Þurfum að „taka til hendinni“ hvað varðar samþjöppun valds og auðmagns í kvótakerfinu

Í Ver­búð­inni sáum við „óþægi­lega gott dæmi“ um það þegar stjórn­málin og við­skiptin fara í eina sæng, segir Svandís Svav­ars­dóttir. „Og úr því verður kjör­lendi fyrir spill­ingu, fyrir þróun sem að verður erfið og kemur niður á öllum almenn­ingi.“

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Við þurfum að taka til hend­inni að því er varðar sam­þjöppun valds og sam­þjöppun auð­magns í þessu kerfi,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra, í við­tali við Sigmund Erni Rún­ars­son á Frétta­vakt­inni í gær­kvöldi. Umfjöll­un­ar­efni þátt­ar­ins var kvóta­kerfið og áform um breyt­ingar á því. Hún ræddi hið sama í Morg­un­út­varp­inu á Rás 1 í morgun og sagði ólg­una sem fylgt hafi kerf­inu alla tíð sé vegna þess að það „urðu of fáir of ríkir“.

Svandísi fannst Verbúðin „algjör­lega frá­bærir“ þættir sem hafi fengið okkur öll til að horfa í bak­sýn­is­speg­il­inn „og svo­lítið á okkur sjálf“. Þátta­röðin væri svo ekki síst um „þennan stór­hættu­lega kok­teil við­skipta og stjórn­mála,“ sagði Svandís svo á Rás 1 í morgun, „pen­inga­legra hags­muna og póli­tískra hags­muna.“ Hættan á spill­ingu væri fyrir hendi í raun­veru­leik­anum.

Sig­mundur Ernir Rún­ars­son spurði ráð­herr­ann á Frétta­vakt­inni hvernig við hefðum „kom­ist þangað“ og vís­aði til afleið­inga kvóta­kerf­is­ins.

„Þá langar mig að tala um okkar erindi, okkar vinstri manna, í stjórn­málin,“ svar­aði Svandís. „Og það er að greina á milli stjórn­mála og við­skipta. Það er að segja almanna­valds­ins ann­ars vegar og fjár­magns­ins hins vegar. Og þarna sjáum við dæmi, óþægi­lega gott dæmi um það, að þegar þessi tvö öfl, þessir tveir kraftar í raun og veru, fara í eina sæng. Og úr því verður kjör­lendi fyrir spill­ingu, fyrir þróun sem að verður erfið og kemur niður á fólki, á öllum almenn­ingi.“

[adspot]

Svandís segir að staðan á þessum árum í sjáv­ar­út­vegi, áður en kvóta­kerfið var sett á, hafi verið þannig að „það þurfti eitt­hvað að ger­ast“. Koma hafi þurft í veg fyrir að gengið væri um of á fiski­stofna og að fjár­fest­ingar í grein­inni væru of miklar. „Sumir hlutar kerf­is­ins hafa algjör­lega þjónað þeim mark­miðum.“ Í grunn­inn væri sjáv­ar­út­veg­ur­inn að ganga mjög vel.

En að um leið og hún færi að spyrja fólk hver vandi kerf­is­ins væri „þá koma alltaf þessi svör. Það er ann­ars vegar að það séu of fáir sem verða of ríkir. Og hins vegar það að það eru byggðir sem hafa í raun og veru algjör­lega liðið fyrir þessa kerf­is­breyt­ingu. Þetta þýðir það að við þurfum að taka til hend­inni að því er varðar sam­þjöppun valds og sam­þjöppun auð­magns í þessu kerfi.“

[links]Að hluta til væri hægt að gera það með því að vera skýr­ari hvað varðar tengda aðila í lög­gjöf­inni „og senni­lega þurfum við að breyta lög­unum í því“. Einnig væri hægt að gera betur með eft­ir­liti. „Með því að halda betur utan um það að það séu í raun og veru ekki tengdir aðilar sem séu með alla tauma í sínum höndum.“

Svandís sagði umboð stjórn­valda til slíks eft­ir­lits til staðar. „Ef við eigum að ná ein­hverju sem heitir sátt í þessu kerfi, sem er ekki eitt­hvað sem við gerum á nokkrum vikum eftir fjöru­tíu ára spennu, þá gerum við það með því að kerfið sé að þessu leyt­inu til rétt­lát­ara.“

En ætlar þú að gera þetta? spurði Sig­mundur Ernir.

„Já, það ætla ég að gera.“

Til­teknar breyt­ingar væri að sögn Svan­dísar hægt að gera strax, m.a. að skerpa á eft­ir­liti. En síðan þurfi að taka kerfið í heild, í sam­ræmi við stjórn­ar­sátt­mál­ann, bera það saman við kerfi ann­arra landa, „og sjá hvort að við séum að ná þessum mark­miðum“.

[adspot]

Svandís sagði aðspurð að það myndi sjá sér stað að í stóli ráð­herra sjáv­ar­út­vegs sæti mann­eskja sem væri með „heildar- og almanna hags­muni númer eitt. Það er mitt hlut­verk. [...] Ég lít svo á að ég sé í þessum mála­flokki ráð­herra allrar þjóð­ar­innar og alls sam­fé­lags­ins en ekki til­tek­inna hags­muna.“

Algjört „algjört lyk­il­at­riði“ væri að koma auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá. Nátt­úru­auð­lindir, hvort sem það er fisk­ur­inn, fall­vötnin eða vind­ur­inn, eru auð­lindir „sem eng­inn getur átt annar en þjóðin öll“.

Spurð hvort það gæti reynst erfitt að ná þessum breyt­ingum fram í stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki svar­aði ráð­herr­ann því til að stórum skrefum í stjórn­málum þurfi að ná með breiðri sátt. „Ég treysti mér til þess að stíga þessi skref með það að leið­ar­ljósi að við séum alltaf undir flaggi heild­ar­hags­muna.“

Svandís seg­ist hafa sett sér það mark­mið að taka saman þau verk­efni sem stefnt sé á að fara í og leggja fyrir rík­is­stjórn fyrir mán­aða­mótin og að málið verði einnig inn í sam­ráðs­gátt stjórn­valda þar sem almenn­ingur getur nálg­ast það og sagt sína skoðun á því.

Lögin eru skýr

Til að veiða fisk í íslenskri lög­­­sögu þarf að kom­­ast yfir úthlut­aðan kvóta sem úthlutað er í sam­ræmi við lög um stjórn fisk­veiða. Um­rædd lög eru skýr. Þau segja að eng­inn hópur tengdra aðila megi halda á meira en tólf pró­­sent af heild­­ar­afla. Þau mörk eiga að koma í veg fyrir of mikla sam­­þjöppun í sjá­v­­­ar­út­­­vegi á meðal þeirra fyr­ir­tæki sem fá að vera vörslu­að­ili fiski­mið­anna, sem eru sam­­kvæmt lögum þó ekki eign þeirra heldur þjóð­­ar­inn­­ar. Til að telj­ast tengdur aðili er þó gerð krafa um meiri­hluta­­eign eða raun­veru­­leg yfir­­ráð. Í því feldst að aðili þurfi að eiga meira en 50 pró­­sent í öðrum aðila eða ráða yfir honum með öðrum hætti til að þeir séu taldir tengdir aðil­­ar. Þau mörk hafa verið harð­lega gagn­rýnd, enda mjög há í öllum sam­an­burð­i.

Mikil sam­­­þjöppun hefur átt sér stað í sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegi á Íslandi á und­an­­­förnum ára­tug­um, eftir að fram­­­sal kvóta var gefið frjálst og sér­­­stak­­­lega eftir að heim­ilt var að veð­­­setja afla­heim­ildir fyrir banka­lán­um, þótt útgerð­­­ar­­­fyr­ir­tækin eigi þær ekki í raun heldur þjóð­in. Slík heim­ild var veitt árið 1997.

Tíu stærstu með rúmlega 67 prósent kvótans

Haustið 2020 héldu tíu stærstu útgerðir lands­ins sam­an­lagt á 53 pró­sent af úthlut­uðum kvóta, en Kjarn­inn greindi frá því í nóv­em­ber í fyrra að það hlut­fall væri komið upp í rúm­lega 67 pró­sent.

Sam­hliða þess­ari þróun hefur hagn­aður sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja auk­ist gríð­ar­lega. Hagn­aður geirans fyrir skatta og gjöld frá byrjun árs 2009 og út árið 2020 var alls um 665 millj­­arðar króna, sam­kvæmt sjáv­ar­út­vegs­gagna­grunni Deloitte. Af þeirri upp­­hæð fór undir 30 pró­­sent til íslenskra rík­­is­ins, eig­anda auð­lind­­ar­inn­­ar, í formi tekju­skatts, trygg­inga­gjalds og veið­i­­gjalda. En rúm­­lega 70 pró­­sent sat eftir hjá eig­endum fyr­ir­tækj­anna.

Þegar Fiski­stofa birti síð­ast tölur um sam­þjöppun afla­heim­ilda var eitt fyr­ir­tæki yfir þeim lög­bundnu tólf pró­sent hámarki, Brim sem skráð er á íslenskan hluta­bréfa­markað. Brim leysti úr þeirri stöðu 18. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn þegar það seldi aflal­hlut­deild fyrir 3,4 millj­arða króna til Útgerð­ar­fé­lags Reykja­vík­ur. Eigandi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur, Guð­mundur Krist­jáns­son, er for­stjóri Brim og stærsti ein­staki eig­andi þess fyr­ir­tækis.

Fjórar blokkir, kenndar við Sam­herja, Brim, Kaup­fé­lag Skag­firð­inga og Ísfé­lagið, halda á rúm­lega 60 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta á Íslandi en aðilar innan þeirra eru ekki í öllum til­vikum skil­greindir sem tengdir sam­kvæmt gild­andi lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár