mennt­uðu sam­fé­lagi þar sem mann­rétt­indi eiga að vera í fyr­ir­rúmi að barn fái ekki lækn­is­þjón­ustu og bíði svo mán­uðum eða árum skiptir á biðlista.

Guðmundur Ingi Kristinsson þingmaður Flokks fólksins.
Guð­mundur Ingi Krist­ins­son þing­maður Flokks fólks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son þing­maður Flokks fólks­ins segir að Ísland sé eitt rík­asta sam­fé­lag í heimi og það sé rík­is­stjórn­inni til hábor­innar skammar að hafa þús­undir barna í fátækt.

Þetta kom fram í máli hans undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni.

Nefndi hann að á mál­þingi Vel­ferð­ar­sjóðs barna um barna­fá­tækt í húsa­kynnum Íslenskrar erfða­grein­ingar um liðna helgi hefði komið fram sú spurn­ing hvort Íslend­ingar hefðu yfir höfuð efni á því að hafa börn í fátækt.

Skólamáltíðir, leikskólar, tannréttingar, fótboltaæfingar og tónlistarnám ætti að vera gjaldfrjálst

„Spurn­ing­arnar voru um hvort eðli­legt væru að rukka börn fyrir skóla­mál­tíðir, leik­skóla, tann­rétt­ingar, fót­bolta­æf­ingar eða tón­list­ar­nám. Auðvitað á þetta allt að vera gjald­frjálst fyrir börnin og for­eldra þeirra sem eiga auð­vitað að fá þau laun og/eða líf­eyr­is­laun sem eru mann­sæm­andi og vel yfir fátækt­ar­mörkum.

Við erum eitt rík­asta sam­fé­lag í heimi og það er rík­is­stjórn­inni til hábor­innar skammar að hafa þús­undir barna í fátækt. Súlurit, köku­rit, línu­rit, enda­lausar tölur um vel­ferðar- og heil­brigð­is­kerfið verður að stöðva strax og sjá til þess í eitt skipti fyrir öll að engin fjöl­skylda á Íslandi lifi undir fátækt­ar­mörkum, hvað þá við sára­fá­tækt. Að barn fái ekki lækn­is­þjón­ustu og bíði svo mán­uðum eða árum skiptir á biðlista á ekki að eiga sér stað í sið­mennt­uðu sam­fé­lagi þar sem mann­rétt­indi eiga að vera í fyr­ir­rúmi,“ sagði hann.

Guð­mundur Ingi vís­aði í orð tals­manna rík­is­stjórn­ar­innar að þeir sem búa til fátækt væru svo fáir. „Hvers vegna gera þeir þá ekk­ert? Er í lagi að börn séu lík­am­lega, and­lega og félags­lega svelt, bara af því að þau eru svo fá? Þetta eru þús­undir barna. Er eðli­legt að skerða barna­bætur við lægstu líf­eyr­is­laun frá Trygg­inga­stofnun rík­is­ins sem eru vel undir fátækt­ar­mörkum? Hvers vegna? Heldur rík­is­stjórnin að með því komi hún í veg fyrir að fátækt fólk eign­ist börn? Á þetta að vera fæl­ing­ar­máttur? Jað­ar­sett fjöl­skylda með börn úti í horni vel­ferðar- og heil­brigð­is­kerf­is­ins er okkur hér á Íslandi til hábor­innar skammar,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár