Katrín svarar Sigmundi Davíð – „Kynin samkvæmt lögum eru ekki lengur tvö“

Formaður Mið­flokks­ins spurði for­sæt­is­ráð­herra fyrr í sumar hversu mörg kyn mann­fólks væru, að mati ráðu­neytis hennar. Í svari for­sæt­is­ráð­herra er bent á að í lögum um kyn­rænt sjálf­ræði sé kveðið á um óskor­aðan rétt ein­stak­linga til að skil­greina kyn sitt.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Kynin sam­kvæmt lögum eru ekki lengur tvö, kona og karl, heldur opnar skil­grein­ingin á hug­tak­inu í lögum á þann mögu­leika að kyn séu fleiri.“

Þetta kemur fram í svari Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni for­manni Mið­flokks­ins um kyn. Hann spurði hversu mörg kyn mann­fólks væru, að mati ráðu­neyt­is­ins.

Í svar­inu er bent á að í lögum um kyn­rænt sjálf­ræði sé kveðið á um óskor­aðan rétt ein­stak­linga til að skil­greina kyn sitt.

Skilgreining kyns ræðst ekki eingöngu af líffræði

„Samkvæmt sömu lögum er hlut­laus skrán­ing kyns heimil og ber aðilum sem skrá­setja kyn að gera ráð fyrir því að ein­stak­lingar geti skráð kyn sitt með þrennum hætti, kona, karl og kyn­hlut­laus. Hugtakið kyn er skil­greint í fram­an­greindum lögum sem „safn­hug­tak sem nær meðal ann­ars yfir kynein­kenni, kyn­gervi, kyn­vit­und og kyntján­ingu“. Skil­grein­ing kyns ræðst því ekki ein­göngu af líf­fræði.

Samkvæmt fram­an­sögðu er opin­ber skrán­ing kyns sam­kvæmt lögum nú þrenns konar og opnar hlut­laus skrán­ing kyns á þann mögu­leika að ein­stak­lingur sem telur sig ekki falla undir hefð­bundna flokkun í konu eða karl geti nú skil­greint sig sem kyn­hlut­lausan sam­kvæmt opin­berum gögnum,“ segir í svar­inu.

Þá kemur enn fremur fram hjá ráð­herra að frá 6. jan­úar 2021 hafi verið hægt að óska eftir hlut­lausri skrán­ingu kyns í þjóð­skrá. Í sam­vinnu við Samtökin ’78 hafi Þjóðskrá Íslands ákveðið að ein­stak­lingar sem óska eftir hlut­lausri skrán­ingu kyns í þjóð­skrá skyldu skráðir „kynsegin/annað“. Talið sé að um þetta heiti megi ná sem mestri sátt innan hinsegin sam­fé­lags­ins og að flestir ein­stak­lingar geti sam­samað sig því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár